Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Side 10
10
DV. LAUGARDAGUR 30. APRIL1983.
„Ætlið þér að segja mér að þér hafið sleikt tærnar á þesarigæs?"„Nei, nei,
hún var á skóml"
„ Haidið þér ég missi þá ekki gervitennurnar útúrmér. . .
Lfstagyðja aldarinnar
og ævmtýraskáldið
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir í
næstu viku leikrit um H.C. Andersen
og Jóhönnu Lovísu Heiberg. Er það
jafnframt síöasta verkefni
leikfélagsins á þessu leikári. Leikritið
nefnist Ur lífi ánamaðkanna og er eftir
Per Olov Enquist, sænskan höfund,
sem á örfáum árum hefur skipað sér í
fremstu röö leikritahöfunda á Norður-
löndum. I þessu verki byggir Enquist
víða á staðreyndum um þessar frægu
persónur, sem f jallaö er um, svo sem
æviminningum Andersens og Jóhönnu
Lovísu, en báðar þessar bækur hafa
þótt með merkilegri ævisögum. Hann
leyfir sér þó að sjálfsögðu frjálsræöi
rithöfundarins.
Það er Stefán Baldursson, sem þýtt
hefur leikritið, en leikstjóri er Haukur
J. Gunnarsson. Leikendur eru fjórir:
Guðrún Ásmundsdóttir leikur Jóhönnu
Lovísu, Þorsteinn Gunnarsson H.C.
Andersen, Steindór Hjörleifsson
Jóhann Heiberg og Margrét Ölafsdótt-
ir ónafngreinda gamla konu.
Listagyðja aldarinnar
Jóhanna Louisa fæddist árið 1812 í
Danmörku. Móðir hennar rak eins
konar krá og á kránnni ólst telpan í
raun upp. Ekki var hún gömul þegar
hún fór að dansa fyrir gestina. Mátti
vart á milli sjá, hvort gestir kæmu á
krána til að fá sér bjór eða horfa á
telpuna dansa. Þar kom að vinur
móðurinnar kom aö máli við hana og
hvatti hana til að koma telpunni í
ballettskóla. Og í Konunglega ballett-
skólanum var Jóhönnu tekið opnum
örmum. Hófst þá hinn glæsti ferill
Jóhönnu Louisu á listabrautinni enda
var hún gjarnan kölluö listagyöja ald-
arinnar.
Jóhanna var aðeins þrettán ára,
þegar hinn þekkti rithöfundur, Jóhann
Ludvig Heiberg, sá hana á sviöi. Hann,
eins og svo margir aðrir, hreifst af
henni, þótt hann væri 23 árum eldri en
hún. Jóhann var mikill áhrifamaður í
dönsku menningarlífi og þar kom aö
hann bað Jóhönnu. Þótt hún hefði get-
að valið úr öllum karlpeningi Dan-
merkur og víöar, játaðist hún honum,
ekki af því aö hún elskaði hann heldur
frá „skynsemissjónarmiði”. Brúðkaupið
átti sér stað í júlí 1831, hún 19 ára, hann
41 árs.
Jóhann Heiberg haföi aldrei verið
við kvenmann kenndur. Hann þótti
ekkert fyrir augað og heldur var hann
erfiður í umgengni. Hann var óskap-
lega íhaldssamur og vanafástur og á
tíðum átti hann við mikið þunglyndi að
stríða. Jóhanna var trú og trygg eigin-
manni sínum alla tíö og fyrir það
Þorsteinn Gunnarsson og Margrót
Ólafsdóttir i hlutverkum H. C.
Andersen og gömlu konunnar.
Verð-
laiuia-
höfundur
Höfundur Ánamaðka er Per Olov
Enquist. Hann ersænskur, fæddur árið
1934 og á örfáum árum hefur hann
skipaö sér í röð fremstu leikrita-
höfunda á Noröurlöndum. Eftir hann
liggur fjöldinn allur af verkum og
fyrir eitt þeirra, Legionarena eða
Málaliðana, hlaut hann bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið 1969.
Meðal annarra leikrita hans eru
Maðurinn á gangstéttinni, Chez Nous
ogTilFedru.
Ur lífi ánamaðkanna eða Frán
regnormamas liv er annaö verk
Enquist, sem tekið er til sýningar hér-
lendis. Hið fyrra var Nótt ástmeyj-
anna ersýnt varí Þjóöleikhúsinu 76.
Ánamaökar hafa hvarvetna þar
sem þeir hafa verið settir upp veriö
mjög vinsælir og hlotið einróma lof
gagnrýnenda. Þetta er tiltölulega nýtt
verk eða frá árinu ’81. Þaö ár voru
Ánamaðkar settir upp í Konunglega
leikhúsinu íKaupmannahöfn. Þarvoru
vinsældir slíkar að um tíma var tekið
upp það ráð að hver maöur gat ekki
fengið nema tvo miöa keypta á
sýningu. Skömmu eftir að Konunglega
leikhúsið frumsýndi Ánamaðka var
þaö frumsýnt í Stokkhólmi. Síöar hefur
leikritið verið sett upp á ýmsum
stöðum á Norðurlöndum við miklari
vinsælir. Þá mun Ingmar Bergman
vera að vinna að uppfærslu Ánamaðka
í Miinchen og í París verður verkiö og
sýnt innan skamms, svo og í Banda-
ríkjunum.
-KÞ.
Þeir voru margir á þessum árum,
sem tilbáðu Jóhönnu. Einn þeirra var
skáldiö Bjömstjeme Bjömson, enda
sagöi hann einhverju sinni: „Ef frú
Heiberg hefði leitt dönsku stjórnina
1864, hefði ég aldreifariö frá Slésvík! ”
Jóhanna fékkst töluvert við skriftir,
auk ævisögunnar á sinni tíð. Meöal
annars samdi hún mikið af ljóöum og
skrifaði fjöldann allan af bréfum. Hún
léstáriö 1890.
„Barnaævintýri
ekki bókmenntir!"
H.C. Andersen þekkja allir. Hann
fædist 1805 í Oðinsvéum á Fjóni. Hann
var sonur fátæks skósmiðs sem lést
fyrir aldur fram áriö 1816. Móðir hans
giftist aftur og sonurinn var settur í
læri hjá ýmsum iönaðarmönnum, en
einhvern veginn tolldi hann hvergi.
1919 hélt hann til Kaupmannahafnar til
að veröa frægur, eins og hann sagði
sjálfur. Hann lést 1875
Það var einmitt í Kaupmannahöfn,
sem leiðir þeirra H.C. Andersen og Jó-
hönnu Heiberg lágu saman. Árið 1821
léku þau bæði í Armida, ballett eftir
Svíann Karl Dahlén. H.C. Andersen lék
þar tröll, Jóhanna engil! Það var þó
ekki fyrr en síöar að þau kynntust að
einhverju marki.
H.C. Andersen byrjaði snemma aö
semja ævintýri, enda lifði hann
gjarnan í dagdraumum sem barn.
Hann vildi fremur leika sér að
brúðuleikhúsi, sem faðir hans bjó til
handa honum en slást við strákana í
nágrenninu. Og hans líf og yndi var að
segja hinum krökkunum ævintýri sem
hannbjótilsjálfur.
Þegar hann kynntist Heiberg-hjón-
unum var Jóhann leikstjóri Konung-
lega leikhússins í Höfn. Ekki nóg með
það, hann var einnig leiðandi afl í
leikritaskrifum og því ofarlega á blaði
í lista- og menningarlífi borgarinnar.
H.C. Andersen fannst ekki mikið til
sinna skrifa koma þegar hann kynntist
skrifum Jóhanns, enda sagði hann
barnaævintýri ekki vera bókmenntir.
Hann vildi skrifa eins og Jóhann. Hann
segir í bréfi, sem hann skrifaöi eitt
sinn. „Bara ef ég hefði eitthvað af
sjálfsrýni Jóhanns, myndi ég fljúga! ”
En þrátt fyrir allt og allt heldur H.C.
Andersen sig að mestu við ævintýrin,
góðu heilli! Kannski vegna þess að
Jóhanna blés í hann eldmóöi til þess.
Að minnsta kosti er talið, að kveikjuna
í nokkur ævintýra þessa ástsæla
höfundar hafi hann sótt til Jóhönnu
Heiberg, má þar nefna Ævintýið um
litlu stúlkuna með eldspýturnar.
-KÞ tók saman.
elskaði Jóhann hana. Þó var eitt sem
mjög skyggöi á samband þeirra alla
tíð, en það var bamleysið.
Guðrún Ásmundsdóttir og Steindór Hjörleifsson leika Heiberg-hjónin.
IDV-B.Ó.I
Höfundur Úr iifi ánamaðkanna, P.O. Enquist.