Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 42
42 DV. MÁNUDAGUR 25. APR1L1983. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 45., 48. og 50. tbl. Lögbirtingablaösins 1982 á fasteign- inni Ægisgötu 41 Vogum Vatnsleysustrandarhreppi, þingl. eign Siguröar Haukssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl., Veödeildar Landsbanka íslands og Vilhjálms H. Viihjálmssonar hdl. fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 16.15. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 27., 31. og 37. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteign- inni Heiðargerði 19 Vogum Vatnsleysustrandarhreppi, þingl. eign Ingu Óskar Jóhannsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Veðdeildar Landsbanka íslands og Tryggingastofnunar rikisins fimmtudaginn 28. april 1983 kl. 16.45. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 95., 97. og 99. tbl. Lögbirtingablaösins 1982 á fast- eigninni Baðsvöllum 15 Grindavík, þingl. eign Péturs Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Utvegsbanka íslands, Iðnaðarbanka íslands og Brunabótafélags íslands miðvikudaginn 27. apríi 1983 kl. 15.45. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 5. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á fasteigninni Víkurbraut 50, miðhæð, Grindavik, þingi. eign Ólafs Andréssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Landsbanka islands, Vilhjálms H. Vil- hjálmssonar hdl., Jóns G. Briem hdl. og Veðdeildar Landsbanka ts- lands miövikudaginn 27. apríl 1983 kl. 16.15. Bæjarfógetinn í Grindavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 103., 106. og 109. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fast- eigninni Njarðvíkurbraut 2, neðri-hæð og bílskúr í Njarðvík, þingl. eign Snjólaugar Sveinsdóttur, fer fram að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 11.15. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Akurbraut 7 Njarðvík, þingl. eign Karls Ketils Arasonar, fer fram að kröfu innheimtumanns rikissjóðs, Njarövíkurbæjar og Landsbanka islands fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 85., 87. og 92. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fast- eigninni Hraunsvegi 15 Njarðvík, þingl. eign Jóns Sigfússonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Njarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105., og 108.. tölublaði Lögbirtingablaðs 1981 og 2. tölublaði þess 1982 á eigninni Mávahrauni 9 Hafnarfirði þingl. eign Hjördísar Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Reykjavíkurvegi 50, 2. h., Hafnarfirði, tal. eign Gylfa Norðdahl, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. april 1983 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66., 68. og 70. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Breiðvangi 14, 3. h., Hafnarfirði þingl. eign Þorsteins Svein- björnssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka ísiands á eigninni sjálfri f immtudaginn 28. apríl 1983 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 57. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Lindarhvammi 4, rishæð, Hafnarfirði þingl. eign Lilju B. Steinþórsdóttur og Kristins Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Verzlunarbanka Islands og Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28. apríl 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Menning Menning Menning Aö má/a um fólk — Ágúst Petersen sýnir íUstmunahúsinu Ágúst Petersen hefur nýlega opnaö málverkasýningu í Listmunahúsinu við Lækjartorg sem hann nefnir ,,Skyggnst undir skelina”. Sýningin er opin daglega (nema mánudaga ) frá kl. 10 til 18 fram til 1. maí. Þekktur listamaður Ágúst Petersen er þegar orðinn þekktur listmálari á íslenskan mæli- kvarða. Margir kannast orðið við landslagsmyndir listamannsins þar sem lögð er áhersla á myndflötinn og litinn, sem er oft þessi óskilgreindi litur sem listamaðurinn rissar á lér- eftið. En samhliða landslagsmálverk- inu hefur Ágúst unnið fjölda andlits- mynda eins og sýningin í Listmuna- húsinu gefur til kynna. Við getum jafnvel sagt að þessi sýning sé eins konar yfirlitssýning á portrettgerð listamannsins. Myndir um menn og konur Það sem er hvað eftirtektar- verðast við myndir Ágústs Petersen er að hann hafnar alfarið öllum aka- demiskum reglum í teikningu og myndgerð. Það eina sem minnir á hefðbundna portrettgerö er sjónar- homiö og myndskurðurinn. Það þarf því bæði dirfsku og bjartsýni gæti maður haldið fyrir slíkan listamann að ætla sér að mála andlitsmyndir og auk þess að sýna þær almenningi. En ásetningur listamannsins er á engan hátt að líkja eftir fyrirmynd- inni í hefðbundnum skilningi. Og oft er það þannig í þessum myndum, að sá er „situr fyrir” er gjörsamlega óþekkjanlegur og stundum nánast Kristin frá Skáipastöðum, 1972. Myndlist Gunnar B. Kvaran „ósýnilegur” þegar bakgrunnur, for- grunnur og viöfangsefnið renna saman í eitt í einum lit. Og þá er það kannski eitt „smáatriði” í mynd- inni, semgefurtil kynna um hvern er málað. Þetta eru því umfram allt málverk með stóru M-i, sem fjalla um ákveðna einstaklinga án þess kannski að líkja eftir þeim. Augljósar breytingar Eins og fyrr segir er hér um að ræöa nokkurs konar yfirlitssýningu á andlitsmyndum eftir Ágúst. Og ef við lítum yfir 30 ára portrettferil lista- mannsins (elsta andlitsmyndin er sjálfsmynd gerð 1954) tökum við eftir augljósum breytingum. I fyrri andlitsmyndum listamannsins er litur og teikning mun meira afger- andi og andlitin því oft efniskenndari og nálægari fyrirmyndinni. En sam- fara „stílbreytingum” í list Ágústs, sem koma sérstaklega fram í lands- lagsmyndum hans, þar sem hin ná- kvæma línuáhersla leysist upp og liturinn verður allsráðandi, er sem áhersla andlitsmálverksins færist frá því að vera mynd af manni yfir í að vera mynd um mann. Þannig virðist listamaðurinn fjarlægjast æ meir hina líkamlegu umgjörð ein- staklingsins og mála þess í stað, og þá oft í fáum dráttum, viðmót, hegð- un eða háttemi viökomandi per- sónuleika. Lifandi skemmtun Sýningin hér í Listmunahúsinu er eflaust ein sterkasta sýning lista- mannsins. Og þó svo aö andlits- myndimar séu nokkuð misjafnar eru þar inni á milli hreinir „gullmolar” eins og t.d. myndin af Kristínu frá Skálpastöðum. I þessari mynd nær listamaðurinn að samræma ákveöna sýn og listræna myndgerð þar sem hann tjáir á lifandi hátt aldur kon- unnar, hrörnun holdsins á sama tíma og málverkið lifir sem málverk meö sínum áberandi pensilstrokum og skrauti á kjólnum, sem er ekki annað en litir úr pensli á léreft. -GBK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.