Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1983, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 9. APR1L1983. 19 Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Hér sést Hans Zischler í myndinni IM LAUF DER ZEIT. Þetta er fólkið sem hafði litið annað að gera en slóra og láta sér leiðast meðan framleiðandi myndarinnar var að útvega meira fjármagn. Þýshi Ieihstjórinn Wim Wenders hefur sent frá sér myndina THE STÆ TE OF THINGS sem margir telja ádeilumynd á Hollywood en þar gerði Wenders mynd sína9 HAiffMET, sem hann lenti í mihlum erfiðleihum með Enn á ný hefur þýski kvikmynda- gerðarmaðurinn Wim Wenders sent frá sér nýja mynd. Er það myndin The State Of Things sem var kvik- mynduö í Portúgal á aðeins tveimur vikum. Að venju fer Wenders ótroðn- að slóðir og virðist óhræddur viö aö reyna nýja hluti. Þessi mynd hefur hlotið góða dóma og er talin af ýmsum vera uppgjör Wenders gagn- vart Hollywoodenþardvaldisthann meira eöa minna í nær fimm ár eða meðan hann var að berjast við að fullgera mynd sína Hammet sem byggð var á sögu Joe Gores. Hammet hlaut mjög misjafna dóma og eru uppi mjög skiptar skoðanir um ágæti hennar. Hins vegar eru nær allir sammála um aö Wenders sé hæfileikaríkur kvikmyndagerðar- maður, ekki síst þegar honum tekst velupp. The Staíe Of Things fjallar um hóp fólks sem vinnur að kvikmynda- gerð. Forsvarsmaöur hópsins er ungur þýskur leikstjóri aö nafni Fritz Munro sem vinnur nú aö sinni fyrstu kvikmynd sem fjármögnuð er af bandarískum aðilum. Myndin heitir The Survivors og er endurút- gáfa á myndinni Most Dangerous Man Alive sem Allan Dwan gerði á sínum tíma. Þegar gerð myndar- innar er vel á veg komin tjáir kvik- myndatökumaðurinn leikstjóranum að þeir séu búnir aö nota alla þá filmu sem til sé. Ákveöiö er aö hætta allri vinnslu myndarinnai meðan beöið sé eftir framleiöandanum Gordon sem var í Bandaríkjunum í leit að fleiri aöilum til aö fjármagna myndina. Erfiður biðtími Nú tekur viö erfiður tími enda ekkert annað að gera fyrir kvik- myndagerðarfólkið en að vorkenna sjálfu sér og láta sér leiðast. Leik- konan Anna lætur í ljósi áhyggjur sínar yfir ástarsambandi sínu við leikarann Mark meðan rithöfundur- inn Dennis fær alvarlega bakþanka yfir því hlutverki sem honum var út- hlutað í myndinni. Kvikmyndatöku- maðurinn Joe Corby verður að yfir- gefa hópinn eftir að honum höföu borist þærfréttiraðkonan hans hefði látist eftir aðgerð í Los Angeles. Þegar hér er komið sögu er leik- stjóranum Frits hætt aö lítast á þá upplausn og óróleika sem hefur gert vart við sig meöal hópsins og sér fram á að eina raunhæfa lausnin sé að hafa uppi á framleiðandanum Gordon. Hann flýgur því til Los Angeles en þar vill enginn segja honum frá dvalarstað Gordons. Hann kemst þó að því að Gordon á í stórfelldum peningavandræöum og aö stór hluti þess fjármagns sem hingað til hafði verið lagt í myndina hafi komið frá aðeins einum aðila, þ.e. rithöfundinum Dennis. Fyrir til- viljun rekst þó Frits á Gordon þar sem hann var á ferð ásamt vini sínum í hjólhýsi á flótta undir lánar- drottnum sem vildu fá til baka þá peninga sem þeir höfðu lagt í gerð myndarinnar The Survivors. Þeir höfðu komist að því að myndin var ekki kvikmynduð í lit heldur svart- hvítu og höfðu hótað aö drepa Gordon vegna samningsrofs ef hann endurgreiddi ekki peningana. Þeir Frits og Gordon eyða saman nóttunni í samræður en þegar Frits ætlar aö yfirgefa samkvæmið verður hann fyrir skoti frá óþekktum leigu- morðingja. Undir áhrifum Hollywood Því er ekki að neita að hér er um harla óvanalega atburðarás að ræða. Efnisþráðurinn er mjög forvitni- legur, ekki síst ef höfð eru í huga öll þau vandræði sem Wenders varð að ganga í gegnum meðan á kvik- myndatöku Hammets stóð, en hún var unnin fyrir Zeotrope Studios sem Francis Coppola veitti forstöðu. Sjálfur segir Wenders um myndina: „The State Of Things fjallar ekki nema að litlu leyti um þá lífsreynslu sem ég gekk í gegnum meöan ég vann að gerö Hammet. En ef ég hefði ætlaö mér það heföi veriö gengiö út frá allt öðru sjónarhorni og myndin hefði þá fjallaö meira um kvik- myndagerö. Þessi mynd er byggð á drögum sem ég hafði lengi ætlað að fullgera handrit úr en auðvitað hafði dvöl mín í Bandaríkjunum töluverð áhrif á hvernig lokaútkoman varð. Ég vil þó taka fram að hlutverk Allen Goorwitz sem Gordon var ekki samið með Francis Coppola í huga. Ef ég hefði haft hann í huga hefði ég valið einhvern annan í hlutverkið, og endurritað handritið. Gordon full- trúi fyrir „B” mynda leikstjóra af þeim gæðaflokki sem eru að verða útdauðir. En þeir eru samt til og ég hef sjálfur hitt nokkra þeirra.” Hugmynd fæðist Hugmyndin að The State Of Things er ekki ný af nálinni heldur fimm til sex ára gömul. Wenders byrjaði meira að segja að taka nokkrar prufutökur með vini sínum Robby Miiller en ekkert varð úr fram- haldinu. Hugmyndin lá því grafin og gleymd niöri í skúffu þangaö til Wenders átti leið til Portúgal til að heimsækja kunningja sina sem unnu þar aö gerð myndarinnar The Terri- tory undir stjóm Raul Ruitz. Wend- ers kom með töluvert magn af óátekinni filmu sem Ruitz vanhagaði um. Dag nokkum þegar Wenders var í ökuferð í Portúgal tók hann ranga hliöarbeygju og endaöi niðri við fallegt hótel. Á þeim stað og stundu ákvaö hann að ef hann ætlaði á annað borð aö gera kvikmynd á næstunni skyldi þaö vera hér og gerast strax. Wenders hafði því samband viö kvik- myndagerðarf ólkiö sem var að vinna aö gerö The Territory og spuröist fyrir um hvort það væri ekki til í aö hjálpa sér að gera nýja mynd og tóku flestir því vel. Jeffrey Kime, einn af leikurum myndarinnar, lýsti því hvernig Wenders skaut allskyndilega upp kollinum meðan hann vann að gerð The Territory. „Dag nokkurn, u.þ.b. 10 dögum áður en kvikmyndatöku The Territory lauk, kom rútan eins og vanalega til að sækja okkur og fara með á þann stað sem kvik- myndatakan átti að fara fram. Þaö var í þetta sinn niðri við stórt vatn nokkrar mílur frá Sinatra. En þegar inn í rútuna var komiö reyndist einn aukafarþegi meö. Við tókumst í Atrifli úr myndinni THE STATE OF THINGS. Það eru leikarinn Patrick Bauchau og kvikmyndaframleiðandinn Roger Corman sem eru afl tala saman. haidur og hann kynnti sig ,Jfæ, ég er Wim.” Erfið fjármögnun Líkt og Gordon í myndinni Sur- vivors þá reyndist Wenders nokkuð erfitt að fjármagna myndina, ekki síst vegna þess að ekkert handrit var fyrir hendi. Þaö eina sem til var um hina væntanlegu mynd var uppkast upp á f jórar síöur. En þær tvær vikur sem undirbúningur stóð yfir safn- aöist saman nægjanlegt fjármagn til að hefja kvikmyndatökur. Síðan var framleiðandinn Chris Sievemich sífellt á ferðinni til að afla meiri pen- inga. „Við urðum þó að stöðva fram- leiðslu myndarinnar nokkrum sinnum,” var haft eftir Wenders. „Þaö var ekki vegna fjármagns- skorts heldur vegna þess að okkur vantaði filmu. Myndin var tekin í svart-hvítu og vegna þess hve fyrir- varinn var lítill þá tókst okkur ekki að láta Ilford fyrirtækið né Kodak vita en þau vilja helst fá 6 vikna fyrirvara til að geta komið sér upp nægjanlegum birgöum af svart- hvítri filmu. Viö uröum því aö snapa filmu hvaðanæva úr heiminum. Við enduðum með að kaupa óáteknar filmur frá Moskvu, Tokyo, London, Madrid og Berlín, en allt hafðist þettaþóaðlokum.” Handritiö að The State Of Things er ritaö af Robert Kramer og var þaö skrif að jafnóöum og myndin var unn- in. Kramer sat þá á hótel- herberginu sínu og skrifaöi og skrif- aði, yfirleitt einum degi áöur en atriðin voru kvikmynduð. Þó kom þaö fyrir að Kramer dróst aftur úr og varð aö skrifa handritið eftir að Wenders var búinn að kvikmynda handritslaus ýmis atriði. Þessi sam- vinna þeirra Kramers og Wenders tókst hins vegar m jög vel og varð góö reynsla fyrir þá báða því aö yfirleitt er æði stirt samband milli handrita- höfunda og leikstjóra. Skref f ram á við Meö myndinni The State Of Things hefur Wim Wenders ennundirstrikaö að hann er einn af framsæknari kvikmyndagerðarmönnum þýsku nýbylgjunnar. Það sem hann hefur nú fram yfir flesta þýska starfs- bræður sína er aö honum hefur gefist tækifæri til að starfa að kvikmynda- gerð sinni víða um heim og hefur þannig kynnst nýjum straumum og viðhorfum í grein sinni. Wenders stundaði nám við Hochschule fiir Fernsehen und Film í Miinchen þar sem hann gerði ýmsar stuttar myndir, en það var ekki fyrr en 1972 aö Wenders geröi sína fyrstu mynd í fullri lengd sem var Die Angst Der Tormanns Beim Elfmeter, gerð eftir sögu Peter Handke. Síðan fylgdu aðrar myndir eins og á færibandi og má nefna m.a. Falsche Bewegung (1975), Im Lauf Der Zeit (1976) sem að mörgu leyti minnir á þessa nýjustu mynd Wenders, Der Amerikansche Freund (1977) og svo Hammett (1982). The State Of Things er að mörgu leyti tímamótamarkandi mynd fyrir Wim Wenders. Allt frá því að hann kvikmyndaðiAmeríska vininn (1977) hefur hann veriö með annan fótinn í Bandaríkjunum enda var haft eftir Dennis Hopper sem kynnti þá Wend- ers og Coppola sem fjármagnaði Hammet að „af öllum þýskum leik- stjórum.'. . væri Wenders sá leik- stjóri sem auðveldast gæti aðlagað sig bandarískum kvikmyndaiðnaði”. Nú virðistsem „tilhugalífi” Wenders við Hollywood sé lokið og hann verði að leita nýrra miöa hvaö varðar fjár- magn til kvikmyndageröar og dreif- ingar mynda sinna. Það mætti því ætla að margt forvitnilegt gæti komiö frá Wenders á næstunni en aðeins timinn getur skorið úr um það. Byggt á: Monthly Film BuDetin janúar- og marshefti 1983 og International film Guide 1980. BaldurHjaltason. Uppgjör gegn Hollywood?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.