Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Blaðsíða 17
DV.MÁNUDAGUR25. APR1L1983.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Vill Ásgeir hafa
heróínsölu frjálsa?
— Halldór frá Kirkjubóli svarar grein Ásgeirs Þórhallssonar í DV 14. apríl
Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli
skrifar:
Ásgeir Þórhallsson rithöfundur
lætur sem hann sé að svara mér í DV í
dag, 14. apríl. Meginhluti greinar hans
er um hann sjálfan, frelsisást hans og
meintar skyldur hans sem rithöfundar.
Aukþesserþetta:
1. Ég eigi að hugsa úm mína lifur en
ekki annarra. Hver og einn skuli ráða
sínulífi.
„Því spyr óg enn: Vill Asgeir hafa
heróínsölu frjálsa?” segir Halldór
frá KirkjubóH m.a. ibráfi sinu.
Hins vegar svarar hann því engu
hvað muni valda því að í sumum
löndum eru lifrarskemmdir í röð
algengustu banameina.
2. Um afstöðu sína í umferðarmálum
vísar Ásgeir til bókar sinnar:
Dagurinn þegar öli borðaði sósuna
með skeiðinni. Ég hef lesið þá bók, en
varð lítils vís um skoðun höfundar á
umferðarreglum.
3. Þrátt fyrir allt tal Ásgeirs um
virðingu fyrir manneskjunni og sjálfs-
ákvöröunarrétti vill hann ekki að
áfengur bjór sé seldur í öllum mat-
vöruverzlunum. Hann vill sem sé setja
reglur sem takmarka þetta frelsi og
sjálfsákvörðunarrétt. Hann vill bara
hafa þær nokkuð öðruvísi en ég.
4. Ásgeir segir aö ekki sé hægt að líkja
saman heróíni og bjór. Þaö hef ég ekki
gert, en ef það er virðingarleysi við
manneskjuna að setja reglur um
vímuefnakaup hennar er enginn eðlis-
munur á frelsissviptingunni eftir því
hvert vímuefnið er. Hér erum við að
tala um fullan sjálfsákvörðunarrétt,
algjört frelsi og hvort grípa megi fram
fyrir hendur manna. Því spyr ég enn:
Vill Ásgeir hafa heróínsölu frjálsa? Ef
svo er ekki, vill hann takmarka sjálfs-
ákvörðunarréttinn eins og ég þó að
hann vilji hafa takmörkin nokkuð
önnur?
Þá virðist að þetta skraf hans um
virðingu fyrir manneskjunni og fullu
sjálfræði sé ekkert annað en
vanhugsaö mas, sem hann sjálfur rís í
gegn hvenær sem hann sér ástæðu til
þess, enda þótt hann sjái ekki neina
ástæðu tU að óttast bjórinn.
Þegar ég reyni að skapa mér skoðun
um það hver áhrif bjórdrykkja myndi
hafa á Islandi tek ég mið af því sem ég
veit um bjór og bjórdrykkju í öðrum
löndum.
H.Kr.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem
gefa nánari upplýsingar um greiðslukjör
o.fl.
VÉIADEILD SAMBANDSINS
BIFREIÐAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
KADETT LUXUS beinskiptur 5 dyra
kr. 243.000.-
REKORD LUXUS CARAVAN beinsk. kr. 407.273^- kr. 377.855.-
REKORD LUXUS 4. dyra beinsk. kr. 305,974:- kr. 367.817.-
REKORD LUXUS 4. dyra sjálfsk.kr^424rm-- kr. 396.466.-
REKORD BERLINA díesel sjálfsk. kr. 399.529.- kr. 359.000.-
REKORD LUXUS díesel sjálfsk. kr. 362.831.- kr. 322.194- til atvinnubílstj
Niðurtalning / verðlækkun
Nú seljum við síðustu bílana árgerð 1982 af OPEL
KADETT og REKORD, á stórlækkuðu verði
Af sumum þessara gerða eru aðeins eftir örfáir bílar. Notið verð og tollgengi
aprílmánaðar og tryggið ykkur glæsilegan OPEL, áður ennæstuhækkanirdynjayfir
(Gengi 12.4.'83)