Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 25
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983. Ásgerður og Kristínn. Myndin var tekin á meðan skepnur dóu uppi á islandi úr kulda. Uti í Vín var hins vegar 30—40 stiga hiti. Og rósimar að baki hjónanna stóðu í blóma. Um þær og annað í garðinum hugsa þau hjónin. Það er hluti af leigunni sem greidd er fyrir íbúðina. og hálfa til þrjár klukkustundir í senn. Æfingar á Don Giovanni hófust svo um áramótin. Þær voru á hverjum degi núna síðustu tvo mánuðina, frá klukkan tíu á morgnana til sex á kvöldin. Þetta voru eiginlega eingöngu leikæfingar. Leikurinn er merkilega vanmetinn hluti af óperunni. Leikurinn hefur verið 3/4 hjá mér undanfarið og söng- urinn aðeins 1/4. Ég fékk líka að heyra það í byrjun í óperudeildinni aö ég væri á algeru byrjendastigi. Eg kynni ekk- ert og vissi ekkert. Okkur segir til Þjóðverji af gamla skólanum sem er geysilega harður. Það er ekki óalgengt að fólk fari grátandi út úr tímum hjá honum.” — Hefur Kristinn Sigmundsson kannski grátið undan þeim manni? „Nei, en ég hef oft verið ansi fram- lágur þegar ég hef komiö heim. ” / félaqsskap fíeiri Islendinga Tónlistarakademían í Vin hefur lengi verið ákaflega vel sótt af Islend- ingum. Þama lærðu, svo aðeins séu fá dæmi tekin, Olöf Kolbrún Haröardótt- ir, Sigríður Ella Magnúsdóttir og Már Magnússon. >fEinn tenórinn sem söng með mér í Don Giovanni lærði hér á sínum tíma með Olöfu. Hann er núna menningarfulltrúi kólombíska sendi- ráðsins. Hann bað mig fyrir kveðju til hennar. Er ekki upplagt að koma henni svona á framfæri,” segirKristinn. Það vakti furðu mína að þessi maður er búinn að vera að læra í áratug eða meira. Kristinn sagði að slíkt væri ekki óalgengt. Stangast það ekki á við það sem hann sagði áðan um það að miklar kröfur væru gerðar? „Stundum syngur fólk vel þótt það hafi verið stutt í skóla og stundum illa þótt það hafi verið lengi. Lengd skóla- göngunnar virðist ekki skipta öllu máli. Fólk getur verið árum saman í skóla án þess að geta nokkurn tímann sungið. Þó að miklar kröfur séu gerðar eru menn ekki endilega felldir á próf- um ef þeir standast þær ekki. Miklu frekar er það að menn finna hversu ilia þeir standa sig og hreinlega gefast upp. Þeir sem eitthvert vit hafa í koll- inum. Hinir eru að berjast árum saman og skilja aldrei neitt í því af hverju þeim gengur svona illa. Hlið- stætt er þetta í óperuhúsunum.” — Snúum okkur að Don Giovanni, vini þínum. Þú ætlar að syngja hann í haust, er þaðekki? „Jú, ég verð kominn aftur hingað í október og syng allar þær sýningar sem fyrirhugaðar voru. Þær eru reyndar ekki nema fjórar. Eftir það veit ég ekki hvað veröur. Kannski fer ég til Japans,” segir Kristinn og glottir. ,,Sýningarnar sjálfar skipta mig oröið engu máli. Eg er búinn að leggja það mikla vinnu í þetta að nú vil ég fá að koma henni frá mér. Það vakti líka fyrir mér, með því að taka þátt í þessari sýningu, að margir umboðsmenn koma og hlusta. Fyrst þeir koma hins vegar ekki til að hlusta á mig núna verð ég að fara og syngja fyrir þá. Hvort ég verð hér áfram velt- ur á því hvort ég fæ eitthvað að gera sem söngvari. Eg er oröinn það gamall og á fyrir fjölskyldu að sjá að það er ekki nema lágmarks ábyrgðartilfinn- ing að reyna að vinna fyrir salti í grautinn. Eg vil láta reyna á það hvort ég get fengið vinnu hérna úti. Mig lang- ar að prófa að vinna erlendis í eitt til tvö ár áður en ég kem heim. Fyrst og fremst til að fá reynslu á sviði. Til að geta síðar boriö sjálfan mig saman við þá sem eru að vinna í útlöndum. Ef ég fæ hins vegar ekkert að gera héma úti kem ég heim í haust. Og ég kvíöi ekki atvinnuleysi heima. I næsta mánuöi tek ég þátt í keppni sem kennd er við Belvedera höllina hérna í Vín. Þar verður allt uppfullt af óperustjórum og umboðsmönnum. Kannskiá ég einhvem sénslþar.” Menningarsigur íslendinga Islenska þjóðin gerði meira en þaö að lána Kristin Sigmundsson til þess að syngja í ópemnni Don Giovanni. I tutt- ugu manna kór óperunnar eru hvorki meira né minna en þrír Islendingar. Það eru þau Jón Yngvi Olafsson, Rannveig Bragadóttir og Signý Sæmundsdóttir. öll em þau að læra söng hjá sama kennara og Kristinn. Jón er auk þess í háskólanámi. „Þetta gæti orðið einn stærsti menningarsigur Islendinga á erlendri grund,” segir Kristinn. Viö báðum hann að bera svolítið saman tónlistarlífið í þeirri frægu tón- listarborg Vín og heima á Islandi. „Það er alveg óþarfi fyrir Islendinga að vera með einhverja minnimáttar- kennd vegna þess sem ljpima er gert. Eg get tekið dæmi um sýningu sem ég sá fyrst heima og síðan hér í Statsoper. Það var La Bohéme. Hér var hún svið- sett af Fronco Zeffirelli sem þykir afar góður. Einsöngvarar voru heimsþekktir En samt var það svo að þó sýningin heima væri minni að öllu leyti stóð hún sýningunni hér ekkert að baki, hvorki í tónlist né leik. Þó að hér sé besta hljómsveit sem starfar við nokkra óperu í heiminum nægði það ekki til aö sýningin virkaði eins vel á mig og sú semég sá heima,” sagðiKristinn. Það fer að verða kominn tími til að kveðja Kristin og fjölskyldu hans. Konan hans, hún Ásgerður Þórisdóttir, og sonurinn Gunnar hlustuðu með öðru eyranu á spjall okkar Kristins en tóku í því lítinn þátt. Þau Kristinn og Asgerð- ur giftu sig árið 1973. Þá sagðist Krist- inn hafa verið búinn að plægja í gegn- um alla þjóðskrána og leita að konu með nafninu Asgerður. Eins og kom fram í upphafi viðtals heitir móðir hans einmitt Asgerður. Ur Ásgeröar- hópnum sem hann komst yfir að skoða valdi hann svo fallegustu konuna. Sonurinn Gunnar er fæddur árið 1979. Asgerður var hjúkrunarfræðingur á Slysadeild Borgarspítalans áður en þau fóru til Vínar. Tími hennar hefur síðan farið í að gæta Gunnars og kannski Kristins líka. -DS. Hið örlagaríka gips sem gerði það að verkum að fresta varð heilli óperu. „Sjarmörinn” Don Giovanni getur ekki látið sjá sig í slikurn uinbúðuin. DV-inynd GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.