Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1983, Síða 44
44
Sviðsljósið
Fyrrum eiginkona George Harri-
son kom að honum og
Maureen, fyrrum eiginkonu
Ringo Starr.....
Ain
semþú
þarft
erást
Bítlarnir blessuðu hafa
jafnan verið í sviðsljósinu frá
því þeir urðu frægir fyrir um
tuttugu árum. Hafa fjölmiðlar,
hverju nafni sem þeir nefnast,
keppst við aö segja frá þeim.
Þaö nýjasta um þá nú, er bók
sem nefnist The Love You
Make og er eftir fyrrum rótara
Bítlanna, þá Pete Brown og
Steven Gaines. Og þeir hafa frá
ýmsu forvitnilegu að segja sem
áður hefur ekki komið fram í
dagsljósiö.
Ein sagan er um George
Harrison sem nýlega hélt upp á
fertugsafmælið sitt. Sagan
sýnir að George hefur ýmislegt
verið fært áður en hann varð
fertugur.
Er sagan þannig að Harrison
hafi alltaf veriö veikur fyrir
eiginkonum vina sinna. I eitt
skiptið á konan hans fyrrver-
andi að hafa komið að honum
og Maureen, fyrrum eiginkonu
Ringo Starr þar sem þau voru í
góðu yfirlæti.
Hvernig hún brást við fylgir
ekki sögunni, en sumir
óprúttnir segja að hún hafi sagt
viö George: „All you need is
love...”
nv JlAuunAGUR 25. APRIL1983.
Sviðsljósj
Hún hefur svo sannarlega ástæðu til að „byrsta brjóstin" dúiian
Dorthe. Við sjáum hór hvar hún fær ,,brjóstbirtu" frá einum„brjósta-
haidaranum".
Dúllan
Dorth®
er topPurinn:
Hún hefur svo sannarlega
ástæöu til að „byrsta brjóstin”
hún Dorthe Rasmussen. Hún
hrósaði nefnilega sigri í keppn-
inni ungfrú topplaus sem haldin
var í Arhus ekki alls fyrir löngu.
Dorthe er 17 ára og er að sjálf-
sögðu frá Arhus. Dómararnir
munu allir hafa haft mikla
reynslu af að dæma í keppni sem
þessari og þeir voru sammála
um að „þau tvö” á Dorthe væru
fallegust.
Keppnin var nokkuð hörð því
að alls mættu 32 hnátur í keppn-
inni og „byrstu brjóstin”.
Á myndinni hér að ofan sjáum
við Dorthe fagna sigri og taka
við kampavínsflösku úr hendi
eins „brjóstahaldarans”. Púff,
þar flaug tappinn. Gaman,
gaman, góða brjóstbirtu við
fáum.
Þeir sem sáu myndina Urban Cowboy meö John
Travolta kannast vel viö hana þessa. Hún heitir
Debra Winger og þaö var einmitt í kúrekamynd-
inni meö John Travolta sem hún vakti fyrst veru-
lega athygli.
Debra var útnefnd til óskarsverðlaunanna fyrir
stuttu vegna leiks síns í myndinni An Officer and a
Gentleman. Þar þótti hún sína frábæra takta.
Eins og margir aörir í leikarastéttinni hefur
Debra sæmilegar tekjur og aö sögn fjárfestir hún
aöallega í fasteignum. Hefur eytt miklum fúlgum í
búgarð í Nýju Mexíkó og íbúð sína í Hollywood.
Aöur en Debra Winger hellti sér út í leikinn lagöi
hún stund á félagsfræöi. Mun hún hafa lagt mesta
áherslu á afbrot og fjallaöi um þá ógæfusömu sem
lenda í þeim. En eitthvaö fipaöist henni í fræðunum
og hún ákvaö að leita sér aö vinnu.
Og hún valdi leikinn. Ef aö líkum lætur sér hún
ekki eftir því nú þegar allt leikur í lyndi hjá henni á
hvíta tjaldinu.
Henni fipaðist
öriitið í félagsfræð-
inni henni Debru.
En hvað þýðir að
vera að tala um
kjarnafjölskyldu,
firringu, Webera og
Engla, þegar hvita
tjaidið erannars
vegar.
Og
vakna
þúmúi
Þymi-
rós
Nú, var það þessi fantur sem kallaði: „Stebbi Valgeirs, eruð þið
framarar alltafmeð jafnmikinn sofandahátt i mólflutningi ykkar?"
Biddu við, hvað heitir lúðinn aftur. Var hann ekki kallaður Steini slíp i
sveitinni igamla daga? Jú, þetta er Steini, maður. Hann ætti nú ekki að
segja mikið sá, gat sofnað standandi i tiu stiga gaddi hér áður.
—■Illlll II.I -»