Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR 30. APRlL 1983. 15 í TILEFNI 75ÁRA AFMÆLIS FÉLAGSINS hefur Knattspyrnufélagiö FRAM opiö hús á afmælisdaginn 1. maí að Átthagasal Hótel Sögu frá kl. 16. Félagar, velunnarar og gestir hjartanlega velkomnir. Stjórn Knattspyrnufélagsins FRAM LAUNAFÓLK— REYKVÍSK ALÞÝÐA Hátíöahöld fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, BSRB og INSI veröa haldin í Reykjavík 1. maí á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Safnast verður saman við húsnæði ASI á horni Grensásvegar og Fellsmúla, Grensásstöð SVR, kl. 13, til kröfugöngu. Gangan leggur af stað stundvíslega kl. 13.30, en gengiö verður um Fellsmúla, Safamýri, Ármúla, Hallarmúla, Suðurlands- braut, Reykjaveg að Laugardalshöll þar sem haldinn verður baráttufundur verkafólks 1. maí 1983. Hefst hann kl. 14.15 stundvíslega með samfelldri dagskrá. Ræðumenn verða Snorri S. Konráðsson, formaður Félags bif- vélavirkja, Albert Kristinsson, fyrsti varaformaöur BSRB og Gunnar Tryggvason, formaöur INSI. Auk þess koma fram Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Kristín Olafsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Kolbeinn Bjarnason og Ársæll Másson, Þursaflokkurinn, Jón Júlíusson og Jón Hjart- arson. Harmóníkusveit Lúðrasveit verkalýðsins, Lúörasveitin Svanur og Samkór Trésmiöafélagsins. Kynnir er Kjartan Ragnarsson. Fundarstjóri Thorvald Imsland, formaöur fulltrúaráös verka- lýðsfélaganna. I anddyri Laugardalshallar veröur kynning á starfi ASI og BSRB. Mætum sem flest í gönguna og á fundinn í Laugardalshöll. 1. MAÍ NEFND. Glerblástur og sölusýning Við höfum opið alla daga nema mánudaga, frá kl. 10—12 og 13 30— 17.00 Verkstœðið liggur við Vesturlandsveg, u.þ. b. 30 km frá Lœkjartorgi, (500 m vestan við Kléberg) Lokað frá 16. maí—14. júní Munir okkar eru einnig til sýnis og sölu hjá: íslenskum heimilisiðnaði Kristjáni Siggeirssyni Versluninni Róm, Keflavík. Sigrún & Sören BERGVIK Bergvík2, Kjalartiési, 270 Varmá, símar 66038 ag 67067. Tæknilegar upplýsingar Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast. Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli. Steypan verður því þynnri sem meira vatni er bætt í hana. Of mikið vatn í steypu hefur skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með. í steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni hf til að auka veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auðvelda niðurlögn hennar. Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni. Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með flotefninu Flot 78. Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel við niðurlögn steinsteypu að ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarhreiður. Vandið til allrar meðferðar steinsteypu. Alkalískemmdir [ þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér stað milli sementsins, saltsins og steinefnanna. Kísilsýraísteinefnunum myndar með alkalíum sementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á boðstólum óvirk steinefni. Steinsteypukaup Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í Bandaríkjunum og fyrst slíkra stöðva íEvrópu.Steypustöðinhf varreistá Islandiárið1947. Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sina. Við reynum að fullnægja óskum viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða 4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing. Steinsteypupantanir Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum.heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða 33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða um leið og hún er afhent. Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er ekki óskað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.