Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Side 10
10 DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983. TÖQGURHF. SAAB UMBOÐIÐ SÍMAR 81530 OG 83104 4 dyra — 5 gira — hvitur — ek. aðeins 6.000 km. Sportfelg- ur — sólgrind. Vindskeið að aftan — kassettutæki. —"VIDEO--------------- OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 K vikm yndamarkaöurinn Skólavörðustíg 19. Videoklúbburinn Stórholti 1. Simi 35450. SELJUM (DAG .VIDEO, AVA □D 3 ÁRG. 1 ÁL-GRÓÐURHÚS ■* og sólreitir fyrir heimagarða Stærðir: 3,17X3,78 (10xl2fet)m/gleri, kr.27.000 2,55 x 3,78 ( 8xl2fet)m/gleri, kr. 19.400 2,55x3,17 (8x 10fet) meö/gleri kr. 17.400 Vegghús: 1,91X3,78 ( 6xl2fet) m/gleri, kr. 16.500 Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: Hillur, sjálfvirkir gluggaopnarar, borð, rakamælar, rafmagnsblásarar o.fl. o.fl. Sólreitirnir eru af nýrri gerð, meö plastgleri (óbrjótanlegt) og innbyggöum, sjálf- virkum opnunar- og lokunarbúnaði, sem vinnur á sólarorkunni. Stærð 120x92x38. Eden garðhúsin eru nú fyrirliggjandi, en viö höfum yfir 10 ára reynslu í þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróðurhús hafa náð sömu útbreiðslu hérlendis. Þau lengja ræktunartimann og tryggja árangur. Sem fyrr bjóðum við lægsta verð, ásamt frá- bærri hönnun Eden álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust hús. Sýningarhús á staðnum Kynnisbækur sendar ókeypis KLIF HF. Grandagarði 13 Reykjavík — Sími 23300 „ Þetta er áhugaleikhús sem gerir atvinnumannakröfur," segir Andrés Sigurvinsson, annar framkvæmda- stjóri Stúdentaleikhússins. Dagskrá §túdentaleikhiisslns í Jillí: Tónlíst, ljóð* list, leiklist — og Reykjavíkurbliis Listatrimm Stúdentaleikhússins hefur tæplega farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með menningarlífi í Reykjavík að undanförnu. Kaffileik- hús hefur verið starfandi í Félags- stofnun stúdenta síðan í maí þar sem efnt hefur verið til uppákoma af ýmsu tagi. Nú síðast var flutt dag- skrá byggð á verkum Jökuls Jakobs- sonar og í kvöld verða frumsýnd fjögur stutt leikrit eftir Samuel Beckett. Aðstandendur Stúdentaleikhússins boðuðu til blaðamannafundar í vik- unni og kynntu dagskrá Listatrimms í júlí. Tónlistar- og bókmenntakvöld verður sunnudaginn 3. júlí. Þá verður flutt verkið Platero og ég fyr- ir upplestur og gítar. Textinn er eftir spænska nóbelsskáldið Juan Ramon Jiménz og er Guðbergur Bergsson þýðandi. Upplesari er Jóhann Sig- urðsson leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en Arnaldur Arnarson flytur tónlistina sem Mario Castel Nuovo samdi við verk Jiménez. „Reykjavíkurblús” verður frum- fluttur fimmtudaginn 7. júlí. Hér er á ferðinni blönduð dagskrá úr efni sem tengist Reykjavík, byggð á stuttum leikþáttum og upplestri úr leikritum, sögum og ljóðum ásamt tónlistar- flutningi. Auk þess verður „Diskótek Reykjavík”, þar sem leikin verður reykvísk dægurtónlist síðustu ára- tuga. Magnea J. Mattíasdóttir og Benóný Ægisson hafa umsjón með „Reykjavíkurblúsnum.” Þau hafa notið aöstoöar Antons Helga Jóns- sonar við samantekt úr verkum yngri höfunda. Föstudaginn 18. júlí er ætlunin að frumflytja dagskrá úr verkum spænska skáldsins Frederico Garcia Lorca. Samantekt og leikstjóm dag- skrárinnar, sem er byggð á sögum, ljóðum og leikritum skáldsins, ann- ast Þórunn Sigurðardóttir. Leikin verður spönsk tónlist. Lorca er vel þekktur hér á landi fyrir leikrit sín og ljóö. Hann var myrtur af fasistum í borgarastyrjöldinni á Spáni og njóta verk hans enn mikilla vinsælda þarílandi. Þá verður söng- og tónlistardag- skrá dagana 22. og 23. júlí. Efnis- skráin erfjölbreytileg; klassísk, nú- tíma- og dægurtónlist. Yfirumsjón með samantekt og flutningi þessarar dagskrár hefur Guðni Franzson ásamt Ingveldi Ólafsdóttur og Jó- hönnu G. Linnet. Um mánaðamótin Júlí-ágúst verður svo flutt leikritið Elskendum- ir í Metró eftir franska skáldið Jean Tardieu í þýðingu Böðvars Guð- mundssonar. Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson en hann er annar fram- kvæmdastjóri Stúdentaleikhússins. „Starfsemi leikhússins hefur geng- ið vonum framar og aðsókn verið með eindæmum góð. Fólk á öllum aldri hefur sótt sýningar hjá okkur og tekið mikinn þátt í að skapa stemmningu,” sagði Andrés á blaða- mannafundinum áöumefnda. Það em allir velkomnir til að starfa hjá Stúdentaleikhúsinu, bæði skólaðir og óskólaðir leikarar, en rétt að taka fram að þetta er áhuga- mannaleikhús sem gerir atvinnu- mannakröfur,” sagði Andrés Sigur- vinsson. / kvöld frumsýnir Stúdentaleikhúsið fjögur stutt leikrit eftir Samuel Beckett undir yfirskriftinni Óstöðv- andi flaumur. Á myndinni eru Viðar Eggertsson og Hans Gústavsson i hlutverkum sinurii i leikritinu Ohio Impromptu sem er eitt nýjasta leikrit Becketts.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.