Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 48
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra: MVænt um sigrasam- ráðherranna” „Heildarúrslit kosninganna eru meö þeim hætti að miklir erfiðleikar veröa að koma saman meirihluta- stjóm á næstunni, sem væri tilbúin til að takast á við þann efnahagsvanda sem þjóöin á við að glíma. ” Þetta sagði dr. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra er DV bað hann um álit hans á niðurstööum kosninganna. „Mér virðist að erfiðleikar við stjómar- myndun verði ekki minni nú en eftir kosningamar 1979, kannski meiri. Inn í þetta mál blandast þær kröfur sem sumir stjórnmálaforingjar hafa fyrir kosningar gert um að kosið verði aftur í sumar eða haust. Ef þeirri kröfu er haldið til streitu hlýtur hún aö auka stórlega á þessi vandamál. Það er ánægjulegt að Sjálfstæöis- flokkurinn hefur haldiö sæmilega fylgi sínu, aukið nokkuð við. Mér þykir mjög vænt um hversu glæsilegir vom sigramir hjá samráðherrum mínum Friðjóni Þóröarsyni og Pálma Jóns- syni, sem báðir em orðnir fyrstu þing- menn sinna kjördæma í fyrsta sinn.” — Hvenær munt þú biðjast lausnar fyrir þig og ráðuneyti þitt? „Við ræðum úrslit kosninganna og stjómmálaviðhorfin á ríkisstjómar- fundi síðdegis í dag.” — Hvenær munt þú ganga á fund forsetalslands? „Eg mun að sjálfsögöu ræða við for- seta Islands umstöðuna í dag.” — Hvern telur þú líklegastan til að fá umboðtil stjórnarmyndunar? „Eg vil ekki ræða það mál á þessari stundu.” -ás. Ekiðákonu á hestbaki Ekið var á 52 ára gamla konu sem var á hestbaki á Elliöavatnsvegi við Vatnsendaveg um klukkan þrjú í gær- dag. Konan var flutt á slysadeild Borgarspítalans en mun ekki hafa meiðst alvarlega. Aflífa varð hestinn. Konan var ásamt manninum sínum á ferð þegar bíllinn kom aðvífandi og ók á hest hennar. Hann lenti á síðu hestsins nokkuð harkalega og kast- aðist konan við það í götuna. Dýralæknir kom á staðinn og af- lífaði hestinn. -JGH. LOKI Nú verður að stækka kvennaklósettið við Austurvöll! Tillaga um af- sögn á morgun Ríkisstjórnin kemur líklegasaman Hermannsson og Friðjón Þórðarson núverandi stjómar liggur fyrir. til fundar síödegis í dag. Á þeim lýstu því báðir í kosningabaráttunni Aimennt er talið að formanni Sjálf- fundi eða á reglulegum fundi að ríkisstjórnin ætti að fara frá stæðisflokksins, Geir Hallgrímssyni, stjórnarinnar í fyFramálið mun þegareftirkosningar. verði falin stjómarmyndunartil- liggja fyrir tillaga um afsögn Steingrímur sagði í morgun að raun. I viðtali við sjónvarpið í gær hennar. Formlegar viöræður um hann myndi leggja til afsögn á fyrsta taldi hann engin tormerki á að taka myndun nýrrar ríkisstjómar geta fundi. Friðjón kvaö ekki sjálfgert að hlutverkið að sér, þótt hann hefði ekki hafist fyrr en núverandi stjórn ríkisstjómin segði af sér í dag, en að fallið af þingi. hefursagtafsér. sínu mati ætti það ekki aö dragast Forsetinn mun að venju ræða við Forsætisráöherra, Gunnar Thor- nema til morguns eða í mesta lagi forsætisráðherra og forystumenn oddsen, skýröi DV frá því í morgun aðeins fram í vikuna. allra flokka og samtaka áður en að hann stefndi að stjómarfundi í Forseti Islands getur ekki falið hinar formlegu viðræður um dag. neinum formlega að reyna myndun stjómarmyndun hefjast Ráðherramir Steingrímur nýrrar ríkisstjórnar fyrr en afsögn -HERB. Tefltumíslands- meistaratitilinn tJrslitakeppni um Islandsmeistara- titilinn í skák fer fram í kvöld kl. 19 í húsakynnum Skáksambands Islands, aðLaugavegi71. Staðan eftir tvær umferðir er sú að Hilmar Karlsson og Elvar Guömunds- son hafa báðir hlotiö 2 1/2 vinning en Ágúst Karlsson engan. Þessir menn urðu í 2.-4. sæti á Islandsmeistaramóti sem haldiö var fyrir skömmu. Þar varð Dan Hanson hins vegar efstur en hann er sænskur ríkisborgari og því ekki gjaldgengur semlslandsmeistari. -EA. Elduríforstofu Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt að Hagamel 14 laust fyrir klukkan sex í gærdagen þar logaöi þá eldur í for- stofuherbergi á annarri hæð hússins. Að sögn slökkviliðsins gekk greiölega aö slökkva eldinn en skemmdir uröu talsverðar á herberg- inu og húsbúnaði. Enginn var í íbúð- inni þegar eldurinnkomupp. -JGH Kosningarnar gengu til muna betur en á horfðist og réð þvi gott veður um allt land. Fólk úti um land naut aðstoðar Vegagerðar, auk þess sem þyrlur og snjóbílar voru til taks. Atkvæðasöfnun gekk og mjög vel. Hér má sjá atkvæði flutt með flugvél frá Vestmannaeyjum til Reykjavikur, en þaðan voruþau fíuttá talningarstað Sunnlendinga á Selfossi. DV-mynd S. Skoðanakönnun DV kom langbest út Skoðanakönnun Hagvangs lakast Skoöanakönnun DV reyndist fara miklu nær um úrslit kosninganna en aðrar skoðanakannanir sem voru gerðar fyrir kosningamar. Hinn frægi forystumaður skoðanakannana, Gallup, segir að dæma megi hversu góðar skoðana- kannanir séu eftir því hve nálægt þær komast úrslitum kosninga. Auövitaö hlýtur alltaf að muna einhverju. Gallup telur eðlilegt að muni 2—3 prósentustigum. En samanburður á hinum ýmsu skoöanakönnunum sem nú voru gerðar er mjög athyglisverður. Frávik milli skoöanakönnunar DV og úrslitanna úr kosningunum eru að meðaltali 2,2 prósentustig á fram- boð. DV gerði í sínum niðurstöðum auk þess grein fyrir útreikningum Þor- valds Búasonar eðlisfræðings á hvemig hinir óákveðnu í skoðana- könnun DV gætu skipst miðað við- fyrri reynslu. Frávik milli talna, sem Þorvaldur reiknaði þannig, og kosningaúrslitanna urðu að meöaltali 2,6 prósentustig. Helgarpósturinn kom í sinni skoðanakönnun mun verr út en DV. Frávikið á hans könnun er að meðaltali á framboð 2,8 prósentustigum frá úrslitum kosninganna. Verst kom Hagvangur út. Niður- stöður hans voru sem kunnugt er birtar í Morgunblaðinu. Frávikin þar urðu að meðaltali 3,1 prósentustig á framboð. I þessum útreikningum eru B og BB-listar taldir saman, enda báðir á vegum Framsóknarflokksins. Engu breytir um samanburðinn milli skoðanakannana þótt þeir séu taldir hvorísínulagi. -HH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.