Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 8
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983. 8_.__________-__________________________. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjóm: SÍDUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir,smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjórnar: 86611. Selning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI1». Áskriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblað22 kr._____________________■_____________________ Þeir hóta okkur Til marks um aukna ofbeldishneigð Kremlverja í sam- skiptum þjóða eru nýjustu hótanir þeirra um beitingu kjarnorkuvopna gegn Dönum, Norömönnum og íslend- ingum. Þær birtust í Rauðu stjörnunni, málgagni hersins. Dönum, Norömönnum og íslendingum má vera ljóst, aö Andrópof og félagar eru ekki að minna okkur á að hindra Atlantshafsbandalagið í að gera Norðurlönd að skotpalli árásar á Sovétríkin, þótt þeir hafi það aö yfir- varpi. Arftakar Brésnéfs og herforingjar þeirra vita vel, að hvorki Atlantshafsbandalagið né Norðurlönd ráögera hernaðarlegt ofbeldi gegn Sovétríkjunum. Hins vegar langar Kremlverja aö víkka valdsvið sitt, með eða án of- beldis. Einn þáttur í vaxandi ágengni sovézkra hernaðarsinna eru ferðir kjarnorkukafbáta í landhelgi norrænna ríkja. Þær hafa gengið svo langt, að einn báturinn strandaði uppi í f jöru langt inni í firði í Svíþjóð. Þessi sérstæða frekja hefur leitt til hugleiðinga innan og utan Svíþjóðar um, að tímabært sé fyrir Svía að endur- skoða stöðu sína í heiminum, áður en þeir eru nauðugir farnir að sitja og standa eins og Andrópof þóknast. Hlutleysi Svía var á sínum tíma reist á grundvelli tölu- verös varnarmáttar þeirra. Nú er hins vegar svo komið, að útþenslumenn austursins hafa þcnnan mátt í flimting- um og athafna sig eftir þörfum í sænskum f jörðum. Hótun Rauða hersins er meðal annars ætlaö að vara Svía viö að láta hugleiðingar um endurmat ganga svo langt, að þeir taki upp samstarf við Atlantshafsbandalag- ið. Þá verði þeir sprengdir eins og Danir, Norðmenn og Islendingar. Um leiö er hótunum þessum ætlaö aó styðja við bak fimmtu herdeildanna í Danmörku, Noregi og á Islandi. Þessar deildir eru skipaöar nytsömum sakleysingjum, sem halda, að þeir stuðli að friði með þátttöku í ýmsum hreyfingum. Ein skæðasta ,,friðar”-plágan er hugmyndin um sam- komulag um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norður- löndum. Hún byggist á þeirri firru, að mark sé takandi á undirskriftum Kremlverja undir alþjóölega eða fjöl- þjóðlega samninga. Sönnu er nær, að slíkar undirskriftir eru fremur vís- bending um, að Andrópof og félagar hugsi sér til hreyf- ings í hina áltina. Mannréttindabrot þeirra hafa til dæmis stóraukizt eftir undirritun Helsinki-sáttmálans. Kjarnorkuvopnalaus lönd á borð við Norðurlönd þurfa engar yfirlýsingar Kremlverja um kjarnorkuvopnalaus svæði, ekki fremur en gagn er að hliðstæðum yfirlýsing- um um, að þeir verðlekki fyrri til að beita kjarnorku- vopnum. Yfirlýsingar af þessu tagi eru verri en marklausar. Til dæmis er dómur reynslunnar, að „ekki-árásarsamn- ingur” er af hálfu slíkra stjórnvalda talinn eðlilegur aðdragandi árásar, — hluti af vinnubrögðum þeirra. Á sama tíma og Andrópof var að skipuleggja geð- veikrahælin fyrir leyniþjónustuna lærði hann að full- komna utanríkisstefnuna, sem felst í útþenslu með góðu og illu til skiptis. Nú hentar honum að byrja að hóta okkur. Til þess að varöveita friðinn er okkur affarasælast að standa þétt saman í vörninni og láta ,,friðar”-hreyfingum ekki takast aö rjúfa nein þau skörð í múrinn, sem Kreml- verjar eru að blekkja þær til að reyna að gera. Jónas Kristjánsson. Ógæfa íslands Ogæfu Islands veröur allt aö vopni. Viö skulum þó halda ríkisstjóminni fyrir utan þessa umræöu aö sinni en snúa okkur aö öörum áföllum sem þjóöin hefur oröiö fyrir síöustu árin. Það er af nógu að taka. Mönnum mun þaö í fersku minni, þeim sem komnir eru vel áleiðis með þaö aö verða þrítugir, aö fyrir um tuttugu árum vöknuðu ráðamenn við vondan draum og þóttust sjá aö nú yröi að „skjóta fleiri stoðum undir ís- lenskt atvinnulif”. Menn þóttust sjá aö landbúnaður og sjávarútvegur yröu ekki starfsvettvangur meiri- hluta þjóöarinnar til langframa og þar sem iöjuleysi er undirrót alls ills varð að finna störf handa þeim sem landiö áttu að erfa. Og þá var stór- iöja lausnarorðiö. Þaö var byggð virkjun og síöan ál- ver og menn voru bjartsýnir. En það gekk ekki vel. Álverið sýndi tap á ári hverju, sölutregðan fór illa meö fyr- irtækið og önnur (myrk) markaðsöfl unnu gegn því lika. Og nú er farið að segjauppfólkiþar. En bjartsýnin var ráðandi afl í ís- lenskum stjómmálum og hafandi skoðaö markaöinn vel komu menn auga á aö kísilmálmur seldist vel. Og Úr ritvélinni ÓlafurB. Guðnason þegar svartnætti örvæntingarinnar var að skríöa upp á himininn og bjó sig undir aö grúfa sig yfir þjóðina, barst bréf frá Austurlöndum fjær. ina, en þaö er víst aö hér eru einhver hugmyndatengsl á feröinni (og tal- andi um hugmyndatengsl, voru þaö kannski freudísk hugmyndatengsl sem réöu því að selormanefnd var sent erindið um þennan nýstárlega útflutning?). En þaö er víst að reyn- ist „framleiösla” á selsreðrum og út- flutningur hagkvæmur, er þar að finna óþrjótandi markaö. En þaö sem hér var sagt í upphafi um ógæfu Islands á þó enn viö. Því þótt öll skilyrði um hagkvæmni og þess háttar væru uppfyllt er enn eftir ljón í veginum, og þaö grimmt. Menn minnast þess kannski að fyr- ir nokkrum mánuðum samþykkti Al- þingi aö mótmæla ekki hvalveiði- banni Alþjóða hvalveiðiráðsins og þar meö sér fyrir endann á hvalveið- um við Island. Astæöan fyrir þessari ákvöröun Alþingis var einfaldlega sú að ef hvalveiðum yrði haldiö áfram gæti fiskmörkuðum Islendinga í Bandaríkjunum veriö stefnt í hættu. Nú er þaö s vo aö eftir því sem f iskun- um fækkar minnka fiskmarkaðimir, þá var rokiö til að virkja meir og byggja kísilmálmver. Það þurfti ekki aö koma nokkrum manni á óvart að samtímis og það ágæta iðju- ver var fullbúið hrundi verðið á kísil- málmi og hefur ekki reist sig við að nýju. Og þannig fór, sem fyrirsjáan- legt var, að blessað iðjuveriö hefur veriö lokað upp á síðkastiö. Þaö varð þjóðarsál Islendinga til bjargar hversu seigir afkomendur landnema og víkinga eru. Aðrar þjóöir hefðu kiknað undir þessu mót- læti, sem þó dugði aðeins til þess aö stæla k jarkinn í fr jálsbornum Islend- ingum. Frjálsbomir Islendingar færöu í millitíðinni landhelgina út í 200 mílur og ögmðu þar með Bretum FTFF. (Fyrir Thatcher & fyrir Falk- landseyjar). Nú gátu ráðamenn hægt á sér með stóriðjuverin því með svo stóra land- helgi og mikið af fiski mátti sjávar- útvegurinn taka við fólki til vinnu um sinn. En aftur léku örlaganomirnar á Islendinga. Meðan skipum fjölgaði fækkaði fiskunum og nú er svo kom- ið, að fiskar eru að verða jafnsjald- séðir og h vítir hrafnar. Þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst, segja menn þegar þeir eygja enga von. Og mikið rétt, einmitt Kannski hefði verið betra ef þaöan hefðu komið þrír vitringar, en bréfiö verður þó að nægja í bili. I bréfinu frá Austurlöndum var fal- ast eftir ákveðnum líkamshlutum sela tii kaups, líkamshlutum, sem til þessa hafa ekki þótt nýtanlegir hér á landi (ekki þegar þeir em á dauöum selum, a jn.k.). Nú vill svo til að tals- vert framboð er af selshræjum um þessar mundir og því ekkert því til fyrirstöðu að senda í það minnsta sýnishom til hinna áhugasömu Aust- uriandabúa, en eins og formaður sel- ormanefndar sagði:....þetta getur orðið dýr framleiðsla”. En það er lika dýri fyrir bændur að framleiða mjólk. Nú er það alkunna að Austurlanda- búar kaupa furðulegustu líkams- hluta af ólfldegustu dýram til þess að efla kynhvöt sína (og má marka árangurinn af því, til dæmis, að Kín- verjar eru nú fjórðungur mann- kyns). Meðal annars þykir það gott fyrir barnlaus hjón að borða dulítið af muldu nashymingshomi, og nokk- uð víst að bamleysið muni lagast af. Eitthvað svipað er þetta með hugs- anleg kaup á selsreðmm. Hér skal ósagt látið hvort þessi undarlegu meöul hafa einhver áhrif á kynhvöt- af þeirri einföldu ástæðu að fiskurinn fæst ekki. En það er þó þrátt fyrir allt ekki svo illa komið fyrir Islend- ingum, að við fiskum ekkinóg fyrir Bandaríkjamarkaðinn. Nú hafa Bandarikjamenn og reyndar Evrópuríkin líka svipaða skoðun á selveiðimönnum og hval- veiðimönnum. Þetta hefur meðal annars leitt til hörmungarástand á Grænlandi. Og fremst í flokki haturs- manna selveiða fer valkyrjan Brigitte Bardot. Segjum nú að Is- lendingar tækju upp náið viðskipta- samband við Austurlönd fjær og flyttu íbúum þess fjarlæga heims- homs lostaaukandi selsparta.; Hvernig ætli Bardot myndi bregðast við? Hvemig ætli íslenskum stjórnvöld- um myndi ganga við að koma mál- stað sínum á framfæri erlendis ef til „selastríðs” kæmi? Eg efast um að Steingrímur Hermannsson fengi miklu áorkaðþegar andstæöingurinn er Bardot sjálf! Hann myndast ekki eins vel! Og því er það að þessi útflutnings- atvinnuvegur virðist andvana fædd- ur, eins og stóriðjan. Sorglegt en þó satt, að ógæfu Islands verður meir að segja Bardot að vopni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.