Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Qupperneq 7
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNI1983.
7
Reykingar
ekki auk-
ist að ráði
I maíhefti Hagtíðinda voru birtar
tölur um umtalsverða aukningu á
tóbaksinnflutningi. Þar segir að inn-
flutningur á vindlingum hafi aukist um
77,4% fyrstu fjóra mánuði þessa árs,
170.5 tonn voru flutt inn, borið saman
við 96,1 tonn á sama tíma í fyrra. Hvað
innflutningi á öðru tóbaki viðkemur þá
mun samdráttur hafa orðið sem nemur
3,1%, 34,4 tonn voru flutt inn í ár, en
35.5 tonn í fyrra og er þá miöað við
fjóra fyrstu mánuðina. Heildarinn-
flutningur á tóbaki jókst því um 55,7%
á þessu tímabili.
Til að kanna hvort söluaukning hefði
orðið í samræmi við þessar tölur leituð-
um við til Ragnars Jónssonar, skrif-
stofustjóra ÁTVR. Hann vitnaði i
söluskýrslu sem fyrir lægi yfir 3 fyrstu
mánuði þessa árs og samkvæmt henni
hefði einhver aukning orðið á sölu
vindlinga miðað við árið í fyrra. Það
væri þó þannig að oft væru mismun-
andi hreyfingar á milli mánaða, en
birgðamagn hjá ATVR hefði ekki auk-
ist neitt óeðlilega sem af er þessu ári-AA
Gamatt fallstykki í Sjóminjasafninu.
SýningíSjó-
minjasafninu
stendur út júlí
Ákveðið hefur verið að framlengja
sjóminja- og byggðasýningu Sjóminja-
safns Islands. Safnið er til húsa í
Brydepakkhúsi að Vesturgötu 8 í
Hafnarfirði. Endurbyggingu hússins
er nýlokið og er húsið nú í fyrsta sinn
til sýnis almenningi. Á neðri hæð sýnir
Sjóminjasafn Islands þróun fiski- og
farskipa á Islandi með skipa- og báta-
likönum. A efri hæð sýnir Byggðasafn
Hafnarfjarðar ljósmyndir og muni úr
eigu safnsins. Sýningin verður opin á
laugardögum og sunnudögum frá kl.
14—18 til júlíloka.
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur:
Samningum
sagt upp
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
samþykkti einróma á fundi í trúnaðar-
mannaráði félagsins mánudaginn 20.
júní að segja upp gildandi kjarasamn-
ingum þess.
I ályktun trúnaðarmannaráðsins er
harðlega mótmælt afnámi samnings-
réttarins og þeirri skerðingu sem verð-
ur á kaupmætti þeirra sem búa við
lægstu rauntekjumar.
Trúnaðarmannaráð Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur skorar á
stjórnvöld að endurskoða ákvarðanir
sínar. JBH
Góð staða verk-
fallssjóðs BSRB
— áætlaðareignir4
milljónir íárslok 1983
„Ætla má að staða verkfallssjóðs
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
verði um 4 milljónir króna í árslok
1983,” sagði Eyþór Fannberg, for-
maðursjóðsins.íviðtalivið DV.
Sagði Eyþór að þegar stærð sjóðsins
væri rædd væri rétt að hafa í huga að
hann hefði ekki veriö stofnaður fyrr en
í kjölfar samningsréttariaga 1976—
1977. I vinnustöðvununum ’77 og ’78
hefðu safnast um 50.000 krónur og hefði
það verið fyrsti vísir að verkfallssjóði.
Aðspurður um fjármögnun sagði
Eyþór að markaðar tekjur sjóðsins
væru nú 15% af félagsgjöldum BSRB.
Hann sagði ennfremur að enn sem
komið væri hefði aldrei verið veitt úr
sjóðnum þar sem ekki heföu komið til
langvarandi vinnustöðvanir eftir
stofnun hans.
Loks sagði Eyþór að rétt væri að
geta þess að nokkur aðildarfélög BSRB
ættueinnigsínaverkfallssjóði. -JSS.
Við byrjum á Rimini og síðan er
ókeypis
, flug,
aSpan!
Vikudvöl með fullu fæði á
Mallorca án aukakostnaðar
Nú bjóðum við meistaralega samsettar
ferðir til Rimini með viðbótardvöl á
Mallorca - farþegum algjörlega að kostn-
aðarlausu. Dvalist er í tvær vikur á Rimini
og eina viku á Mallorca, þar sem fullt fæði
er innifalið í verði ferðarinnar. Hér er í
fyrsta sinn boðið upp á Ítalíu og Spán í
einni og sömu ferðinni og verðið er einfald-
lega það sama og fyrir þriggja vikna dvöl á
Rimini. Við minnum á myndarlegan barna-
afslátt og frábær greiðslukjör. Þetta er ferð
sem seld er á sannkölluðum vildarkjörum.
Rimini
Unnt er að velja á milli íbúðar- og hótelgist-
ingar að vild.
Mallorca
Dvalist er á Hótel Timor á Arenal-strönd-
inni, örskammt frá höfuðborginni Palma.
Herbergi eru öll með baði, svölum og síma.
í hótelinu eru veitingastaðir, barir, sjón-
varpssalur, borðtennis-, billiard- og bowl-
ingsalir og fyrir utan eru tennisvellir o. m. fl.
Og aftur minnum við á að FULLT FÆÐI er
innifalið í Mallorca-dvölinni.
Hafið samband og leitið samninga
Fyrsta brottför 18. júlí
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
LONDON
VIKUFERÐIR
Brottför alla föstudaga.
Verðfrákr. 13.765,-
á mann í tveggja manna herbergi.
FERÐASKRIFSTOFA, Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og28580