Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 16
16 DV. LAUGARDAGUR25. JONI1983. TILKYNNING TIL SÍMNOTENDA A blaösíöu 458 í símaskrá 1983 hefur misprentast svæöisnúmer símstöðvarinnar Vogar Vatnsleysustrandarhreppi. Svæðis- númeriö er 92 ekkf 99. Vinsamlegast skrifið inn á blaðsíðu 458 svæöisnúmer 92 í stað 99. Póst- og símamálastolminin 1« « » »1 VINNUVÉLAEIGENDUR Tökum að okkur slit- og viðgeröarsuöur á tækj- um ykkar þar sem þau eru staösett hverju sinni. FRAMKVÆMDAMENN - VERKTAKAR Færanleg verkstæðisaöstaöa okkar gerir okkur kleift að framkvæma alls kyns járniðnaðar- verkefni nánast hvar sem er. stál-orka SIJ»MJ-0«VI»«líHttAÞ4lMVIJSTAIV « « » »i Simi: 78600 á daginn og 40880 á kvöldin. Ætlarðu í sumarfrí? Ef svo er þá er 3ja vikna ferðin til Benidorm 13. júlí. ódýrasti kosturinn. - Hreint ótrúlega lágt verð. Mjög góð gisting - Sértilboð á Don Miguel II 50TABARNA AFSLATTUR Meðalverð fyrir hjón með 2 börn Kr. 13.875.- fyrir manninn TAKMARKAÐ FRAMBOÐ KYNNIÐ YKKUR GREIÐSLUKJÖRIN MFERÐA Íll MK3STOÐIIV AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 Sönghátíð ’83 — heimsf rægt tónlistarf ólk með ténleika og námskeið Sönghátíð ’83 hefst í Reykjavik sunnudaginn 26. júní og stendur til föstudagsins 1. júlí. Gestir á henni eru sannarlega ekki af verri endanum, allt heimsfrægt tónlistarfólk. Þeir eru Elly Ameling, Glenda Maurice, Gérard Souzay og Dalton Baldwin. Þau munu halda hér tónleika og námskeið fyrir ís- lenska og erlenda söngvara og píanóleikara. Það er mjög sjald- gæft að svo margir frægir lista- menn séu hér á landi samtímis. Og það er ekki síst merkilegt fyrir það að þeir eru tilbúnir til aö miðla kunnáttu sinni og reynslu til ungra listamanna. Hér er því einstakt tækifæri, bæði fyrir söngvara og alla aðra áhugamenn um sönglist að njóta þess sem heimurinn hefur best uppá að bjóða í ljóðasöng. Tónleikamir verða haldnir i Austurbæjarbíói mánudags-, þriðjudags- og fimmtudags- kvöld. Námskeiðið fer fram í Hagaskóianum í Reykjavik að viðstöddum takmörkuðum fjölda áheyrenda. Fyrirhugaðir eru tvennir þátttakendatónleik- ar í vikunni. Sönghátíö ’83 verður sett óformlega sunnudagskvöldið 26. júní í Hagaskóla með samkomu þátttakenda, áheyrenda og annarra áhugamanna um söng. Þar sem söngskrá vikunnar er öll af erlendum toga er ætlunin að láta íslensk sönglög hljóma í upphafi hátíðarinnar það kvöld. Aðstandendur Sönghátíöar ’83 em Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Flugleiöir, Tónlistar- skólinn í Reykjavík og Tónlistar- félagið. JBH Elly Æmeling Elly Ameling fæddist í Rotterdam og hóf þar söngnám sitt hjá Jo Bollenkamp. Síðar kenndu henni Jacoba og Sam Dresden í Scheveningen, Bodii Rapp í Amsterdam og Pierre Bernac, baríton- söngvarinn frægi í París. Frægöar- ferill hennar hófst meö því aö hún vann til fyrstu verðlauna á Concours Inter- national de Musique í Genf og eftir þaö stóöu henni allar dyr opnar. Elly Ameling hefur feröast víöa og haldið tónleika. Þótt hún hafi mestar mætur á ljóöasöng, einkum þýskum og frönskum, hefur hún sungiö meö fjöl- mörgum hljómsveitum og kórum, bæöi kirkjulega og veraldlega tónlist, og í óperum jafnt vestan hafs og austan. Fyrsta óperuhlutverk hennar bæði við Hollensku óperuna og í Kennedy Center í Washington var Bia i „Idomeneo” eftir Mozart. Hljómplötur Elly Ameling eru nú orðnar fleiri en flestra annarra söngvara og hefur hún unnið til hinna eftirsóttustu viöurkenninga fyrir piötur sínar, svo sem Grand Prix du Disque, Edison Prize, Stereo Review RecordoftheYear Award og Preis der lenska ríkið hefur líka sæmt hana deutschen Schallplattenkritik. Hol- riddaratign fyrir listhennar. Glenda Maurice „Hún er mikil söngkona á hátindi getu sinnar... röddin er gædd nær óþrjótandi hljómmagni... þróttur og tæknileg fullkomnun eru aöaismerki hennar... hún er sérstæður túlkandi.” Þetta sagöi gagnrýnandi Daily News þegar Glenda Maurice hélt fyrstu ein- söngstónleika sína í New York í febrúarmánuði 1981. Glenda Maurice er gædd frábærri og víðfeðmri röddu frá náttúrunnar hendi, ásamt túlkunargáfu sem ristir jafndjúpt og hún er eðlileg. Hún hefur komið fram um gjörvöll Bandaríkin, bæði í óperum og á tónleikum. Nýlega söng hún einsöngshlutverk í Missa Solemnis eftir Beethoven, Requiem eftir Verdi, Joshua eftir Handel, Alt- rapsodiu eftir Brahms, auk þess sem hún hefur tekið þátt í flutningi á messum og passíum Johan Sebastian Bach. Hvar sem Glenda Maurice hefur komið fram sem einsöngvari með hljómsveit hafa Wesendockljóöin eftir Richard Wagner og ljóðaflokkur Gustavs Mahler verið ofarlega á baugi. Og á óperusviðinu hefur hún getið sér orð fyrir hlutverk í óperum Richards Wagner og í nútímaóperum amerískra höfunda. Á tónleikasviðinu hefur Glenda Maurice unnið með frábærum undir- leikurum á borð við Dalton Baldwin, David Garvey og Rudolf Jansen. Hún hefur sungiö inn á hljómplötur fyrir CBS, meðal annars lög eftir Mahler, Brahms og Richard Strauss við undir- leik Daltons Baldwin. Auk þess hefur hún hljóðritað sönglög eftir Benjamin Britten og Samuel Barber, við undir- leik David Garvey. Hún hefur einnig tekið þátt í hljóðritun á verkum eftir Debussy fyrir hljómsveit og söng- raddir ásamt Jessye Norman, Ileana Cotrubas, Dietrich Fischer-Dieskau og José Carreras. Glenda Maurice hefur búsetu í Delaware í Bandaríkjunum og til- heyrir kennaraliði háskólans í Delaware þar sem hún stundar kennslu á milli tónleikahalds. JBH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.