Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Síða 29
DV. LAUGARDAGUR 30. APRIL1983.
29
Að henda stelnl í himininn
(en hæfa ekkl)
Ég vil geta þess strax í upphafi, ef
þaö hefur farið framhjá einhverjum,
aö þaö er búiö aö kjósa og í tilefni
kosninga voru vegir ruddir, meira aö
segja þjóövegur 711 því að nú til dags
er bíllinn orðinn slíkur farartálmi aö
menn komast ekki spönn frá rassi ef
snjór er á samgönguleiðum.
Áöur en bíllinn kom til sögunnar
fyrir alvöru fóru menn allra sinna
feröa þegar þeim sýndist og hvemig
sem færö var og veður en nú liggur
viö aö fólk veröi úti í stórum stíl í
miðborg Reykjavíkur ef eitthvað er
aö veðri og hjálparsveitir eru kallað-
ar út til aö leita aö fólki á Breiðholts-
braut og í Austurstræti.
Bílar eru nefnilega ekki fram-
leiddir til aö standast íslensk veöur
f rekar en þ jóðvegur 711.
Sumar
En nú er sumariö komiö og sólin
farin aö hækka á lofti og menn famir
aö búa sig undir aö fjölga
svokölluöum atvinnutækifærum og í
tilefni af því hefur möskvastærð neta
verið minnkuö rækilega svo aö hægt
veröi aö gera helming togaraflotans
út á homsílaveiðar í sumar. Eins og
allir vita hefur sá stofn ekki verið
nýttur neitt aö ráöi hingaö til og ætti
því aö vera óhætt aö veiða talsvert af
honum, a.m.k. fyrir innanlands-
markaö, því aö eins og staöa
krónunnar okkar er i dag hæfir
hornsílið trúlega einna best greiðslu-
getu okkar.
Aö undanfömu hefur mönnum
oröiö tíörætt um þaö sem miður
hefur fariö í þjóöfélaginu og hafa
þeir bókstaflega ekki séö neinn
ljósan punkt í tilvemnni þó að launin
eigi aö hækka um 20% fyrsta júní og
krónan sé farin aö nálgast það aö
vera jafnlítils viröi og hún var fyrir
myntbreytinguna. Mér finnst þetta
hvort tveggja gleðiefni því aö þetta
Benedikt Axelsson c
sýnir þaö að stjórnmálamenn eru
enn aö stjóma landinu eins og þeir
hafa gert undanfama áratugi. Ef við
hins vegar fengjum f réttir af því einn
góðan veðurdag aö laun ættu ekki aö
hækka og krónan ekki aö lækka lægi
beinast viö aö álykta sem svo að
stjórnmálamenn heföu fariö heim og
lagtsig.
Gúrkutíð
Aðalhitamáliö í dag, fyrir utan
flensuna sem herjar á okkur, er
einkasala á eggjum. Eins og málum
er háttaö nú ráða kaupmenn veröinu
og þess vegna er þaö misjafnt sem er
dálítið bagalegt fyrir okkur
neytendur þar sem viö eigum það á
hættu aö kaupa dýmstu eggin þegar
viö ætlum okkur aö kaupa þau ódýr-
ustu og öfugt. Þaö hljóta allir aö sjá
hvaö þetta er slæmt og þar aö auki
hlýtur að vera miklu heppilegra og
ódýrara aö setja á laggirnar sex
manna nefnd sem ákveður verðið
heldur en aö láta mörg þúsund kaup-
menn vera aö þessu hvem í sínu
homi.
En ekki em allir sammála þessu
og sumir tala um einokun varðandi
verðlag á landbúnaöarvörum eins og
hún sé neikvætt fyrirbrigði sem er
alls ekki rétt því aö allir vita að þaö
er keppikefli framleiöenda aö fá sem
allra minnst verö f yrir vöm sína.
Hafiö þiö ekki tekiö eftir því aö
gúrkuframleiðendur og tómata- em
alltaf aö lækka veröið frá því aö
þessar vörutegundir koma fyrst á
markað og þar til þeir keyra afgang-
inná haugana?
Bein útsending
Þaö þótti mikil framför hér á landi
þegar hægt var aö sjónvarpa beint
inn í stofur landsmanna helstu at-
buröum íþróttasögunnar og ég held
aö þaö megi fullyröa aö aldrei hefur
gleöi landsmanna verið jafneinlæg
og sönn og þegar viö fengum aö sjá
danslagakeppni Evrópu beint sl.
laugardag. Mér hefur stundum
fundist sjónvarpið ekki fylgjast nógu
vel meö þeim atburöum sem hæst
ber í heiminum en á undanförnum
mánuöum hefur oröiö gleöileg
breyting á þessu. Meö tilkomu
jarðstöðvar getum viö hvenær sem
okkur sýnist séð Liverpool sigra
Man. United 2—0 eöa 3—2 klukkan
fimm á laugardegi í stað þess aö fá
aðeins fréttir af þessum merkisviö-
buröi tíu mínútur yfir fimm þennan
sama laugardag og eins og ég gat um
áöan vitum við Islendingar allir upp
á hár í dag hver sigraði í Evróvisjón
söngvakeppninni í staö þess að ef
sjónvarpið okkar hefði ekki sent
okkur úrslitin beint heföum viö
kannski þurft aö lesa um þennan
merkisatburö í mannkynssögunni
eftir svosem30ár.
Ég vil hér með hvetja sjónvarpið
til aö halda áf ram á þessari braut.
Stjórn
Og nú eru stjórnmálamenn aö
reyna aö mynda ríkisstjóm en
gengur jafnilla aö koma sér saman
um hlutina og mér gekk aö tjónka viö
Blesa gamla hér í eina tíö. Hann var
nefnilega þannig aö ef ég vildi fara í
suöur vildi hann í noröur og ef ég
danglaöi í hann meö kaöalspotta
skvetti hann upp rassinum, hristi
hausinn en stóöaöþví búnu kjur.
Viö fáum örugglega rikisstjórn
einhvern tíma þótt viöræður stjórn-
málamanna minni mig oft á vísuna.
Sá hæfnisskortur maður minn
er mestur scm ég þekki
að henda steini í himininn
en hæfa ekki.
Kveöja
Ben. Ax.
Gagnfræðaskólínn á Höfn
Kennara vantar.
Aöalkennslugreinar:
enska, íslenska og raungreinar.
Húsnæöi til staðar fyrir viðkomandi.
Uppl. gefur skólastjóri í síma (97)-8348 og (97)-
8321.
Dvöl
í orlofshúsum Iðju
Iðjufélagar sem óska eftir að dvelja í orlofshúsum félagsins í
Svignaskarði sumarið 1983 verða að hafa sótt um hús eigi
síðar en þriðjudaginn 17. maí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins,
Skólavörðustíg 16.
Dregið verður úr umsóknum á skrifstofu félagsins 18. maí kl.
16 og hafa umsækjendur rétt til aö vera viöstaddir.
Þeir félagar sem dvaliö hafa í húsunum á þrem undanförnum
árum koma aðeins til greina ef ekki er fullbókað.
Leigugjald verður kr. 1.200,- á viku.
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt orlofshús til ráðstöfunar handa
Iðjufélögum sem eru frá vinnu vegna veikinda eða fötlunar og
verður það endurgjaldslaust gegn framvísun læknisvottorðs.
STJÓRN IÐJU
Brídgespflarar
TOPS er þaö nýjasta í bridgeheiminum og fæst nú
hjá okkur.
Allt fyrir bridgespilara og aðra spilamenn.
Spil, spilabakkar, sagnbók o.fl. o.fl.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Frímerkjamiðstöðin h/f,
Skólavörðustíg 21A, sími 21170,
Reykjavík.
A ATLAS eru
þér allir
vegir M
færir £f
Aukið öryggi fyrir þig, þína og þá sem
á vegi ykkar verða. ATLAS hjólbarðar .
Minni bensíneyðsla, meiri ending.
Otsölustaðir: Kaupfélögin um allt land
SAMBANDiÐ
VELADEILD
HJÓLBARÐASALA
Höfðabakka 9 ^83490-38900
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM