Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Page 3
DV. LAUGARDAGUR25. JUNI1983.
3
Forseti gróðursetti þrjú tré á Flateyri:
Iss, þetta þýðir ekkert,
roiiumar éta þetta strax
— sagði eitt barnanna, en forseti skipaði þegar nefnd til varðveislu plantnanna
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, kom til Flateyrar í gærmorgun,
á fjórða degi opinberrar heimsóknar
sinnar um Vestfirði.
Hreppsnefndir Flateyrar- og Mos-
vallahrepps héldu móttöku í bama-
skólanum. Síðan gróðursetti forsetinn
þrjú tré fyrir framan kirkjuna á Flat-
eyri. Eitt bamanna, sem þar var við-
statt, lét í ljós eíasemdir um að þessi
gróðursetning væri til nokkurs gagns
og sagði: „Iss, þetta þýðir ekkert,
roilurnar éta þetta strax.” Forsetinn
brá þá hart við og skipaði nefnd til að
annast varðveislu plantnanna. Gaf hún
sjálf kost á sér og nokkrir aörir réttu
upp höndina til merkis um að þeir
tækju einnig sæti i nefndinni. Aö þessu
loknu skoðaði forsetinn frystihúsið
Hjálm á Flateyri og ræddi þar við
starfsfólk.
Hreppsnefndin á Suðureyri hélt for-
setanum hádegisverðarboð og að því
loknu var vígt nýtt bamaheimili og
haldin móttaka þar fyrir alla bæjar-
búa.
Síðdegis í gær kom forsetinn til Isa-
fjarðar. Móttökuathöfn bæjarstjómar
fór fram í Faktorshúsinu sem er eitt
elsta hús bæjarins, byggt 1765. Það hef-
ur nú verið gert upp og verður í fram-
tíðinni notað til gestamóttöku á vegum
bæjarstjórnar.
Var húsið vígt í þessu skyni við mót-
töku forsetans. Forsetinn ávarpaði
síöan Isfirðinga á Austurvelli þar sem
safnast hafði saman mikill mannfjöldi.
I ávarpi sínu sagöi hún meðal annars
að heimsóknin til Vestfjarða, þar sem
hún hefði séð atorku Vestfirðinga,
hefði bætt við bjartsýnishugsjón sína.
Lagöi hún áherslu á að Islendingar
ættu að halda innbyrðis frið og frið viö
aðrar þjóðir og fá þær til að vinna að
því sama.
I gærkvöldi hélt bæjarstjórn Isa-
fjarðar forsetanum samsæti í mennta-
skólanum en aö þvi loknu var opið hús
fyrir alla bæjarbúa. I dag hélt forset-
inn áf ram f ör sinni til Súðavíkur en siö-
Hér gefur forsetinn kost á sér i nefnd til að vinna að verndun plantnanna á Flateyri.
DV-símamynd GVA.
an mun hann sigla inn Isafjaröardjúp ungarvíkur í kvöld. Heimsókninni lýk-
með varðskipi, með viðkomu á Reykja- ur á morgun.
nesi og í Vigur. Komið veröur til Bol- -ÓEF/PÁ.
NÝTT
m
A
BÖRNIN
NÝ
BÚÐ
Á
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6
Barnafataverslun Skólavördustig 6 Simi
10470.