Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR 25. APRÍL1983. 5 Arni Johnsen. Árni Johnsen, nýkjörinn þingmaður Sjálf- stæðisflokksins: „Verulegur sigur á Suðurlandi” „Ég er afskaplega ánægður með út- komu Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi, við stefndum að 3 kjör- dæmakjömum mönnum og það tókst,” sagöi Ámi Johnsen, nýkjörinn þing- maður Sjálfstæðisflokks á Suöurlandi. ,,Að mínu mati er þetta verulegur sig- ur. Ætli þaö sé ekki 5% hreyfing til flokksins. Ég tel ekki raunhæft að miða úrslitin við samanlagöa útkomu D og L lista í síðustu kosningum vegna þess aö L-framboðið höfðaði þá til annarra* sjónarmiða en flokkslegra. Ég þakka hinn góða árangur mikilli og góðri vinnu sjálfstæöismanna í kjördæminu. Við frambjóðendumir vomm mikið á ferðinni og fundum fljótt að það var mikill byr með okkur og þróttur í flokksmönnum. Ég var í Vestmanna- eyjum á kjördag og krafturinn í okkar fólki þar var eins og í mikilli aflahrotu! Ég met stöðuna þannig á landsvísu aö Sjálfstæðisflokkurinn hafi goldið þess að vera ekki heill og óskiptur í stjóm- arandstööu. Eins held ég aö Sjálf- stæðisflokkurinn hafi liðið fyrir almenna stjómmálaþreytu. Þreyta almennings er skiljanleg í ljósi þess að nýlokið er afkastaminnsta þingi í sögu lýðveldisins. Það var nýjabram á kvennalistum og Bandalagi jafnaðar- manna og það bitnaði á sjálfstæðis- mönnumeinsogööram." ás Kristín S. Kvaran, þingmaður C-lista íReykjavík: „Erumótvíræð- irsigurvegæar” Kristín S. Kvaran. „Ég verð að taka undir sem fram hefur komið að við eram ótvíræðir sig- urvegarar í þessum kosningum miðað við hina flokkana,” sagði Kristín S. Kvaran, nýkjörinn 2. þingmaður Bandalags jafnaðarmanna í Reykja-. vík. „Ég verð að játa að ég var aldrei fyllilega sátt við þær skoðanakannanir sem fram fóru, vegna þess hve margir þeirra er spurðir vora reyndust vera óákveðnir. Kannanimar gáfu því alls ekki rétta mynd af því sem var að ger- ast.” Kristín kvaðst vera mjög ánægð með úrslit kosninganna, miðað við hve ung stjómmálasamtök Bandalag jafn- aðarmanna væra. Talsmenn þess hefðu haft lítinn tima til að kynna mál- staðinn, þeir hefðu ekki haft yfir mál- gagni að ráða eins og hinir flokkarnir og mættu því í ljósi þess vel viö una. „Ég tel að fylgi okkar stafi ekki af því að kjósendur hafi verið orðnir þreyttir á gömlu flokkunum eins og sumir vildu halda. Hugmyndir þær sem við höföum fram að færa vöktu athygli fólks. Það vildi gjaman kynna sér þær, eins og fram kom á vinnu- staðafundum okkar og féll vel við þær eins og kosningaúrslit sýna. Frá mínum bæjardyrum séö náði Bandalag jafnaöarmanna þarna mjög sögulegum árangri á afar stuttum tíma. Mér er nú efst í huga þakklæti til alls þess fólks sem lagöi á sig mikla vinnu til að koma hugmyndum þess á framfæri,” sagöi Kristín S. Kvaran. -JSS Gunnar G. Schram, annar maöurá lista Sjálfstæðisflokksins áReykjanesi: Gunnar G. Schram. ,,Ég er ákáflega ánægður með þessi úrslit í Reykjaneskjördæmi. Við sjálf- stæðismenn höfum unnið góðan sigur og bætt við okkur einum kjördæma- kjörnum,” sagði Gunnar G. Schram, annar maöur á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjaneskjördæmi og einn af nýju andlitunum á Alþingi Islendinga, er við ræddum við hann á kosninga- nóttina. Og Gunnar sagði ennfremur: „Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem stuölað hafa að þessum úrslitum. Viðmunumgeraokkarbesta.” -JGH Kolbrún Jónsdóttir, landskjörinn þingmaður C-lista í Norðurlandi-eystra: „Getum ekki verið annað en bjartsýn” „Við getum ekki verið annað en bjartsýn,” segir Kolbrún Jónsdóttir, hinn nýji þingmaður Bandalags jafn- aðarmanna í Norðurlandi eystra, er hún var beðin um álit á útkomu hennar samtaka úr kosningunum á laugardag- inn. „Miöað við það að viö höfum hvorki mikiö fjármagn né tíma fyrir þessar kosningar, getum við veriö mjög ánægö með niöurstöðuna. Þetta er mikiö aö þakka mjög duglegu fólki sem hefur unnið fórnfúst starf,” heldur Kolbrún áfram. Hvað tekur nú við fyrir hinn nýja þingflokk? „Það er spurning, við eram ekki bú- in að ræðan mikiö um það eftir aö þessi úrslit lágu fyrir svo að ég held að ég verði að bíða með svar viö þessu í bili,” svararKolbrún. Hvað um niðurstöður kosninganna í heild? „Ég veit ekki hvað maður á að segja, Framsókn tapar jú þremur og Alþýöubandalag einum og hin nýju framboð vinna á. Mér finnst þetta góð- ar niðurstöður fyrir þessi nýju fram- Kolbrún Jónsdóttir. boö,”segirKolbrún. Hvernig leggst hið nýja starf í þig? „Það leggst vel í mig,” segir Kol- brún Jonsdóttir, nýkjörinn þing- maöur fyrir Bandalag jafnaðarmanna í Norðurlandi eystra. -DÞD Steingrimur J. Sigfússon. Steingrímur J. Sigf ús- son, þingmaður Alþýðu- bandalagsins á Norð- urlandi eystra: „Hlakkatil þingstarfa” Ég er bara mjög ánægður með að öll sú vinna sem fólkið hér er búiö að leggja fram skuli nýtast. Fyrst og fremst er ég ánægður meö aö viö skul- um halda okkar þingmanni hér. ” sagði Steingrímur J. Sigfússon sem náöi kjöri sem þingmaöur Alþýðubanda- lagsins fyrir Norðurlandskjördæmi eystra. Flokkurinn hafði þingmann þar áöur, Stefán Jónsson, en hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Steingrímur er aðeins 27 ára gamall og því yngsti þingmaðurinn á nýju þingi. Hann var spurður aö því hvort hann kviði því ekki að fara að takast á við mál þar. „Nei, ég kvíöi því ekkert, hlakka miklu frekar til,” sagöi hann. Það yrði líka nógu að sinna og kvaðst hann myndu nokkuð öragglega leggja áherslu á málefni byggðarlaga fyrir norðan og atvinnulífið. Að svo stöddu væri ekki ástæða til að ræða það f rekar hvar hann myndi mest beita sér. JBH Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy ) Rimini Riccione Cattolica Cesenatico Gatteo a Mare San Mauro a Mare Misano Adriatico Lidi di Comacchio Savignano a Mare Ðellaría - Igea Marína Cervia - Milano Marittima Ravenna e le Sue Maríne Rimini á Ítalíu er einhver vinsœlasti sumarleyfisstaður sem 'v’öl er á. Þangað ílykkjast íslendingar í stórum stíl, slaka á í langþráðu sumarleyíi við hreina og íallega ströndina og njóta þess á milli fjölbreytts skemmtanalífs, fróðlegra skoðunarferða og stuttra verslunarleiðangra um nágrennið. Fyrir fjölskyldufólk er Rimini hrein gullnáma. Börn og fullorðnir finna þar endalaus viðfangsefni við sitt hœíi og auðvitað sameinast íjölskyldan í leikjum, skemmtun- um og fjörlegum uppátœkjum sem einmitt einkenna svo mjög mannlíf þessara hressilegu sólarstrandar. Og nú býður Samvinnuferðir- Landsýn að auki upp á sérstakan barnaíar- arstjóra sem sér um að yngstu ferðalang- arnir hafi alltaf nóg við að vera. Eitthvað fyrir alla: veitingahús skemmtistaðir næturklúbbar diskótek leikvellir sundlaugar hjólaskautavellir minígolfvellir skemmtigarðar Tívolí útimarkaður stórmarkaðir þúsundir verslana o.fl. o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.