Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Þingkosningar í Portúgal:
STÓRSIGUR
SOSIAUSTA
Portúgalski sósíalistaflokkurinn,
undir stjórn Mario Soares, vann
mikinn sigur í portúgölsku þingkosn-
ingunum í dag, eftir þriggja ára stjórn
hægri flokka þar í landi. Svo virtist
sem sósíalistar myndu 'hljóta 39%
atkvæöa en hlutu 28% í síöustu
kosningum. Soares, sem var forsætis-
ráðherra 1976 til 1978, virtist áhyggju-
fullur þegar hann las yfirlýsingu í til-
efni sigursins fyrir blaöamenn. Hann
sagði aö myndun stjórnar yröi viö-
kvæmt verkefni en aö portúgalskt
lýöræöi væri aö veöi ef sósíalistum
tækist ekki aö mynda stjórn. Soares
sagöi aö Portúgal, sem hefur lotiö
fjórtán ríkisstjórnum síöan byltingin
var gerö 1974, þyldi ekki aöra skamm-
lífa stjórn. Ef þing sæti ætíð skamma
hríð milli kosninga kæmi þaö í veg
fyrir aö lýöræöiö væri tryggt í sessi í
landinu.
Soares sagðist ekki myndu stofna
minnihlutastjórn, eins og hann geröi
1976, og aö sósíalistar myndu ekki
ganga til samstarfs viö kommúnista,
en portúgalskir kommúnistar eru
hlýönir Moskvu.
Soares sagöi aö Portúgal þarfnaöist
nýrra erlendra lána meö stuttum fyrir-
vara svo ríkið gæti staöið viö skuld-
bindingar sínar. Hann sagði að pólitísk
ró réöi úrslitum um þaö hvort efna-
hagslíf landsins næöi sér. Hann
ítrekaöi kosningaloforð um þaö aö
grípa til aögerða sem kæmu viöskipta-
lífinu vel og átti þar líklegast viö
kosningaloforð um aö sósíalistar
myndu opna hluta ríkisgeirans fyrir
einkafjárfestingu innan hundrað daga.
Og Soares ítrekaöi einnig þá stefnu
flokks síns aö gera víðtækt samkomu-
lag um kaup og kjör við verkalýðsfélög
og iðnrekendur.
Soares leiötoga sósialista í Portúgal tókst ekki að ná hreinum meirihluta.
Skæruliðar
kokhraustir
í El Salvador
Vinstrisinna skæruhöar telja
„gagnslausa eyöslu á fjármunum”
hernaðaraöstoö Bandaríkjanna viö
stjórnina í E1 Salvador. — Utvarp
þeirra segir aö óhjákvæmilega hljóti
stjórnarherinn aö lúta í lægra haldi
fyrr eöa síöar.
„Munið aö viö erum ekki einir í
þessu stríði. Þiö grafiö ykkur gröf
sjálfir ef þiö slettiö ykkur fram í,”
sagöi útvarpsstöö skæruliðanna í gær-
kvöldi. — Reagan Bandaríkjaforseti
kemur á morgun á sérstakan þingfund
fulltrúadeildarinnar til að tala máli 60
milljón dollara aukafjárveitingar til
hernaöaraöstoöar viö E1 Salvador.
Mikla athygli vekja í Washington
yfirlýsingar Clarence Long þing-
manns, sem nýkominn er frá E1 Salva-
dor. Hann hefur litla trú á stjórnar-
hernum í E1 Salvador og telur hann
þurfa mikla þjálfun áöur en hann geti
látið aö sér kveða. Leggur þingmaöur-
inn til aö þingið setji aö skilyrði fyrir
fjárveitingunni aö Reagan skipi sér-
stakan milligöngumann til samninga-
viöræöna milli stjórnarinnar og
uppreisnarmanna í E1 Salvador.
Skæruliöar hafa hrundið af staö
nýrri sókn á undanförnum vikum. Þaö
er taliö aö um 40 þúsund manns liggi
eftir í valnum síöan borgarastyrjöldin
hófst1980.
Farsóttin dular-
fulla var aðeins
móðursýki ein
— segir bandarískur læknahópur,
sem rannsakaði 950 sjúklinga
ávesturbakkanum
Dularfulli pestarfaraldurinn sem
hrjáöi hundruö arabískra táninga-
stúlkna á hernámssvæöinu á vestur-
bakka Jórdan átti upptök sín að rekja
til sálaruppnáms, eftir því sem banda-
rískur læknahópur kemst næst í
skýrslu sinni sem birt var í gær.
Læknamir rannsökuðu 943 veikinda-
tilfelli og vísa á bug ásökunum araba
um að Israelar hafi hmndiö veikinni af
staö í mars og apríl meö sýklaút-
breiöslu. Sömuleiöis hafnaði lækna-
hópurinn fullyröingum Israela um að
! veikindin hef öu veriö uppgerð ein.
1 Þegar öll flóknu vísindaheitin og út-
skýringarnar hafa veriö krufin má
draga saman í stuttu máli álit lækn-
anna á fyrirbærinu. Nefnilega móöur-
sýki.
Þeir telja aö upphafið hafi kannski
mátt rekja til óþefs sem lagði frá
náöhúsum skóla eins í Arrabah og eyð-
andi efnum sem notuð vora þar. Þar
gerðu fimmtíu fyrstu veikindatilfellin
vart viö sig. En útbreiöslan til annarra
skóla á vesturbakkanum telja þeir aö
eigi sér sálrænar skýringar. Hræðsla
hafi gripiö um sig viö fyrstu frétt-
irnar, gróusögur komust á kreik og
ímyndunarafliö sá fyrir afgangnum.
Sjúkdómseinkennin voru höfuöverk-
ur, móða fyrir augum og máttleysi í
útlimum.
Læknarnir telja að „smitberamir”
hafi aöallega verið útvarps- og blaða-
fréttir af fyrstu veikindatilvikunum en
þar var sjúkdómseinkennum lýst
nákvæmlega og sterklega gefiö í skyn
aö eiturgas eða sýklahernaöur væri
skýringin.
Þegar skólunum var lokaö tók fljót-
legafyrirveikina.
Nýjasta uppátæki fjailgöngugarpa er að varpa sér í fallhlífum fram af fjalls-
brúnum.
ÆTLA AÐ VARPA
SÉR í FALLHLÍF
OFAN AF FJALLS-
BRÚN í HIMALAYA
Fjórir franskir fjallgöngugarpar
ætla aö stökkva fram af fjallsbrún
7.710 metra hás fjalls í Nepal í næsta
mánuöi og koma niður eftir 15 mínútna
fall 3.000 metrum neöar.
Þeir ætla sér mánuö til þess aö klífa
tindinn Jannu í Himalaya-fjöllum en
niöurferöin veröur þetta mikið fljótari.
Fjórmenningarnir ætla aö vísu aö
nota fallhlífar og hafa æft sig í fall-
hlífarstökki af fjallsbrúnum í Ölpun-
um, sem raunar fleiri hafa gert. Vilja
þeir sýna fram á aö þetta sé líka unnt í
Himalayafjöllum.
Frakkarnir eru annars átta í feröinni
og hafa tvo Sherpa sér til aðstoðar.
Þeir lögðu af staö upp á f jalliö 15. mars
og voru komnir í 4.500 metra hæð 13
dögum síðar. 8. apríl voru þeir komnir
upp í bækistöö númer tvö í 5.500 metra
hæö og eru á leið til þriöju bækistöðvar
(af alls fimm eða sex) á leiöinni upp á
tindinn.
I þessum hópi er Roger Fillon (31 árs
póstmaöur frá Sciez-St. Gervais) sem
telur sig hafa veriö fyrstan manna til
þess að stökkva í fallhlíf fram af f jalls-
brún í Alpafjöllum. Þaö var í
september í fyrra.
Auðhringa-
ásakanir
Lakers enn
í deiglunni
Stjómir Bretlands og Bandaríkjanna
hefja í dag nýjar viðræður vegna
rannsóknar bandarískra yfirvalda á
tveim breskum flugfélögum sem sir
Freddie Laker sakaöi á sínum tíma um
vinnubrögð einokunarhringa til þess
aö flæma lággjaldaflugfélag hans út úr
Atlantshaf sf luginu.
Sir Freddie vildi kenna gjaldþroti
Laker-flugfélagsins því aö British Air-
ways, British Caledonian Airways,
Lufthansa, Swissair, PanAm og TWA
hefðu tekið höndum saman um aö
koma þessum keppinaut á N-
Atlantshafsleiðunum fy rir kattamef.
Ef rétt væri varðar þaö bandarísk
lög gegn auöhringamyndunum og
vinnubrögðum. Sérstök auöhringa-
ne&id bandaríska dómsmála-
ráðuneytisins hefur haft máliö til
athugunar.
Bresku flugfélögin tvö era ríkisfyrir-
tæki og mun breska stjórnin hafa
varað bandarísk yfirvöld viö því aö
ríkjasamskiptin gætu spillst ef flug-
félögin yrðu talin bótaskyld vegna
þessa máls. Bandaríkjamenn hafa
samt haldið áfram rannsókninni.
ðvenjulegur
pennavinur!
Yuri Andropov, leiötogi Sovét-
ríkjanna, hefur skrifað tíu ára
stúlku í Bandaríkjunum einkabréf
þar sem hann fullvissar hana um
að hún þurfi ekki að óttast Sovét-
ríkin.
Bréf þetta var gert opinbert í
Moskvu í gær, en í því segist Andro-
pov skilja kvíöa telpunnar fyrir
kjamorkustyrjöld. Kvaö hann
Sovétríkin gera allt sem í þeirra
valdi stæði til þess að kjarnorku-
vopnyröu eyöilögö.
Samantha Smith haföi orðið
fyrri til þess aö skrifa Sovétleið-
toganum bréf þar sem hún óskaöi
honum til hamingju meö skipanina
í embætti æösta manns Sovétríkj-
anna og skoraði á hann að hefja
ekki kjarnorkustyrjöld.
Andropow bauð henni aö heim-
sækja Sovétríkin og sumarbúðir
ungmenna.