Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Síða 16
16
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. APRIL1983.
Spurningin
Hvað finnst þér um úrslit
alþingiskosninganna?
Benedikt Þorvaldsson: Mér finnst
þetta þokkalegt, þurfa bara aö koma
sér saman.
Gunnar Markússon: Finnst þetta
svona sæmilegt.
Ingigerður Sigurðardóttir: Bara
ánægö með þetta.
Kristján Garðarsson: Mér finnst þetta
mjög óvænt, vonast til þess að það
breytist.
Sófaníus Benediktsson: Er ekki mjög
ánægðurmeðþau.
Hallur Guðmundsson: Mér finnast
þetta leiðinleg úrslit, vægast sagt
ömurleg.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Rall-áhugamaður skrifar:
Okkar„prinsipmárer
að fá að keppa í friði
brjóst Bimu og fleirum, einnig mætti
segja mér að þetta rall væri notað
sem auglýsing fyrir Náttúru-
vemdarráö og aðra sem að þeim
málum vinna.
Þær leiðir sem viö rallmenn notum
eru leiðir sem em löngu opnar.
Leiðir sem fararstjórar fara um meö
ferðamenn á rútum og tmkkum á
sumrin. Fara um friðað og ófriðaö
land og ekkert við það að athuga. Að
við lokum leiðum og tefjum fyrir
ferðafólki er smávægilegt atriði. Við
fáum leyfi frá yfirvöldum til að loka
smáleiðum í 1—2 tíma. Það hljóta að
vera undantekningartilfelli ef fólk
verður fyrir óþægindum og við
reynum að hafa sem besta samvinnu
við ferðafólk ef svo vill til aö það
verði á ferð á sama tíma og keppnin
ferfram.
Þeim hluta bréfs Birnu sem fjallar
um rallakstur í „söfnum” erlendis
ætla ég ekki að svara, ég held að hún
hafi nóg með að svara því sjálf.
Að lokum vil ég aðeins óska þess aö
við sem stundum rallakstur og aðrar
skyldar íþróttir eigum í framtíðinni
sem best samstarf við bæöi ráöa-
menn og almenning um þessi mál og
ég fullyrði aö í okkar hópi eru ekki
síður áhugamenn um íslenska
náttúru og góöa umgengni en annars
staðar. Gleðilegt rall-sumar!
„Ég fullyrði aö í okkar hópi eru ekki
síöur áhugamenn um íslenská
náttúru og góöa umgengni en annars
staðar,” segir Ævar Sigdórsson m.a.
í bréfi sinu.
Ævar Sigdórsson skrifar síöbúið svar
til Birnu Bjarnleifsdóttur:
I lesendadálki nýverið var les-
endabréf frá 1145-5964, sem við
nánari athugun reyndist vera Birna
Bjamleifsdóttir. Eitthvað virðist
Birna hafa verið rög viö að láta nafns
síns getið eins og margir sem hafa
lítiðframaðfæra.
Ég ætlaði alls ekki að svara þessu
bréfi, enda er þaö hálfgert rugl frá
upphafi til enda, en get þó ekki stillt
mig um að upplýsa Bimu um nokkur
atriði.
álokuðumvegum
Þú telur mig dæma alla íslenska
fararstjóra eftir atvikinu í Bemfirði
sem ég nefndi í grein minni fyrir
stuttu. Þetta er rangt, ég nefndi
þetta atvik aðeins til að sýna fram á
að þaö er enginn heilagur í þessu
máÚ, þ.e. umhverfisvernd. öllum
geta oröið á mistök, líka leiðsögu-
mönnum, en hvar er það fordæmi
sem þú dæmir alla rallmenn eftir?
Þetta franska rall sem um hefur
verið rætt og ritaö er ekkert
„prinsipimál”! hjá okkur, því fólki
sem stundar eöa hefur áhuga á rall-
f
akstri. Nei, okkar „prinsipmál” er
að við fáum aö keppa í friði á okkar
lokuðu leiðum á vegum sem em oft
og tíðum aflagðir að mestu (taktu
eftir, Birna, að ég segi á vegum en
ekki utan vega) eða lítið notuðum
leiðum, undir ströngu eftirliti.
Þú segir í bréfi þínu aö það hafi
ekki heyrst í mér fyrr í sambandi við
landvemdarmál. Satt er það að ég
hef haft lítinn áhuga á þeim opinber-
lega. En einhvem veginn finnst mér
hið væntanlega rall í sumar hafi
blásiö vígamóði og ættjaröarást í
IIPIIIIÍP®1®
„OKURTEIS AFGREIÐSLU-
MAÐUR HJÁ SKELJUNGL.”
—segir bréf rítari—Skel jungur biðst af sökunar
„Afgreiöslumenn okkar aðstoða fólk við að mæla olíu á bílum, frostlög og loft í
dekkjum,” segir Ólafur Eggertsson hjá Skeljungi í svari vegna kvartana bréf-
ritara.
3512-6457 skrifar:
Léleg þjónusta og dónaleg fram-
koma afgreiðslumanna bensín-
stöðvarinnar Skeljungs við Lauga-
veg 180 eru tilefni skrifa minna.
Málavextir em þeir að kl. 11.20 á
skírdag baö ég bensínafgreiðslu-
mann á umræddri bensínstöö að fylla
tankinn á bílnum mínum og enn-
fremur að aögæta hvort ekki þyrfti
að bæta olíu á bílinn. Hann kvað það
eingöngu vera í sínum verkahring að
setja bensín á bílinn og þar aö auki
væru þeir að fara að loka kl. 11.30.
Eftir dálítið þóf fékkst hann þó til að
setja olíu á bílinn. Ég reyndi aö leiða
honum fyrir sjónir að hans verksvið
væri þjónusta viö bíla. Þar væri inni-
falið að setja olíu á bílinn, mæla
frostlög og svo framvegis ef um þaö
væri beðið en hann kvað það
„helvítis kjaftæði” og aö ég ætti ekki
aö vera að rövla um hluti „sem þú
hefur ekki hundsvit á”.
Á meðan verið var að afgreiða mig
með bensíniö og ýmsa smáhluti kom
fyrrgreindur afgreiðslumaður inn og
spurði hvort ég ætlaöi að koma mér
út eða hvort hann ætti að læsa mig
inni (hvílík þjónusta).
Að öllu þessu samtali var maður
vitni sem ekki fékk afgreiðslu meö
bensín þrátt fyrir talsverða bið inni
því eins og afgreiðslumennirnir
sögðu: „Þaðerbúiðaðloka.”
Eg hef átt viðskipti viö fjöldann
allan af bensínafgreiðslustööum á
Reykjavíkursvæöinu en svona fram-
komu hef ég aðeins kynnst á bensín-
stöðinni Laugavegi 180.
Forráðamenn Skeljungs ættu ef til
vill aö upplýsa viöskiptavini sína
um hver sú þjónusta sé sem þeir
veita á bensínstöðvum sínum. Hvort
það sé eingöngu aö setja bensín á
bíla eða hvort einhver önnur þjón-
usta sé veitt, til dæmis að athuga olíu
ef um það er beðið.
Ennfremur er það von mín að fyrr-
greindur afgreiðslumaöur finni þaö
upp hjá sér að bæta kurteisi sína og
orðafar svo að hann hreki ekki fleiri
viðskiptavini frá aö versla við Skelj-
ung í framtíöinni.
Ólafur Eggertsson deildarstjóri
hjá Skeljungi: Ég vil biðja manninn
afsökunar fyrir hönd fyrirtækisins.
Ég vona aö þetta sé undantekningin
sem sannar regluna. Ég vona aö
menn fái yfirleitt ljúfmannlegar og
góðar móttökur á bensínstöðvum
okkar. Skírdagur var afskaplega
annasamur dagur á öllum bensín-
stöðvum. Það er þó engin afsökun.
Afgreiðslumenn okkar aðstoða fólk
við að mæla olíu á bílum, frostlög og
loft í dekkjum. Þeir eru spurðir um
margt og leysa úr spurningum af
stakri prýði. Við höfum ekki fengið
þær kvartanir aö við höfum ástæðu
til að ætla að þar sé miklu ábótavant.
„Auming-
inn sem
ekkert á...”
- enn um láglaunabætur
4429-0928 hringdi:
„Það gleymist ekki að senda
kosningapésa heim til fólks, jafn-
vel með álctruöum nöfnum við-
komandi. En þegar á að senda út
láglaunabætur, gleymast þeir sem
mest þurfa á þeim að halda. Ég er
með 60 þúsund króna árstekjur og
er auk þess með öryrkja á fram-
færi en fékk ekki láglaunabætur við
síðustuúthlutun.
Þetta minnir á vísuna:
Auminginn sem ekkert á
einattkinnmávæta.
Sællersáersjálfurmá
sínanauðsynbæta.”