Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 30. APRlL 1983.
15
í TILEFNI
75ÁRA
AFMÆLIS
FÉLAGSINS
hefur Knattspyrnufélagiö FRAM opiö hús á afmælisdaginn 1.
maí að Átthagasal Hótel Sögu frá kl. 16.
Félagar, velunnarar og gestir hjartanlega velkomnir.
Stjórn Knattspyrnufélagsins
FRAM
LAUNAFÓLK—
REYKVÍSK ALÞÝÐA
Hátíöahöld fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, BSRB og INSI
veröa haldin í Reykjavík 1. maí á alþjóðlegum baráttudegi
verkalýðsins.
Safnast verður saman við húsnæði ASI á horni Grensásvegar
og Fellsmúla, Grensásstöð SVR, kl. 13, til kröfugöngu.
Gangan leggur af stað stundvíslega kl. 13.30, en gengiö verður
um Fellsmúla, Safamýri, Ármúla, Hallarmúla, Suðurlands-
braut, Reykjaveg að Laugardalshöll þar sem haldinn verður
baráttufundur verkafólks 1. maí 1983.
Hefst hann kl. 14.15 stundvíslega með samfelldri dagskrá.
Ræðumenn verða Snorri S. Konráðsson, formaður Félags bif-
vélavirkja, Albert Kristinsson, fyrsti varaformaöur BSRB og
Gunnar Tryggvason, formaöur INSI.
Auk þess koma fram Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Kristín
Olafsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Kolbeinn Bjarnason og
Ársæll Másson, Þursaflokkurinn, Jón Júlíusson og Jón Hjart-
arson. Harmóníkusveit Lúðrasveit verkalýðsins, Lúörasveitin
Svanur og Samkór Trésmiöafélagsins.
Kynnir er Kjartan Ragnarsson.
Fundarstjóri Thorvald Imsland, formaöur fulltrúaráös verka-
lýðsfélaganna.
I anddyri Laugardalshallar veröur kynning á starfi ASI og
BSRB.
Mætum sem flest í gönguna og á fundinn í Laugardalshöll.
1. MAÍ NEFND.
Glerblástur og sölusýning
Við höfum opið
alla daga nema mánudaga,
frá kl. 10—12 og 13 30— 17.00
Verkstœðið
liggur við Vesturlandsveg,
u.þ. b. 30 km frá Lœkjartorgi,
(500 m vestan við Kléberg)
Lokað frá 16. maí—14. júní
Munir okkar
eru einnig til sýnis og sölu hjá:
íslenskum heimilisiðnaði
Kristjáni Siggeirssyni
Versluninni Róm, Keflavík.
Sigrún & Sören
BERGVIK
Bergvík2, Kjalartiési, 270 Varmá, símar 66038 ag 67067.
Tæknilegar upplýsingar
Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi
áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu
brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en
þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi
steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast.
Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu
sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg
tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli.
Steypan verður því þynnri sem meira vatni er bætt í hana. Of mikið vatn í steypu hefur
skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með.
í steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og
þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni hf til að auka
veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auðvelda niðurlögn hennar.
Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða
þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að
þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni.
Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með
flotefninu Flot 78.
Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel við niðurlögn steinsteypu að
ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarhreiður. Vandið til allrar
meðferðar steinsteypu.
Alkalískemmdir
[ þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr
Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér stað milli
sementsins, saltsins og steinefnanna.
Kísilsýraísteinefnunum myndar með alkalíum sementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem
sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í
sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna
er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á
boðstólum óvirk steinefni.
Steinsteypukaup
Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í
Bandaríkjunum og fyrst slíkra stöðva íEvrópu.Steypustöðinhf varreistá Islandiárið1947.
Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sina. Við reynum að fullnægja óskum
viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða
4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson
skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing.
Steinsteypupantanir
Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum.heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða
33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða
um leið og hún er afhent.
Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er
ekki óskað.