Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL1983.
7
deytendur Neytendur Neytendur
Þessi fallegu hjú geta valið um það að vera sólbrún og falieg í stuttan tima og fá fljótt hrukkur eða að vera hvít og
falleg lengur.
aukist mjög síöustu 20 ár og er það
sett í samband við aukna tíðni sól-
baða og ferða til sólarlanda. Á
Islandi hefur tíöni húökrabba lítiö
aukist síöustu ár en þá má gera ráð
fyrir aukningu slíkra tilfella á
komandi árum, miðað við reynslu
annarra þjóða, sérstaklega ef við
bætist mikil og almenn notkun sólar-
lampaalltárið.”
Hann benti jafnframt á aö árangur
af lækningu algengustu tegunda húö-
krabba væri góður. En okkur kom
saman um aö ekki væri beinlínis
ástæða til þess að verða sér úti um
sjúkdóma einungis vegna þess að
þeir eru læknanlegir.
Þeir sem ekki trúa því að þeir fái
sjúkdóma af því að liggja lengi í sól
og sólarlömpum geta verið alveg
vissir um það að þeir auka þær
hrukkur sem þeir fá í tímans rás og
þær koma fyrr. „Mörgum finnst þeir
líta betur út þegar þeir eru sólbrúnir
en með tilliti til þeirra skaölegu
áhrifa sem útfjólubláir geislar geta
haft á húöina má kannski segja að
það sé val á milli þess að líta vel út í
skamman tíma eftir aö hafa verið í
ljósum og sól eða þess aö líta vel út til
lengri tíma,” sagði Sigurður.
Leiðbeiningar á
íslensku
I reglum um sólarlampa er kveðið
á um aö Ijósin skuli vera stillt í fyrir-
fram ákveöinn tíma sem ekki er
lengri en 30 mínútur. Stýrirofar og
stillingar skulu vera greinilega
merkt. A tækinu eiga að vera upplýs-
ingar um framleiöanda, innflytj-
anda, tegund og gerð tækisins og
gerð geislagjafa. Þá skal á áberandi
stað vera aövörunin: „Aðvörun—
útfjólublá geislun: Ovarleg notkun
getur valdið skaða á augum og húð.
Notið gleraugu. Fegrunarlyf og viss
önnur lyf geta valdið ofnæmi. Lesið
notkunarreglur.”
Hverjum lampa skulu fylgja
sérstök ljósagleraugu þegar hann er
seldur. Þá á seljandinn að gera kaup-
anda grein fyrir því hvemig nota á
lampann, hversu lengi í einu og
hversu langt frá geislanum menn
skuli vera. Einnig eiga að fylgja með
nákvæmar leiöbeiningar á íslensku
um notkun lampanna. Sérstaklega er
varað við að nota í þá aðrar pemr en
framleiöandinn gerir ráö fyrir.
„Notkunarreglurnar em auðvitaö
miöaðar viö perurnar. Lampinn
sjálfur hefur minnst að segja. Og ef
menn setja til dæmis sterkari perur í
lampann en hann er gerður fyrir
breytist bæði tíminn sem menn mega
vera í ljósunum og fjarlægðin frá
þeim. „Það getur veriö stórhættulegt
að setja aðrar pemr í lampann en
hann er gerður fyrir,” sagði Sig-
uröur.
Sigurður sagðist ekki búast við því
að leiðbeiningar á íslensku færu aö
fylgja lömpunum alveg strax því inn-
flytjendur þyrftu að fá nokkum
aðlögunartíma. En að honum
loknum yrði gengiö strangt eftir því
að þær væm með.
-DS.
Bandarískt neytendablaö:
VARAÐ VIÐ BLÝI í
NIÐURSUÐUDÓSUM
Blý getur valdið margvíslegum
sjúkdómum í mannslikamanum ef
þess er neytt í of stómm skömmtum.
Þannig er vitað aö það getur valdið
heila- og nýmaskemmdum,
skemmdum á taugum, flogum og
jafnvel dauða. Undanfarið þykjast
vísindamenn hafa fundið sannanir
þess að smærri skammtar en hingað
til hefur verið taliö geti valdið heilsu-
tjóni.
Þetta kemur fram í bandarísku
blaöi ætluðu neytendum sem við
fengum nýlega sent. Þar segir að
menn fái vemlegt blý í mat og drykk.
Mengun þar eystra veldur þarna
miklu. En stærsti valdurinn era
niöursuðudósir. Milli 10 og 15% af
þeirri fæðu sein Bandaríkjamenn
neyta emsoðin niöur,í dósir.Um 14%
af því blýi sem menn fá i sig er úr
þessum dósum. Ástæðan er sú aö
langflestar dósimar eru „límdar”
saman með blýi. Þó að mörg stór
fyrirtæki í bandarískum niðursuðu-
iönaði noti ekki blý er álitið að 33
milljarðar dósa séu „límd.i r” saman
með blýi. Nokkuð af þeim dósum
fáum við hingað til lands.
Niðursuðudósir em einkum settar
saman á þrennan hátt. Algengast er
að i þeim sé hólkur og laust lok og
botn. Hólkurinn er „límdur” saman
með blýi þannig að önnur brún hans
gengur yfir hina. Önnur aðferð sem
talsvert er notuð er að hita brúnir
sams konar hólks. Við hitann dignar
málmurinn og festist saman. Þá er
ekkert blý notað. Oft má þekkja
slíkar dósir á því aö blá rönd er á
samskeytunum. Hún er tU þess að
málmurinn ryögi ekki. Þriöja teg-
undin er svo dósir sem eru úr aðeins
tveim stykkjum, hliðum meö
áföstum botni og svo loki. Botn og
hliðar er þá steypt heilt og því ekki
„límt” saman með neinum auka-
efnum. Þessar dósir má þekkja á þvi
aö botn þeirra er ekki með hvössum
brúnum eins og algengast er.
Fyrir þá sem ekki vUja bæta blýi í
matinn sinn er um aö gera að velja
fremur síðartöldu tegundirnar tvær
sé þess kostur. Ef það er ekki hægt
skulu menn varast að geyma mat í
niðursuðudós sem búiö er að opna.
Sérlega á þetta viö um matvæli sem
innúialda sýru. Niðursoðnir ávextir
eins og mandarínur og ávaxtasafi
eru þar fremstir í flokki. Þessa vöru
getur líka verið slæmt að geyma í
gljúpum leirUátum. Leir inniheldur
oft nokkuð af blýi sem þannig getur
komist í matinn. Foreldrar skulu
einnig taka börnum sínum vara viö
því að drekka úr glösum með skraut-
legum myndum á, ef þessar myndir
eru rétt við glasbrúnina. Oft er blý
notað til aö búa tU þessar myndir og
ef börnin sleikja þær geta þau fengið
ísig blý.
-DS.
Þeir eru pottþéttir gluggarnir f rá Fagplast
Plastvörur hf
Lyngás 8 Sími 45244