Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Side 11
DV. LAUG ARDAGl) R 25. JÍJNI1983.
11
Tvíburar sem
Rannsóknir sýna að tvíburar eru
stundum svo nátengdir hvor öörum
að þeir deyja nær samtímis. Hér eru
nokkurdæmi:
Arthur Cochran dó klukkan 3.58
eftir miðnætti í New York. Systir
hans fékk skeyti tveimur tímum
síðar um að Albert tvíburabróðir
hans, hefði dáið fimm mínútum síöar
íKalifomíu.
Tuula Jaavaara frá Helsinki í
Finnlandi leið illa og var ekið í snatri
á spítalann. Þetta var í desember
1970. Nær samstundis veiktist
Marjatta, tvíburasystir hennar, og
þurfti líka að fara á spítala. Það liðu
tíu mínútur á miUi andláts þeirra.
Dánarorsökin var hjartaslag í
báðum tUvikum. Samt voru þær ein-
ungis 23 ára gamlar.
Charles og Arthur Davis, tvíburar
sem báðir voru gagnfræðaskóla-
kennarar í Florida, voru dag
nokkum 1934 að aka bU á mismun-
andi stöðum í fylkinu. Þeir lentu
báðir í árekstri og þeyttust úr úr bíln-
um ofan í skurð og dmkknuöu í vatni
sem safnast hafði eftir mikla úr-.
komu.
Jonathan Meeras, sem var leigu-
bUstjóri í London dó úr slagi 18. aprU
1961. Tvíburabróðir hans dó þann
sama dag úr slagi í Sierra Leone í
Afríku.
Bandarísk kona, Bobbie Jean EU-
er, hafði slík geysileg áhrif á tvíbura-
systur sína, Betty Jo, að þegar hún
þurfti að nota gleraugu fór Betty aö
nota þau líka þó hún hefði ekki tapað
sjón. Þær lentu báðar á geðsjúkra-
húsi. 12. aprU 1962 fann hjúkrunar-
kona Bobbi látna. Strax var gáð
hvemig Betty heföi það og hún var
líka dáin. Leitað var ákaft skýringa
fyrir andláti systranna en engin
dánarorsök fannst. Það virtist sem
Bobbie hafi viljað deyja og hún hafi
haft slík völd yfir systur sinni aö hún
hafi tekið hana með sér.
dóu samtimis
Vk) bfðum þin
við
brúarsporöinn!
Skeljungur opnar um helgina glæsilega og fullkomna
bensínstöð í Borgarnesi, á besta stað við Borgarfjarðarbrúna.
Þar erum við tilbúnir að taka við þyrstum ferðalöngum
úr öllum áttum og Borgnesingum að sjálfsögðu líka.
Tilboð í tilefni dagsins
í tilefni opnunarinnar gerum við útigrillmeisturum
og áhugamönnum um gljáfægða og bónaða bíla tilboð sem þeir
geta ekki hafnað:
Við bjóðum grillkol og uppkveikilög með 40% afslætti.
Við bjóðum Blue Poly bónvörurnar með 40% afslætti.
Tilboðið stendur á meðan birgðir endast.
Komdu við með galtóman tankinn,
við sjáum um framhaldið með bros á vör!
Shellstöðin Borgamesi