Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR 25. APRIL1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
EINOKUN Á SÖLU EGGJA
Undirrituöum blaðamanni barst
þetta fréttabréf og sjálfsagt var ætlast
til aö málstaöur Framleiösluráös
landbúnaöarins fengi pláss á Neyt-
endasíöunni. Er hér meö oröið viö því.
En varla er hægt annaö en láta þá
frá sér fara eitthvert mótvægi viö
skoðanir „einokunarherranna” í
Framleiðsluráöi. Tel ég mér þaö skylt,
meðal annars vegna allra þeirra neyt-
enda sem hafa látið í ljós skoöanir sín-
ar á eggjasölueinokun á þessum vett-
vangi. Þaö sem nefndar eru
undarlegar umræöur um „einokun
með egg” eru raddir neytenda.
Neytendasamtökin hafa einnig mót-
mælt breyttu fyrirkomulagi eggjasölu,
svo og Landssamband bakara-
meistara og segir þaö sma sögu.
1 fréttabréfinu er spurt hvers vegna
aörar reglur eigi aö gilda um eggja-
sölusamlag eöa dreifingarstöö á eggj-
um en yfir aörar afurðir bænda. Og
hvers vegna bændur eigi aö berjast
hver við annan á markaönum. Þessum
spurningum mætti svara meö öörum
spurningum. Hvers vegna eiga bændur
aö hafa þau forréttindi umfram aöra
matvælaframleiðendur aö þeirra af-
uröum er tryggt lágmarksverð, hvort
sem varan selst eöa ekki?
Hvers vegna á hinn almenni neyt-
andi aö greiöa útflutningsbætur meö
lambakjötinu, ostinum og fleiri
afurðum bænda svohægtséaö „losna”
við þær? Hvers vegna getum viö neyt-
endur hér aöeins valiö um eina smjör-
tegund í verslunum? Minnst er á
jákvæöa vöruþróun hjá Osta- og smjör-
sölunni. Margt gott má segja um þaö
fyrirtæki, svo og Mjólkursámsöluna.
En offramleiösla á mjólk hefur átt
stóran þátt i þróun vörutegunda hjá
báöum þessum fyrirtækjum. Neikvæöi
þátturinn, offramleiðsla mjólkur,
hefur leitt til jákvæöra úrbóta. Á aö
þakka þaö að menn hafa leitast viö aö
nýta umframmjólk til manneldis?
Hver segir svo aö þessi þróun heföi
ekki líka veriö jákvæö þó þessara
fy rirtækja hefði ekki notið við?
I fréttabréfinu er Osta- og smjörsal-
an tekin sem dæmi um gott fyrirtæki.
Það er alveg rétt aö nefna þaö fyrir-
tæki fremur en Grænmetisverslun
landbúnaðarins þegar grípa þarf til
þess, til stuðnings málstaðnum, aö
nefna jákvæða þróun mála. Þaö er
skiljanlegt aö kartöflumálin og Græn-
metisverslunin séu látin liggja í
þagnargildi á þessari stundu. Hjá því
fyrirtæki er varla hægt aö tala um já-
kvæöa þróun, eða hvaö?
Neytendur hafa mátt kaupa þær
kartöflur sem í poka hafa verið látnar,
hvort sem þaö eru góðar kartöflur eöa
„hæsnafóður”, hvort tveggja á sama
veröi. A þeim markaöi er engra kosta
völ. Jú, aö vísu, ef við viljum ekki
kaupa pokakartöflur í verslunum get-
um viö hér í Reykjavík lagt leið okkar í
afgreiðslu Grænmetisverslunar land-
búnaöarins viö Síðumúlann. Þar eru
stundum ögn skárri kartöflur en í pok-
unumí búðunum. En þangaö hafa ekki
allir tök á aö leggja leiö sína fyrir
nokkrar „spólur” í soöiö. Aökoman þar
er heldur ekki eftirsóknarverö. Helst
er hægt aö koma þar við yfir hásumar-
iö. Yfir vetrarmánuöina ríkir þar
„síberíukuldi”.
Einokunarsala á grænmeti er undir
vemdarvæng Framleiösluráös land-
búnaöarins. Hafi einhver áhuga á að
flytja inn til landsins grænmeti, sem er
allt aö 40% ódýrara en þaö sem fyrir
er, þá er hann kæröur? 1 þágu hvers er
þaö, neytenda? I þágu hvers hefur
tómötum verið hent á haugana þegar
þeir hafa ekki selst á lögboönu veröi?
Stórverslun ein í Reykjavík auglýsti
fyrir nokkrum árum mjólk á hálfvirðl
Nýmjólkurbirgðir verslunarinnar voru
á síðasta söludegi og því var brugöiö á
þaö ráö aö slá af lögboðnu veröi mjólk-
urinnar þann daginn. Nei, þaö mátti
ekki. Sjálfsagt aö hella njólkinni frek-
ar niöur en leyfa neytendum að kaupa
hana á hálfvirði.
Oft er í ræðu og riti vitnað í dóm
neytenda, þaö sé réttlátasti dómur
og sá sem hægt sé aö styðjast viö í
markaðsmálum. Eri hvemig eiga neyt-
endur að geta haft skoðanir og látiö
sinn dóm falla þegar ráöin em tekin af
þeim og þeim skammtað og sagt: þetta
fáiö þiö, annað betra er ekki á boðstól-
um. Varðandi þaö semFramleiðsluráö
landbúnaöarins kallar hagræðingu á
eggjasölu er rétt aö benda á aö hag-
ræöing þessi nefnistEINOKUN.
Um 80% þeirra eggja sem eru á
markaðnum eru framleidd af þeim
hópi félagsmanna í Sambandi eggja-
framleiðenda sem eru mótfallnir
eggjasölueinokun. Hvers vegna þá aö
berja þetta í gegn? Þaö er ekkert vafa-
mál að neytendur sem í dag geta valiö
um aö kaupa eggjakíló á mismunandi
verði sem er frá 55 kr. kílóið og allt aö
71 kr., kjósa óbreytt ástand. Því leyfi
ég mér fyrir hönd þeirra neytenda sem
lýst hafa sig mótfallna fyrirhuguðum
breytingum á eggjasölu að skora á
landbúnaðarráöherra aö sjá til þess aö
dreifingarmiöstööin, ein enn í þágu
landbúnaöarins, veröi aldrei annaö en
hugarfóstur einokunarsinna.
Þórunn Gestsdóttir.
umsjónarmaður Neytendasíöunnar
Húsmæðrakennaraskóli íslands.
Fyrírsjáanlegur
skortur á hús-
mæðrakennurum
Húsmæðrakennaraskóli íslands
er fertugur um þessar mundir. Á
þessum 40 árum hafa veriö útskrif-
aðir 184 kennararog4 matráösmenn.
Eftir að heimilisfræði varö skyldu-
námsgrein í öllum grunnskólum hef-
ur eftirspurn eftir húsmæðrakennur-
um aukist aö mun.Er fyrirsjáanlegt
núna aö ekki tekst aö útskrifa nægi-
lega marga kennara úr skólanum á
næsta ári til aö fullnægja eftirspum
nema því aöeins aö aösókn aö skól-
anumaukistaðmun.
Fyrsti skólastjóri Húsmæöra-
kennaraskólans var Helga
Sigurðardóttir. Auk hennar hefur
haldið þar um stjórnvöl Vigdís Jóns-
dóttir. Nú eru þær Anna Guðmunds-
dóttir og Ingibjörg Þórarinsdóttir
deildarstjórar. Fyrstu 26 árin var
námstíminn tveir vetur og eitt sum-
ar. Hann var hins vegar lengdur um
einnveturáriöl966.
DS
KJARAKAUP rtsrs**"'
Teg. 2007, liturnavy,
nr. 36 og 37.
Verðkr. 148,95.
Teg. 3343, litur
beige.
Nr. 36-41.
Verðkr. 85,00
Teg. 58013, litir
hvitt, blátt og brúnt,
nr. 36-41.
Verðkr. 199,95
Teg. 2015, litur
grátt.
Nr. 36 og 37.
Verðkr. 148,95.
Teg. 35084, litur
hvitt.
Nr. 39,40 og 41.
Verðkr. 148,00.
Teg. 12, litur
hvitt.
Nr. 37-41.
Verð kr. 199,95.
Teg. 2008, litur vinrautt.
Nr. 36 og 37.
Verökr. 148,95.
Teg. 327, litirhvitt
eða Ijósblátt.
Nr. 40, 41 og 42.
Verð kr. 298.00.
Teg. 211, litirsvart,
grátt, vinrautt.
Nr. 39-44.
Verðkr. 199,95.
Teg. 43222.
litir brúnt og grátt.
Nr. 36, 37og38.
Verðkr. 148,95.
Teg. 13. liturdökk-
blátt.
Nr. 40-43.
Verðkr. 199,95.
Teg. 1016, litirljós-
brúnt eða vinrautt
leður.
Nr. 36-40.
Verðkr. 495,00.
Teg. 86001, litur
beige.
Nr. 37. 38 og 39.
Verðkr. 148.95.
Teg. 40, litur
bleikt.
Nr. 39, 40og41.
Verðkr. 199,95.
Teg. 1115, litir
hvitt, Ijósbrúnt,
eða svart leður.
Nr. 36-40.
Verðkr. 495,00.
PÓSTSENDUM Skóvers/un Þórðar Péturssonar Kirkjustræti8 v/Austurvöii, sími 14181.