Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Page 12
12
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983.
Menning Menning Menning Menning
Skáldsagan Pinball og höfundaf erill Jerzy Kosinskis:
1 herkví frægðarinnar
Um skáldsöguna Pinball (Skot-
bolti) og höfundarferil Jerzy
Kosinskis.
I. útg. 1982. Arrow 1983 . 283 bls.
Sölust. B. SigfúsarEymundss.
Jerzy Kosinski hefur náö miklum
vinsældum á síðustu árum, einnig
héráland Reglufest verkahansog
alvara, ópersónulegur háttur við
framsetningu efnis hefur á sér sama
svipmót og einkennir far yngra fólks
í dag, þeirra sem komu til vits við
orkukreppu, dvínandi vonir um efna-
hagslegar framfarir og stjórnmála-
legar afhjúpanir með þjóðumsem þá
um langan aldur höfðu talið sig
öðrum þjóðum siðferðisleg fyrir-
mynd. Þó eru ekki nema tvær af
skáldsögum hans átta með hefð-
bundnu sniði, þær sem þýddar hafa
verið á íslensku, Fram í sviðsljósið,
háðsaga um afglapahátt æðstu
stjómmálamanna í Bandaríkjunum
með stjóm Nixons að fyrirmynd, og
sú fyrsta, Málaði fuglinn. Skáldsag-
an dregur heiti af leikfangi sem
menn á miööldum æfðu sig á við beit-
ingu lagvopna og táknar í sögunni
dreng sem mátti þola svipaöa með-
ferð í Póllandi á seinni styrjaldar-
ámnum, þar um slóðir sem Kosinski
er upprunninn. Hinar sögurnar,
Skref, tJt í bláinn, Flugstjómarklef-
inn, Ástríðuleikur, Djöflatréð og nú
síðast Skotbolti, líkjast því helst að
vera gerð hver um sig af mörgum til-
raunum til smásagnagerðar sem
ekki geta náð fyllingu sinni þótt vel
séu stílaðar vegna þess að aðalmað-
ur og atburðir loða ekki saman,
tilfinningar og siðferði f arast á mis.
Ævintýralegur
ferill
Fyrir ekki mjög mörgum árum
kom Kosinski eignalaus og allslaus
til Bandaríkjanna og hér um bil mál-
laus á tungu þarlendra. Sextán ára
gamall var hann ásamt föður sínum
á skíðum í Sviss, datt og fékk þá
máliö eftir aö hafa verið mállaus í
mörg ár eftir hrellingar sem yfir
hann gengu þegar hann bam hlaut
að bjarga sér upp á eigin spýtur á
sléttum Austur-Póllands, mánuðum
saman innan um eitthvert hið frum-
stæðasta fólkí Evrópuallri; nasistar
lögðu hann í einelti líka um þær
mundir og hafði sloppið úr fangalest
á leiö til útrýmingarbúða. Gyöingur;
í lestinni var fjölskylda hans. Þegar
Póllandféll ígreipar Rússa björguðu
þeir drengnum, foreldrunum úr
útrýmingarbúöunum og leiddu þetta
fólksamansíðar.
Skáldsögur Kosinskis snúast í
verulegum mæli um reynslu hans
sjálfs. Hann mun hafa menntast í
Sovétríkjunum en síðan tekið í sig að
flytja til Bandaríkjanna og blekkti
kerfið til að komast úr landi. Fann
uop prófessora tvo sem hann lét á
víxl skrifa viðeigandi stofnunum til-
mæli um að honum yrði hleypt úr
landi til rannsóknarstarfa. Efni sem
hann hefur notað í skáldsögunni Ot í
bláinn (BlindDate). I þeirri næstsíð-
ustu, Ástríöuleik, gerði hann efni úr
tómstundagamni sínu, pólóleik, og í
þeirri nýjustu úr öðru áhugamáli,
tónlist. «
Einfari
Það er ekki 1 jóst h verskonar tónlist
Domostroy, aöalpersónan í Skotbolta
Jerzy Kosinskis, samdi meðan hann
var og hét á því sviði, tíu árum áður
en sagan hefst og fyrr. Þróað popp
eða hreint og beint rafvædda nútíma-
tónlist, sem svo er kölluð og Þorkell
Sigurbjömsson hefur stundum verið
að kynna í útvarpinu. Líklega eitt-
hvað í líkingu við verk Jean Michel
Jarre, tónskáldsins og hljómborös-
leikarans franska sem töfrar fram
úr tækjum sínum vindþotur háfjalla,
lækjarnið, úthafsbrim og lætur
hryn ja með kliðandi sem engu er lík-
ara en sé náttúrunnar sjálfrar.
Domostroy, miðaldra uppgjafatón-
skáld, býr í fátækrahluta Bronx
hverfis í New York borg, í
samkvæmishúsi sem fyrrum var en
nú er ekkert þar auk hans nema mýs.
Vinnur fyrir sér með spilamennsku,
við jarðarfarir, í leiktækjasölum.
,,Og vegna þess að hann gat tiltölu-
lega auðveldlega sagt fyrir um
hvemig líf hans yrði á ókominni tíð
— sem hann gat ekki á sviði tónlistar
— hafði líf hans orðið tiltölulega ein-
falt og ókvíðvænlegt. Hann hélt því
við með svipuðum hætti og bílnum
sínum — litilieg viðgerð á einn veg,
örlítil fágun á annan — og ánægöur
var hann þegar það rann áfram
snurðulaust.”
Frægðin olli að Domostroy þornaði
upp, frægð er hættuleg listamanni
samkvæmt þessari sögu. „Velgengni
á listaferli varð listamaöurinn að
gjalda fýrir með hamingju sinni og
hamingju þeirra sem vom honum
kærir.” Og ,,Sá semernógu frumleg-
ur til að búa til list er þar með ger-
ræðislegur því að hann þröngvar inn
á fólk yfirleitt ímynd um heiminn
sem fylgir krafa um að samþykkt
verði eða henni synjað; knúði fólk til
aö taka afstöðu með eða á móti lista-
manninum, verða vinir hans eða
óvinir og gerði að það áleit lista-
verkið ímynd listamannsins en mat
það ekki af verðleikum þess sjálfs. ”
Einfarinn Domostroy er
dæmigerður fyrir aöalsögupersónur
Jerzy Kosinskis; líf hans allt leit að
afþreyingu; í næturklúbbum en
einkum að nýjum og aftur nýjum
tilbrigðum við kynferðislegt sam-
neyti við konur, í stórborgar-
umhverfinu, New York, hefur hann
allt nema það sem liklega skiptir
mestu máli fyrir vellíðan manns,
trúnað annarra, varanlegt næði til að
rækta tilfinningar sínar. I stað þess
að láta loka sig inni í ímynd þeirri
sem gagnrýnendur og almenningur
höfðu gert sér af honum á tindi
frægðarinnar hafði hann haldið
áfram að semja frumleg verk og það
hafði leitt til þess aö áheyrendur
sneru sér frá honum og að öðru.
Hvatningin var þar með engin úr
þeirri átt, gagnrýnendur urðu honum
andsnúnir og hagsmunaklíka hélt úti
áróðursherferð gegn honum og hann
hætti, sannfærður um að tónskáld
yrði að semja svo að því sjálfu likaöi
fremur en öðrum og að hann myndi
ekki njóta sannmælis. Domostroy
hefur firrst sína eigin list, hann hittir
konu sem er píanósnillingur og lýsir
yfir við hana að hann langi tii að
ræða við hana vegna þess honum
finnist að tónlist hans, til á 5 breið-
skífum, „standi henni ekki fjarri; að
með hennar samfylgd myndi einnig
hann geta náð tilfinningasambandi
við þá list — eða við sjálfan sig.”
En hvemig fer ef listamaöurinn
kemur til móts við aðdáendur sína?
Eins og fór fyrir John Lennon, bók-
staflega eða í yfirfærðum skilningi.
Lennon, sem myrtur var af einum
aödáenda sinna, hafði gert of lítið úr
mun þeim, mun sem var á honum og
venjulegu fólki og sem var frá öðru
sjónarmiði persónutöfrar hans,
græskulaus gekk hann of oft og
óþvingað inn í hóp aðdáenda sinna —
til að syngja, taka í hendur þeirra
eða árita skífuumslög. Einn aðdá-
endanna notaði tækifærið sem kom
svo auöveldlega og drap hann líkt og
með því gæti hann sjálfur tekið á sig
þann mikilleika sem Lennon fórnaði
með því að stíga ofan til múgsins;
með viðleitni sinni til að sýna fram á
að hann var bara venjulegur
maður.” Samkvæmt þessari tilfinn-
ingafirrtu og torlesnu — en vinsælu
— sögu virðist aðeins ein leið vera til
til að komast hjá mannskemmandi
togstreitunni milli hins fræga og
þeirra sem hann dá — vilji sá veröa
frægur af verkum sínum einkum;
lifa tvöföldu lífi.
Ósýnilegur maður
Gerast ósýnilegur. Virðist ómögu-
legt en höfundur er afar fær í aö
finna leiðir til að bjargast af þar sem
aðrir finna engar eins og sjá má af
æviferli hans. Og við þessa alvöru-
fullu rannsókn á stöðu listamanns í
samfélagi kaupsýslu stillir hann upp
tveimur tónlistarmönnum;
uppþomuðum, tilfinningafirrtum
undanhaldsmanni úr herkví frægðar-
innar sem ekkert óttast lengur annaö
en útmáun dauöans. Hinn hefur aflað
sér þess hljómbúnaðar sem frekast
er kostur nýverið, semur, tekur
upp, blandar og hljóðritar tónlist
einn, sendir útgáfufyrirtæki sínu og
enginn veit hver hann er. Sumpart
syngur hann ljóð sígildra skálda,
ellegar þjóövísur, og tónlistin er
þróað popp, hann er undir heitinu
Goddard orðinn söluhæsta popp-
stjama sem uppi hefur verið.
Leyndin hefur reynst magnaðri
auglýsingaaöferð en nokkur önnur
sem beitt hefur verið í poppiðnaðin-
um. James Osten, réttu nafni, er
sonur skífuframleiðanda, þýsks
gyðings sem á sínum tíma flúöi
nasismann í Þýskalandi og vestur
um haf. Faðirinn ann sígildri tónlist
og leggur einkum fjármagn sitt til út-
gáfu á slíkum skífum, fyrirlítur
popp. En sonurinn ann föður sínum
og hefur í upphafi sögu haldið fyrir-
tæki föður síns f rá því að verða gjald-
þrota, meö tónböndunum sem hann
sendir því og það gefur út með
miklum gróða. Hljóðritar uppi i
fjöllum í Suður-Kalifomíu, í hljóm-
veri sem hann hefur komiö sér upp
sjálfur og æfir á krám í Tijuana,
landamærabænum mexikanska þar
sem ferðamannastraumröstin er svo
stríð að enginn gefur sér tíma til að
bera kennsl á annan. Raddblæ er
hægt að breyta með upptökutækjum
eins og þeir vita sem lesið hafa í út-
varp. Þeir sem þekkja til tónlistar
Jarres vita hverju einn maður getur
fengið áorkaö með bestum fáanieg-
um tækjabúnaði til tónlistarflutnings
nú um stundir, blöndun á tónum
kunnuglegra hljóðfæra af upptökum,
tölvuvæddri samræmingu tóna, tón-
jöfnun umfram það sem getur orðið
meö sígildu aðferðinni. Heima í New
Y ork er Osten álitinn hirðulaus sonur
efnaðs föður sem slugsar við nám í
bókmenntum við Kaliforníu-háskóla
ogfertíttámilli.
En vinsældir Goddards eru eUki aö
sama skapi sannfærandi sem leynd
hans nema ef vera skyldi að hann er
allra bráð í þjóðfélagi þar sem veiði-
mennskan er hið æðsta lífsgildi. A
námsárum sínum snemma gaf hann
sig einkum að rannsókn á tónlist
framúrstefnumanna í poppi auk þess
sem hann lærði á hljóðfæri; fylgdist
grannt með þróuninni sem varð í
byrjun síðasta áratugar en sem
dagaði uppi í rosaljósum diskósins,
kafnaði í ósjálfræöi þess og pönksins,
þeim trúðleik, þeirri sjálfsfróun.
Hann kynnti sér gítarleik Jimmi
Hendrix, útvíkkun sýrurokksins um
70, leik Rick Wakeman, Yes, Emer-
son, Lake og Palmers, Pink Floydog
Tangerin Dream, sem líklega náði
lengst en hefur ekki fyrr en nú, meö
tölvupoppinu, náð almennum
vinsældum meðal poppara. Þróunin í
poppinu varð ekki sú sem Jerzy Kos-
inski lætur heita að hafi orðið;
kannski vegna þess vanda sem
höfundurinn greinir með bók sinni,
herkví frægðarinnar. 1 staöinn kven-
leg tilþrif sem líkjast nautabanans
frammi fyrir nautinu, tákni krafts og
heimsku. Dans strengjabrúðunnar.
Hvað er rokk sem söluvara,
menningarlega skiiið? „Afskræming
nútímakirkjutónlistar negra, einnar
gerðar hennar... fruntalegur
þjófnaður á tjáningarhætti
menningar.” (Ralph Ellisson)
„Tónlistin gæðir lífiö reglu í þeim
mæli sem trúarbrögö gera það,”
álítur Osten. Hún umbreytir þá
tilfinningum manns, skýrir kenndir
hans og stillir hugsanirnar.” Osten
er rokk mikiö umfram það aö vera
iðnaður; „þaö var lýðræðislegt,
nauösynlegur hluti margþættrar
alþýöumenningar frjáls þjóðfélags, í
sjálfu sér lífsháttur — nokkuö sem
sígildri tónlist var aldrei ætlað að
verða.” En „Osten naut þess að fara
huldu höfði vegna þess að þar með
tryggði hann sér frelsi.” Þegar skífa
meðhljómlist hanskom á markaðinn
þá „hlustaði hann á hana með sama
hætti og allir aðrir. Þá kenndi hann
þess eins og alltaf áður að aöeins
nafnleyndhanskom i veg fyriraðal-
menningur myndi vaða yfir hann og
þar með hvatann sem gat af sér tón-
list hans og hann fagnaöi frelsi sinu
til að hefjast á ný handa, skapa
meira.” En tónlist hans er aö sumra
áliti (píanósnillingsins sem Domo-
stroy vingast við) afl „sem breytir
tónskáldi og flytjendum í einskonar
skapandi sjálfsala sem framleiðir
rustaleg vélræn úrtök.” .Jfljómborð
er ekki annað en sambræðingur
glymskratta og skotboltavél.”
„Goddard skrifar til að víkka
tónlistarlega reynslu okkar,” segir
einn aðdáenda hans. „Þess vegna
elskum við hann. Þess vegna er hann
ekki bara ein rokkstjama meðal
margra.”
Tilraun
til afhjúpunar
Domostroy leggur Goddard í
einelti. Domostroy er varia mann-
gerð af því tagi sem skýtur á forseta
og forsetaframbjóðendur í
Bandaríkjunum en hann er þó alllík-
ur manngerðinni um margt; hann
hefur að vísu lært að lifa viö kreppu
sína en lausn við henni þekkir hann
enga nema Goddards sem hann
skilur, en sú leið er honum ekki
lengur fær. Hann er einfari og ófær
um að deila tilfinningum sínum meö
öðrum. Hverskonar siðferöislegt
aðhald er honum f jötur. Og veröldin
er honum á leið að verða sambland
af tölvustýringu og staölaðri hegðun
manna, firrt náttúrlegum og
manneskjulegum tengslum;
framtíðarsýn sem höfðaði ekki hið
minnsta til baráttuhneigðar hans eða
áhuga yfirleitt. Hann lifir við frelsi
sem leiðir af kreppu hans, laus úr
klóm öryggis auðs, frá þeirri sýndar-
mennsku og laus við hillingar
velgengninnar. Og hann nýtur þess á
sinn hátt að geta lifað eins og honum
sýnist við þær aðstæður sem eru
hans, „og geta fylgt eigin siðaregl-
um, standa ekki í samkeppni við
neinn, gera engum til miska, jafnvel
ekki sjálfum sér — siðferði sem
ævinlega hafði frjálst val aö grund-
vallarreglu”. Ustin hafði verið
honum skuggi sem hann varpaði á
framtíðina, leið til að lifa af dauðann
í einhverjum skilningi. En í upphafi
sögu eru ekki miklar líkur á að
tónlist hans lifi hann sjálfan. Að
framtíðin geti haft nokkra meiningu
fyrir hann.
Skáldsagan fjallar um tiiraun
tveggja manneskja, Domostroys og
lagskonu hans, til að afhjúpa Godd-
ard, finna manninn á bak við
tónverkin. Sögupersónur allar eru
tónlistarfólk og virðast allar nota
tónlistina fyrir heim handa huganum
að þrífast í, þurfa engar fjárhags-
áhyggjur að hafa og einskorða
samskipti sín við annaö fólk viö
kynlífssambönd auk þess sem það
mætist í tónlistinni og ræðir saman
um hana eins og væru það alfræði-
orðabækur að tala saman. Persónu-
sköpun er fábreytt, konurnar eru
hver annarri líkar, svo margar sem
þær eru, þær eru það í athöfn þótt
þær séu það ekki samkvæmt
lýsingum. Osten er einnig einfari og
áráttumaöur í kynlífi sinu eins og
Domostroy. En persónusköpun er
ekki markmið Kosinskis eftir
flestum skáldsögum hans að dæma.
öllu heldur að hann búi til persónu-
gervi ákveðinna kringumstæðna:
Domostroy — Fabian — Tarden —
Levander, aðalpersónum í skáldsög-
um sem allar eru eins í meginatrið-
um, svipar hverri til annarrar. I
hverri bókinni af annarri lýsir hann
hetju, náskyldri alþekktri goðsögu-
persónu vestrans en með snert af
manneskjulegu óyndi yfir að geta
ekki gert verk sín gildandi fyrir
aðra, tilvistarheimspeki i bland. I
hverri sögu eru frásagnirnar
margar, hvaðanæva af lífsferli
hetjunnar, afar knappar og hver um
sig meö þema og framvindu að loka-
punkti sem réttlætir hana en heildin,
þróunin í ævi mannsins sjálfs er ekki
nein, styrkur bókarinnar þó þessi
IUJJJ? \Æ
j rc * i
KOQINQKI
I kmmiM w, I iBÍ kmmw M Mk I
Pinball ,,Bókin er hin þarfasta fyrir þá sem leggja i vana sinn að kaupa
erlend eða inniend bersöglirit. Hún mýkir og setur í skiljanlegt samhengi
þann sálarherðing sem af sliku plastbrúðukynlifi leiðir."