Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Qupperneq 34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL1983. 34 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL FFH Fljúgandi furöuhlutir (FFH, ensk skammstöfun UFO) eru ekki nýlegt fyrirbæri í veraldarsögunni. Æva- gamlar heimildir geyma sagnir af einkennilegum hlutum á himni, laust fyrir aldamótin síðustu geröust fjöl- margir atburðir í Vesturheimi af þessum toga og enn á vorum dögum gerast þau tíöindi sem ekki veröa meö neinu móti skýrö meö venju- legum rökum. Eitt voldugasta vikublaö Banda- ríkjanna, National Enquirer, hefur heitiö milljón dollurum hverjum þeim sem fyrstur leggur fram skýlausa sönnun þess aö fljúgandi furöuhlutir komi utan úr geimnum og eigi sér ekki náttúrlegar orsakir eins og viö eigum aö venjast. Margir hafa borið fram ljósmyndir og einkennilega hluti sem sagöir eru komnir af himnum en sú harðskeytta nefnd manna, sem vikuritiö hefur faliö að kanna slíkar tillögur, hefur ekki ennþá fallist á aö reiða af hendi verölaunaféö, hvaö sem síðar veröur. Fjölmargir miöur heiðarlegir menn hafa gert sér aö féþúfu þann útbreidda áhuga sem almenningur hefur jafnan sýnt þessum fyrir- bærum; falsaöar ljósmyndir ganga kaupum og sölum, málmhlutir geröir af manna höndum eru sagðir óyggj- andi vitnisburöur fljúgandi furöu- hluta, óvandaðir skriffinnar drýgja tekjurnar meö upplognum sögum af viöskiptum manna og gesta utan úr geimnum. Kunnar eru frásagnir af grunsam- legum atburöum innan hins svo- nefnda Bermúda-þríhymings; þar týnast stærðar flutningaskip og flug- vélar hverfa eins og dögg fyrir sólu og svo rammt hefur sumum þótt kveöa aö þessum slysum, aö þríhyrn- ingurinn hefur veriö talinn einhvers konar samastaöur fljúgandi furðu- gabb eða veruleiki? Bandaríska vikuritiö National Enqulrer hefur heitiö milljón dollara verðlaunum þeim er fyrstur ieggur fram óyggjandi sönnunargögn um fljúgandi furðuhluti. Hér sést rannsóknanefnd vikuritsins að störfum — í forgrunni er einkennileg málmkúla sem sumir hafa talið vera frá fljúgandi f urðuhlut en ekki vildi nefndin fallast á þaö. hluta. Það er þó mála sannast aö þetta svæði sker sig ekki á neinn hátt úr hvaö dularfull fy rirbæri varðar og náin eftirgrennslan hefur hvaö eftir annaö sýnt og afhjúpað vísvitandi falsanir og lygar þess efnis. Þaö orö hefur lengi leikið á aö geimfarar Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna hafi margsinnis oröið áskynja einhverra þeirra fyrirbæra úti í geimnum sem trauöla veröa skýrð á venjulegan máta og þeir eru sagöir hafa tekið ljósmyndir af fljúgandi furöuhlutum á sveimi um- hverfis jöröu. Hiö vandaða uppsláttarrit um fljúgandi furöuhluti, „The Encyclo- pedia of UFOs”, telur ekkert hæft í þessum sögum; oftast er rangt farið með ummæli geimfaranna og ljós- myndirnar eiga sér eðlilegar skýr- ingar. En hitt er svo annað mál að þrátt fyrir blekkingamar og svikin gerast margir þeir atburöir sem benda ein- dregið til þess að óboðnir gestir séu á sveimi nær okkur og það virðist aö mörgu leyti óskynsamlegt að vísa öllum slíkum sögum á bug fyrirfram án þess aö kanna sannleiksgildi þeirra. Olafur Steinn Pálsson er maöur nefndur íslenskur. Hann hefur árum saman lagt stund á FFH-fræði, viðað, aö sér þekkingu, sótt ráðstefnur erlendis og kostað kapps um aö greina hismiö frá kjarnanum eftir því sem föng eru á. Viö munum ræöa við Olaf og greina lítilsháttar frá þessu skemmtilega áhugasviði, en vegna þess hve víötækt þaö er munum við skipta umfjöllun okkar í tvo hluta. I þessum hinum fyrri hluta skal greint frá FFH-sögnum aö f ornu og nýju, en í hinum síöari munum við bregöa ljósi á nýjustu viðhorf fróöra manna í málinu en þar hefur ansi mikil breyting oröið á seinni árum. Árás á fljúgandi diska fyrir 2.300 árum Mikla athygli vöktu ljósmyndir George Adamski af f 1 júgandi furðuhlutum, sem hann tók um miðbik aldarínnar. En eru þær ófalsaðar? „Eftirlitsflaugin” á inyndinni gæti að margra dómi verið einhver allt annar hlutur, svo sem partur úr ryksugu, ljósalampi með borötenniskúlum eða fóðurhylki úr kjúklingaverksmiðju. Fljúgandi f uröuhluta er víða getið í fomum heimildum, þar á meöal í biblíunni. Frásögnin af Móse á fjall- inu ber sterkan keim fljúgandi furðu- hluta, Abraham varð fyrir reynslu í sömu veru og fleiri góöir gyðingar þeirra tíma, en ótvíræðust er senni- lega sögnin af Elía spámanni, II. Konungabók, 2., en þar stendur skýr- um stöfum: „En erþeir hé'.du áfram og voru aö tala saman, þá kom allt í einu eldlegur vagn og eldlegir hestar og skildu þá að, og Elía fór til himins ístormviðri.” Olafur Steinn Pálsson hefur látið mér í té athyglisveröa frásögn af Alexander mikla, þar sem greinir frá hemaöarafskiptum fljúgandi furöuhluta. Frásögn þessi mun birt- ast í fræöiriti því sem Olafur hyggst gefaútinnantíðar. Ókunnur f lugher „Á ríkisdögum Alexanders mikla gerðust tveir undarlegir og athyglis- verðir FFH-atburðir sem báðir tengjast herferðum hans. Árið 329 f.Kr., er herinn var að reyna að komast yfir ána Jaxartes á (þáverandi) landamærum Indiands, steyptutveir skínandi „silfurskildir” sér yfir hann aftur og aftur og fældu bæði hestaogfíla. Áriö 322 f.Kr., meöan stóð á umsátri Alexanders um borgina Týros (?), hringsólaöi stór fljúgandi skjöldur yfir henni og fyrir aftan hann flugu fjórir minni skildir í þríhymdri fylkingu. Þúsundir her- manna úr báðum hinum stríðandi herjum fylgdust með í forundran. Skyndilega skaut stærsti skjöldurinn ljósgeisla aö virkismúrum borg- arinnar og hrundu þeir þegar. Svo skaut hann fleiri geislum á þá veggi og tuma er enn stóðu uppi og full- komnaði þannig eyðilegginguna. Árásarmennirnir streymdu nú inn í borgina en skildirnir svifu yfir henni uns sigur Alexanders var tryggöur; þá hvarf þessi ókunni flugher út í buskann á miklum hraða.” Guðir eða geimfarar? Þessi 2.300 ára gamla frásögn er stórfuröuleg fyrir margra hluta sakir. I fyrsta lagi er greint frá óbeinni hernaðaríhlutun fljúgandi furðuhluta og er engu líkara en stjórnendum þeirra hafi leiöst þófið og afráðiö að eyða vömum borgar- búa, svo að bardagi gæti hafist, hinum ókunnu áhorfendum til afþreyingar. I ööru lagi lýsir sögnin berlega notkun geislavopns, sem nú orðið kemur engum manni á óvart, en þeirrar tíðar sagnritarar höfðu engin tök á að gera sér í hugarlund upp úr þurru. Vera má að fleiri sagnir fomar geymi heimildir um þess háttar afskipti fljúgandifurðuhluta af styrj- öldum, þótt sagnaritarar segi þá þannig frá að gúðirnir hafi birst á himnum og lagt öðrum hvorum hernum lið í ormstum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.