Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 13
DV. LAUGARDAGUR25. JUNI1983. 13 Menning Menning dæmalausa flrring og helkuldi sem hetjan lifir við og kemst til skila vegna ósveigjanleikans. I öllum skáldsögum Kosinskis er ekki einn einasti brandari ef undan er skilin Fram í sviðsljósið; Peter Sellers mildaöi kaldhæðni þeirrar sögu til muna. Ég leyfi mér að smíða mér kenningu um Kosinski sjálfan: Hann leitar að veru sem hefur fullkominn konulíkama og fullkominn karl- mannshuga. Afhjúpun sem er við hæfi vegna óheyrilegs magns einhæfra kynlífs- lýsinga skáldsagna hans allra nema tveggja, fyrirferö þess efnis er þó mest í Skotbolta. Þau skötuhjú laða Osten út úr fylgsni sínu með því að egna fyrir hann. Með aðdáenda- bréfum senda þau honum greiningu Domostroys, þykjast hennar, á tón- list hans og ljósmyndir af likama konunnar sem höfða eiga til kynlífs snillingsins og gera það. Osten leggur upp í leit að þessari gáfuðu kvenveru. Þau skötuhjú smíða gildr- ur sínar við samfarir og eru þær lýsingar álíka aðlaðandi og þær í les- endabréfum tímaritanna Husler, Oui og Penthouse. Demostroy leiðist út í þessa veiðimennsku vegna tilgreindrar firringar en konan átti og freisting hans hins sama að gera hana að málsvara sínum. Það er ekki ljóst hver hugmyndabygging þessarar sögu er, ef hún er nokkur. Kosinski virðist gefa það í skyn í lokin, sem minna á skáldsöguna Hiö ónefnanlega eftir Beckett þegar sögumaður þeirrar sögu aö siðustu muldrar: „Ég get ekki haldið áfram, ég verð að halda áfram...” Domo- stroy stendur við skotboltavél, af- þreyingu hans — og tákn höfundar yfir frásagnarhátt sinn og lífsskyn — vélin sýnir „Leik lokið” á skilti, síðan „Leikur hafinn.” Og Domo- stroy getur sem snöggvast ekki ákveðið hvort hann á að nota sér peninginn sem hann hefur sett í rauf- ina, spila — konan, sem honum þó loks tókst að festa ást á, píanó- snillingurinn, orðin fræg fyrir hans skólun og óhæfa að fréttist að hún þekki þvílíkan mann sem hann; hann hefur því ákveðið að svipta sig þess- ari von. Osten farinn í fylgsni sitt á ný, einnig hann er ástfanginn maður frá gamalli tíð en þegar hér er komið vonlaus um að ná fundi þeirrar konu aftur. Sú sem bréfin sendi reyndist ekkiverahún. Þaö er ekki aðeins að samfélagið fómi alltaf þeim sem það lýsir ást- byJerzy Kosinski A-v.l áfc S ■ % 1 Iuj astouiuliny now novel by tho authof ot The Palnied Blrd „Reglufesta verka hans og a/vara, ópersónulegur háttur við framsetningu efnis, hefur á sér sama svipmót og einkennir far yngra fólks í dag." hugmyndina og hún gerir hvort tveggja að borga honum samstarfið með peningum og blíðu sinni. Skýring hennar er sú að hún geti ekki á heilli sér tekið fyrr en hún hefur gert Goddard að bólfélaga sínum. Tilefnið reynist þó vera allt annað, að komast yfir auðGoddards. Demo- stroy er græskulaus gagnvart véla- brögðum þessa kvendis. (Sagan núnnir um margt á Undirheim Ingi- mars Erlends Sigurðssonar, svo undarlegt sem það er því að sú saga er skrif uö miklu f yrr). Hættur listarinnar Bókin er hin þarfasta fyrir þá sem leggja í vana sinn að kaupa erlend eða innlend bersöglirit. Hún mýkir og setur í skiljanlegt samhengi þann sálarherðing sem af sliku plastbrúðukynlífi leiðir. Öðrum hljóta að þykja ömurlegar þær eðlanir sem frá er greint í bókinni. En burt séð frá fyrirferðarmiklum einkafantasíum, sem ég tel vera, er bókin geysikröftug og aðgengileg tjáning á samfélagslegum vanda listamanns sem hlotið hefur viður- kenningu þar sem alþýðan stjómar í krafti f jármagns eða skoðana. Lang- dregin, óvenju heilleg miöaö við verk Kosinskis, ritgerðarskáldsaga, kuldaleg, vonlaus. Líkt og i verkumSamuels Becketts er þögnin í verkum Kosinskis mælsk megi sína; listamaðurinn stendur einnig í þeirri hættu gagnvart sjálfum sér að hann leysi þann sál- ræna vanda sem er undirrót sköpunargáfu hans. Og ef listin er jafnframt æðsta stig andlegs heil- brigðis listamanninum og þeim sem kunna að meta hann hlýtur lista- maöurinn að leggja í sölumar tilefni listar sinnar hvar sem það er að finna, hvort sem það er vandkvæði hans sjálfs eða samfélags hans. Skáldsagan Skotbolti er úttekt á félagslegum vandkvæðum; snið bókarinnar og tilfinningalegt andrúmsloft er á hinn bóginn til marks um sálfarsleg vandkvæði höfundarins. Sköpunarþörfin, sem af þeim leiðir, hefur orðið höfundi afl til aö gera af sex skáldsögur a.m.k. Én af formfestu þessarar bókar, sumpart hjákátlegri, verður séð að höfundur sjálfur stendur nú frammi fyrir að þurfa að velja milli þess að verða annars fiokks rithöfundur, þ.e. ritari afþreyingarsagna, eða voga sjálfri sköpunarástríðu sinni meö þvi að greina eigin vandkvæði. Og þá e.t.v. ná því marki að veröa einn af helstu höfundum samtíöarinnar. En samtímis á hann á hættu að missa gáfuna, verða eins og Domostroy. Skotbolti er væntanlega tímamóta- verk á höfundarferli Kosinskis en á þeim ferli er enn sem komið er aðeins Ástríðuleikur, næstsíöust, ris- minni. FLJOTAND# ÁLKLÆÐNING Stór kostur þessarar þakklæðningar er sá að það má bera á gömul pappa- þök, þótt illa séu farin af veðrun eða leka. Þetta efni er vatnsþétt, endur- kastar hita, verndar gegn veðrun og minnkar fokhættu að mun, stenst vel útfjólubláu geisla sólarinnar. Þetta efni er mjög teygjanlegt, sterkt og lin- þornar ekki, en hefur mjög sterkan slitflöt. Þar sem um engin samskeyti er að ræða, þá sparar þetta kostnað- inn við upphitun hússins. Viðhalds- kostnaður er sára lítill en gera má ráð fyrir að setja eina umferð af efninu á 10—12 ára fresti sem er ólíkt þeim kostnaði við að þurfa að mála báru- járnið á 3—4 ára fresti. Þetta efni stenst vel alkalí, sýrur og seltu og önnur óhreinindi. Fæst i litum. Höfum 10 ára gamlar þakklæðningar og skrif- legar yfirlýsingar af ástandi þakanna i dag. Hafið samband og kynnið ykk- ur verð og greiðslukjör. Leitið tilboða tímanlega. Gerum tilboð yður að kostn- aðarlausu. Upplýsingar veitir GUNNAR F.E. MAGNÚSSON, MÚRARI í síma 91-20623 kl. 12 — 14 og eft- ir kl. 18. Skdla-hilluskilveggirnir bjóba upp á ótrúlega mikla möguleika í uppröðun. I skilveggina er hcegt að fá skápa, hillur og blómakassa eftirþörfum hvers og eins. Sendum um allt land, góð greiðslukjör. Ath. Veggirnir eru mjög auð- veldir í uppsetningu. SSb HÚSGÖGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100 SKÁI4 Hillu skilveggir \. j—'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.