Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Page 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL1983. 31 Sandkom Sandkorn Sandkorn Engan ósómahér Þingkonur LangholtskirKjukórinn vann aö plötuupptöku ckki alis fyrir löngu og fékk kórinn inni í Skálholtskirkju við upp- tökuna. Þó fylgdi þar böggull skammrifi. Á cfnisskrá kórs- ins var isicnskt þjóðlag, gamait og frægt, kallað „Ó mín fiaskan frtöa”. Skálhoits- kirkjuprestur lagði blátt bann við því að þess konar texti yrði sunginn í kirkjunni og horfði nú illa með upptök- una. En að iokum grófu menn upp texta að gömlu andlegu versi, „María meyjan skæra”, sem innihélt ekkert I um mjúkan munn eða annaö svo veraldlegt og féll textinn ákaflega vel að laginu, sem vonlegt er, enda ortur við það. Og þannig náðist að ljúka upptökum. En ætli skólasvcinar í Skál- holti forðum hafi ekki sungið veraldlegri texta en „Ó min flaskan fríöa” þegar sá var gáUinnáþcim. Það kom nokkuð á óvart, eftir áralanga kvcnréttinda- baráttu undir slagorðinu „konur eru menn”, að einn þingmanna KvennaUstans vUdi láta kalla sig „þing- konu”. Þetta gæti reynst vand- ræöalegt. Ingva Hrafni Jónssyni sjónvarpsmanni varð fótaskortur á tungunni, í sjónvarpi, þegar hann nefndi stefnu V-listans „stcfnu hinnar hagnýtu húsmóður”. Og gott ef ekki fleirum hefur fipast framburðurinn á þessu heiti. Allt í vasanum i kosningabaráttunni höfðu allir flokkarnir kosninga- skrifstofu á Blönduósi nema Framsókn. PáU Pétursson framsóknarframbjóöandi var spurður að því hverju þetta sætti og sagði hann það stafa af því að ckki gerðist þörf kosningaskrifstofu á Biönduósi: „Ég hef þetta alit í vasanum,” sagöi hann. Víömælandi hans spurði þá: „En hvað ef einhver hringir? Hver tekur þá upp tólið?” Eins manns dauði. .. Eins manns dauði er annars brauð, sagði bööullinn og hengdi bakara fyrir snúð. Fyrrum þingmaður Reyknes- inga, Jóhann Einvarðsson, kvartaði mjög yfir því að þó Framsóknarflokkurinn hefði fengiö átta þúsund atkvæði í Reykjavík og Reykjanesi hefði það aðcins dugað fyrir cinum þingmanni fyrir flokk- inn í þeim kjördæmum. Mcrkilegt nokk þá hafa engar slíkar umkvartanir heyrst frá framsóknarþingmönnum tveim, á Vesturiandi, sem komust inn á sextán hundruð atkvæðum'. Að gefnu tilefni... Það kom skemmtiiega út þegar sagöar voru fréttir af kosningunum í útvarpi á sunnudag. í lok fréttanna voru meginatriðin iesin upp að nýju og að lokum var þess getið að sigurvegarar kosninganna hefðu verið nýju flokkarnir tveir og hefðu kvennalistarnir fengiö þrjá þingmenn kjörna og Banda- lag jafnaðarmanna fjóra. Strax á eftir komu tilkynning- ar og var sú fyrsta frá presti i Reykjavík sem gekkst fyrir bænastund þar sem biðja átti fyrirþingiogþjóð'. Kvikmynd í undirbúningi Allir vita að kvikmyndin Með allt á hrcinu gekk af- burðavel og hlaut mikla að- sókn. Síðast þegar fréttist var aðsóknin komin yfir hundrað þúsund áhorfendur. Nú stefna aðstandendur myndar- innar að því að koma hagnað- inum af henni i lóg og undir- búa nú aðra kvikmynd sem hefur vinnuheitið „Óskudag- ur”. Þetta mun eiga að vera „þrillcr” og gerast á ösku- degi, þegar börn klæöa sig upp á og setja upp grímur og hræða fólk. Að vísu er þessi siður þekktari í útlöndum en hér og þá ekki á öskudegi, en þaöerannaömál. Þess má einnig geta að vcrið er að setja enskt tal á Með allt á hreinu og gera hana klára til sýninga á kvik- myndahátíðinni í Cannes. Geir féll á ísa- firði Nokkur gulikorn um ríkis- stjórnina, sem Geir Hall- grimsson vék af munni sér á landsirægum isaíjarðar- fundi, voru kornin sem fylltu mælinn. Eftir vesturför Geirs kvað Gunnar upp úr um aö hann gæti ekki lýst opinber- lega yfir stuðningi við lista Sjálfstæðisflokksius í þessum kosníngum og bar fyrir sig itekaðar og harkalegar ögranir Geirsliðsins. Vikuna fyrir kosningar spuröist það að ýmsir og jafn- vel óliklegustu sjálfstæöis- mcnn ætluðu að kjósa Alþýðu- flokkinn í Reykjavík og á Reykjanesi, jafnvcl víðar. Og nú eftir kosningar eru sumir þessara sjálfstæðismanna ófeimnir við aö staðfesta rétt- mæti þessa oröróms. Varla er það tilviijun að þetta cru ekki síst Gunnarsmcnn. Milli þeirra virðist hafa gcngið cin- hvers konar bylgja því eng- inn kaunast við skipulegar aðgerðir. Umsjón: ölafurB. Guönason Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Stjörnubíó, TOOTSIE: Listræn gamanmynd — gædd snilldarleiktilþrif um Stjörnubíó: Tootsie. Stjórn: Sydney Pollack. Handrit: Samkvœmt sögu Gelbert og Don McGuire. Kvikmyndahandrit: Larry Galbart og Murray Schisgal. Kvikmyndun: Owen Roisman. Aðalleikendur: Dustin Hoffman, Jessica Lange, Teri Garr, Dabney Coleman, Charles Durning, Bill Murray, Sydney Pollack, George Gaynes. Tónlist: Dave Grusin. Framleiðendur: Sydney Pollack og Dick Richards. Kvikmyndin Tootsie erein þessara mynda sem náði þeim árangri aö komast á varir almennings áður en hún var frumsýnd. Ástæðan var einkum sú að fregnir bárust um að þar færi hinn sérstæði og geðþekki góðleikari Dustin Hoffman með kvenhlutverk og kæmi hann fram í myndinni klæddur og tilfærður sem slík(ur). Það var því að vonum aö undirritaður settist niður með nokk- urn spenning í maga þegar þessi kvikmynd var frumsýnd í Stjörnu- bíói um helgina. Og þegar upp var staðiö varð ekki annað sagt en mynd- in væri glöggt dæmi um hvernig gera á vandaða og skemmtilega gaman- mynd. Leikstjóranum Sydney Pollack hefur meö lipurð og sínum ágæta húmor tekist aö skapa eftir- minnilega og að nokkru listræna kvikmynd. Þar hjálpast að frábær leikur undir agaðri leikstjóm, ein- föld en stílhrein kvikmyndataka, og síðast en ekki síst, ágætur sögu- þráður sem er vel útfærður fyrir aug- að. Víkjumaðsöguþræöinum. Michael Dorsey (Dustin Hoff- mann) er hæfileikaríkur leikari í New York. Hann hefur veriö atvinnu- laus svo árum skiptir og er orðinn hrútleiður á því hlutskipti. Eftir ýmsar vangaveltur grípur hann til þess óvenjulega ráðs (af karlmanni aö vera) að sækja um kvenhlutverk í vinsælli sápuóperu. Og viti menn: Með því að kvenklæða sig — -farða og -hæra fær hann hlutverkiö. Um- boðsmaður Michaels, George Fileds (Sidney Pollack) er lítt hrifinn af uppátæki Michaels, enda líöur ekki á löngu áður en Michael, í hlutverki Dorothy Michaels, lendir í vandræð- um. Engan grunar þó að ekki sé allt með felldu innan upptökuversins, því að Dorothy verður vinsælli meö degi hverjum og aðdáendabréfin skipta þúsundum. En Adam er ekki lengi í Paradís. Michael verður yfir sig hrif- inn af mótleikara sínum, Julie (Jess- ica Lange). Julie veit ekki annað en að Dorothy sé sú, sem hún þykist V XS& Dustin Hoffmann sem Tootsie. Meðferð hans á þessu h/utverki er oft á tiðum stórkost/eg. vera, og tekur því ástaratlotum hennar illa. En fyrst keyrir um þver- bak þegar faðir Julie, Les (Charles Durning), fullorðinn ekkjumaður, færir Dorothy demantshring, og biður um hönd hennar. John Van Horn (George Gaynes), læknahetjan í sápuóperunni, má heldur ekki vatni halda fyrir ást á Dorothy. Michael þykir nú málið gerast æöi flókiö. Þegar hún (hann) er svo beðin að framlengja samninginn við sjón- varpsstöðina um eitt ár, sér Michael fram á aö leika konu næstu árin. Hann ákveöur því að opinbera hiö rétta kyn sitt við næsta „hentuga” tækifæri og það gefst fyrr en var- ir. .. Undirtónninn í þessum söguþræði er grín og hispurslaust gaman. Og hann á að skemmta og gerir þaö. At- burðarásin er fremur hröð, þó aldrei of hröð, þannig að sagan gerist meira en hæfilega vitlaus, heldur líður hún léttleikandi áfram, full skondinna at- vika sem hvert um sig er eölilegt framhald af ööru. Oft er kvikmynda- vélinni (og reyndar klippingu) beitt snyrtilega til þess að undirstrika kímnina og gáskann. Aö öðru leyti er kvikmyndin fáguð. Þaö sem gerir kvikmyndina Tootsie svo ágæta sem hún er, er til- þrifamikill og oft á tíðum stórkost- legur leikur Dustin Hoffmanns í hlut- verki Michaels og Dorothy. Tjáning- in, persónusköpunin er framúrskar- andi hvort heldur þegar Hoffmann er í hlutverki Michaels eða í gervi Dorothy. Reyndar má segja að lát- bragöið sem hann notar í túlkun sinni á Dorothy sé meö bestu leiktilþrifum sem sést hafa á hvítu tjaldi. Aldrei hefur þessi einstaki leikari náð eins góðum tökum á hlutverki og þessu, vil ég segja, nema ef vera skyldi þeg- ar hann tjáði okkur sniildarlega ör- lög fangans á Dauðaeyju í myndinni Pappillion um áriö. Það er ekki fyrir ekki neitt sem Dustin Hoffmann var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á Michael/-Dorothy. Aðrir leikarar myndarinnar skila hlutverkum sínum með miklum ágætum. Sérstaklega vil ég nefna leikarana Jessicu Lange (sem reyndar fékk óskarinn fyrir þetta hlutverk sitt, besta leikkona í auka- hlutverki) og Dabney Coleman. Ann- ars er leikur næsta hnökralaus hjá aukaleikurum myndarinnar. Eins og áður sagði hefur Sydney Pollack tekist að skapa eftirminni- lega og að nokkru listræna mynd með Tootsie sinni. Þó finnst mér leik- stjórn hans ekki meö öllu óaðfinnan- leg. Myndin virkar á köflum um of yfirgengileg og stundum er eins og Pollack nái ekki að stilla saman stíg- andi miili samliggjandi atriða sem svo bitnar á heildarmyndinni. Kvikmyndin Tootsie er fyrst og fremst skemmtileg gamanmynd, vel unnin og rífur sig upp í hæsta gæða- flokk með þeim snilldarleik sem hún geymir. En hvort hún skilur eitthvað eftir sig efnislega er erfiöara að dæma um. Hitt er sýnna að leiktilþrif Dustin Hoffmanns og fleiri í mynd- inni eiga lengi eftir að sitja í áhorf- endum sem dæmi um þaö hvernig f ara á meö hlutverk svo að vel sé. -Sigmundur Ernir Rúnarsson. Kvikmyndir 4 Kvikmyndir SMÁ- AUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLT111 SÍMI 27022 Auglýsing um endurskoðun bifreiða og bifhjóla í Mosfellshreppi og á Sel- tjarnarnesi. Skoðun fer fram sem hér segir: Mosfellshreppur: Laugardagur 30. apríl 1983 frá kl. 8.15—12.00 og 13.00—16.00. Skoðað verður við Hlégarð. Seltjarnarnes: Laugardagur 7. maí, 1983 frá kl. 8.15—12.00 og 13.00—16.00. Skoðað verður við félagsheimilið á Seltjarnarnesi. Eftir framangreinda skoðunardaga mega eigendur og um- ráðamenn óskoðaðra bifreiða og bifhjóla í Mosfellshreppi og á Seltjarnarnesi búast við að ökutækin verði, án frekari aövör- unar, tekin úr umferð, hvar sem til þeirra næst. Þetta tilkynnist öilum, sem hlut eiga að máli. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi 25. apríl 1983.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.