Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Side 1
Nýiu framboöin sigruðu
í
konum íhópi þingmanna fjölgarí 9
Bandalag jafnaöarmanna og Sam-
tök um kvennalista eru sigurvegarar
alþingiskosninganna sem fram fóru
á laugardaginn. Þessi framboðfengu
samanlagt 7 þingmenn kjöma,
Bandalagið fékk 4 og Kvennalist-
arnir 3. Alþýðuflokkurinn tapaði 4
þingsætum, fékk 6 og Framsóknar-
flokkurinn fékk 14, tapaði 3. BB-listi
framsóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi vestra fékk 11,6% atkvæða
þar en engan mann. Sjálfstæðis-
flokkurinn bætti alls staðar við sig
fylgi nema í Reykjavík. A Vestf jörð-
um voru tveir listar sjálfstæðis-
manna, þar fékk T-listi 11,6%
atkvæða og engan mann kjörinn.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 23 þing-
menn kjörna en hafði 21 áður.
Alþýðubandalagið tapaði 1 þing-
manni, fékk 10.
A kjörskrá í kosningunum nú voru
153.956. Atkvæði greiddu 129.962 sem
er 88,3%. Auðir seðlar og ógildir voru
3.341. Árið 1979 var kjörsóknin
89,3%. Konur á þingi verða 9, þeim
fjölgar um 6. Nýir þingmenn eru 13
og hafa 11 þeirra ekki setið áður á
Alþingi. Yngsti þingmaðurinn er 27
ára gamall, sá elsti 70 ára.
Þrátt fyrir fannfergi víða um
norðan- og austanvert landið gekk
kosningin vel. Fyrstu tölur komu um
00.30 en endanleg úrslit lágu fyrir
klukkan 9.30 í gærmorgun.
Eitt helsta einkenni kosninganna
nú er mikið formannafail. I Reykja-
vík náði Geir Hallgrímsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ekki
kjöri. Á Suðurlandi fór eins fyrir
varaformanni Alþýðuflokksins,
Magnúsi H. Magnússyni. Sá flokkur
sér einnig á bak formanni þing-
flokksins, Sighvati Björgvinssyni,
sem ekki náði kjöri í Vestfjarðakjör-
dæmi. Þingflokksformaður Alþýðu-
bandalagsins, Oiafur Ragnar Gríms-
son, varð einnig að viðurkenna fall
sitt í Reykjavík. -JBH.
Hvað hefðí gerst, ef kosið hefði verið eftir nýju kosningalögunum?
Tíu nýir inn en sjö aörir út
Alimiklar tilfærslur hefðu orðið á
þingmönnum ef kosið hefði verið
eftir nýju kosningalögunum í
nýafstöðnum alþingiskosningum.
. Þær hefðu helstar orðið að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði fengiö 26 þing-
menn kjöma; Alþýðuflokkurinn 7,
Framsóknarflokkurinn 12 og Alþýðu-
bandalag 11. Þingmannatala ann-
arra flokka heföi verið óbreytt.
1 Reykjavík hefði Sjálfstæðis-
flokkurinn bætt við sig tveimur
mönnum, þ.e. Geir Hallgrímssyni og
Guðmundi H. Garðarssyni, einum í
Reykjanesi, þ.e. Kristjönu Millu
Thorsteinsson og Björn Dagbjarts-
son á Norðurlandi eystra hefði
komist inn. Sjálfstæðismenn hefðu
hins vegar misst mann á Austur-
landi, sem hefði verið Egill Jónsson.
Alþýðubandalagið hefði bætt við
sig Kjartani Olafssyni á Vest-
fjörðum.
Alþýðuflokkurinn hefði misst Karl
Steinar Guðnason á Reykjanesi en
fengið Arna Gunnarsson á Norður-
landi eystra og Magnús H. Magnús-
son á Suðurlandi inn á þing.
Framsóknarflokkurinn hefði
fengið inn Jóhann Einvarðsson á
Reykjanesi. Á móti hefði hann misst
út Davíð Aðalsteinsson, Vesturlandi,
Olaf Þ. Þórðarson, Vestfjörðum og
Guðmund Bjarnason, Norðurlandi
eystra. A Norðuriandi vestra hefði
BB-maður, Ingólfur Guðnason,
komið inn í stað Stefáns Guðmunds-
sonar.
Aðrar breytingar hefðu orðið þær
að á Reykjanesi hefði Bandalag
jafnaðarmanna fengið tvo kjörna.
Þórður H. Ölafsson hefði komiö inn í
stað Kolbrúnar Jónsdóttur á Norður-
landieystra.
-JSS.
Hlátrasköllin og sigurhróp-
in hljómuðu á móti blaða-
mönnum DV þegar þeir
komu í hús eitt í Árbœnum í
fgrrinótt. Þar voru saman-
komnir stuðningsmenn Sam-
taka um kvennalista. Fgrstu
tölur sem lesnar voru í sjón-
varpi höfðu gertmeira en að
fullnœgja þeim björtustu
vonum sem gerðar höfðu ver-
ið um fglgi. „Við fundum
líka samkennd og stuðning
hvar sem við fórum, ” sögðu
þœr kvennaframboðskonur.
Menn óskuðu Sigríði Dúnu
til hamingju með það að
vera orðinn þingmaður,
,,Þingkona, ” leiðrétti hún.
Kristín Kvaran, annar
maður á lista Bandalags
jafnaðarmanna í Regkjavík,
fglgist spennt með tölum
ásamt öðru fólki. Ekki að
undra því lengi var ekki Ijóst
hvort hún kœmist á þing eða
ekki. DV-mgndir Einar