Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Qupperneq 31
DV. LAUGARDAGUR25. JUNI1983.
31
Skoskur dans
kringum
svarta
gnllkálfinn
The Local
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Happer (Burt Lancaster) deilir og
drottnar í olíuævintýrinu skoska í
kvikmyndinni Local Hero.
Kvikrr
myndar. Þeir komu sér fljótlega
saman um að hyggilegt væri að gera
kvikmynd um olíuævintýrið við Skot-
landsstrendur enda er Forsyth Skoti.
1 fyrstu var íhugað hvort ekki væri
vert að gera spennandi mynd sem
sýndi borpallana veltandi í ólgusjó
en Forsyth þótti rétt að snúa sér
fremur að mönnunum á bakvið allar
framkvæmdirnar. Hvað gerist líka
meðal íbúa smábæjar sem allir eru
orðnir vel stæðir á einni nóttu eftir að
olíulindir hafa fundist úti fyrir
ströndinni?
Forsyth settist niður og tók að rita
handritið að Local Hero en á meðan
fékk Chariots of Fire óskarsverð-
launin og rakaði inn gífurlegum auöi.
Þaö er því ekki að undra þó gagnrýn-
endur hafi litið Local Hero alvarleg-
um augum og reynt að meta hvort
Forsyth og Puttnam gætu gert eins
vel eða betur en síðast. Dómar
þeirra eru yfirleitt á einn veg, mynd- .
in þykir stórvel gerð, þó ýmislegt
hefði ef til vill mátt betur fara.
Kvikmyndatakan í Local Hero er
afburðagóð og auganu sönn veisla.
Skoska þorpið í myndinni og íbúar
þess þykja hins vegar vart nógu
sannfærandi og hinar skosku hefðir,
sem hafðar eru í hávegum í mynd-
inni, þykja ef til vill ekki nægilega
raunverulegar.
Peningavaidið ræður
Burt Lancaster leikur Happer,
olíufurstann frá Texas, og ferst það
auðvitað vel úr hendi. Happer þessi
deilir og drottnar í krafti peninga-
valdsins og því virðast engin tak-
mörk sett. Spurningunni um það,
hvort olíufélögin geti leyft sér hvað
sem er þegar stórkostlegir hagsmun-
ir þeirra eru í veði, er aldrei svarað í
myndinni. Happer hefur valdið og
beitir því ef honum þóknast.
Þó að lausir endar f innist í handriti
Forsyths þá verður það sama ekki
sagt um leikstjómina. Hana hefur
Forsyth á valdi sínu og leikaramir
sýna einungis snilldarleik. Aðalleik-
arar myndarinnar auk Burt Lan-
Danny Oldsen (Peter Capaldi) nýtur náttúrufegurðar við skosku
ströndina þar sem olíuhreinsunarstöðin á að rísa.
casters em þeir Peter Riegert, Denis
Lawson og Peter Capaldi. Riegert
leikur ungan dugnaðarfork frá Tex-
as, Maclntyre, en Capaldi er í hlut-
verki Skotans Oldsens. Andstæðurn-
ar milli þessara manna em undir-
strikaðar með nöfnum þeirra.
Bandaríkjamaðurinn, sonur ung-
versks innflytjanda, ber nafnið Mac-
Intyre vegna þess að faðir hans tók
sér þetta nafn við komuna til Banda-
rikjanna. Oldsen er hins vegar Skoti í
húð og hár þrátt fyrir nafnið. Fleira
af þessu tagi er að finna í myndinni,
til dæmis skoska prestinn sem ber
nafnið MacPherson og talar ensku
með skoskum hreim en er engu að
síður þeldökkur og greinilega ætt-
aður úr Afríku að langf eðgatali.
Margföld atburðarás
I Local Hero fer fram fleiri en einni
sögu þó aðgerðir olíuveldisins séu í
forgrunni. Til skjalanna kemur ung-
ur sjávarlíffræðingur, Marina
(Jenny Seagrove) að nafni, en hún
virðist einna helst af ætt hafmeyja.
Eins og slíkum verum er títt verður
hún ástfangin af manni á þurru
landi, engum öðrum en Oldsen hin-
um skoska. Happer glímir líka við
fleira en olíusamninga. Hann hefur
mikinn áhuga á fljúgandi furðuhlut-
um og kemur þessu áhugamáli sínu
inn hjá fleiri af persónum myndar-
innar. Af þessu spinnst hinn ágætasti
brandari þegar þó nokkrir þykjast
sjá furðuhlut svífa um en gripurinn
er þá enginn annar en Happer sjálfur
á ferð í þyrlu sinni. Eins og ríkum
Bandaríkjamanni sæmir hefur
Happer orðið sér úti um sálfræðing.
Sálfræðingurinn beitir fjölþættum
aðgerðum til að hressa Happer við
og hringir meðal annars í hann að
náttarþeli til að gera honum gott.
Heildartilgangur Forsyths með
Local Hero virðist vera að flétta
saman frásögn af pólitískum átökum
útaf Skotlandsolíunni og lífinu í
skoskum smábæ. Skoska sveitasæl-
an virðist þó hverfa í skuggann fyrir
aöalþema myndarinnar, fjármálun-
um. Þó er einum og einum þjóðleg-
um karakter skotið að í myndinni, til
dæmis Urquhart nokkrum, sem er
saksóknarinn í skoska bænum en
rekur jafnframt leigubílastöð og
hótel.
Þó Local Hero hafi fengið þann
dóm að vera ein af áhugaverðustu
myndunum sem Bretar hafa sent frá
sér á þessum áratug þykir hún hafa
umtalsverða galla. En þegar á heild-
ina er litið eru það menn á borð við
Forsyth og Puttnam sem menn
binda vonir við í framtíöinni.
Frábær kvikmyndatónlist
Ekki verður með öllu skilist við
Local Hero án þess að minnast ögn á
tónlistina í myndinni. Höfundur
hennar er enginn annar en Mark
Knopfler, aðalmaðurinn í Dire
Straits. Það var Puttnam sem hlust-
aði á plötu Dire Straits, Making
Movies, og sendi hana síðan til For-
syths. Sá var ekki lengi að ákveða sig
og sagði að þama væri komið tón-
skáld við hæfi. Platan með lögum úr
Local Hero er vægast sagt stórgóð og
ólík ýmissi vellu sem menn hafa sett
saman fyrir kvikmyndir. Skifan sem
ber glögg merki höfundar síns er
þegar fáanleg í Reykjavík, en óvíst
er hve lengi þarf að bíða eftir mynd-
inni sjálfri.
-SKJ.
Hero
LOCAL HERO er áðreiðanlega
viðamesta kvikmynd sem leikstjór-
inn Bill Forsyth hefur gert. Næsta
mynd hans á undan LOCAL HERO
var GREGORY’S GHtL, kvikmynd
sem fékk góðar viðtökur og hreppti
nokkur verðlaun innan Bretlands
þrátt fyrir misjafnar móttökur gagn-
rýnenda. GREGORY’S GIRL segir
frá sextán ára skólapilti sem er æst-
ur aðdáandi fótboltans og iðkar
íþróttina af miklum áhuga. Allt virð-
ist í stakasta lagi þegar kvenpersóna
ryðst inn á sjónarsviðið. Hún er um
það bil jafnaldra piltsins og jafn-
áhugasöm um fótbolta og hann. Erf-
iðleikar sveinsins unga spretta hins
vegar af því að stelpan er einfaldlega
betri leikmaður en hann og tekur
stöðu hans í skólaliðinu. Af þessum
söguþræði má sjá að handritið að
GREGORY’S GIRL er ekki sérstak-
lega frumlegt en engu að síður þótti
kvikmyndin hressandi tilbreyting
frá doðanum sem rikt hefur í breskri
kvikmyndagerð.
Tveir þeir sprækustu
En fleiri kvikmyndir en Gregory’s
Local Hero fjallar um aðgerðir
bandarísks olíufyrirtækis við Skot-
landsstrendur. (J.R. og hinir Ewing-
amir koma þar hvergi nærri.) Mikil
olíuhreinsunarstöð á að rísa í smábæ
en íbúar hans hafa löngum haft við-
urværi sitt af fiskiríi. Olíuhreinsun-
aráætlunin verður einskonar Blöndu-
virkjun í héraðinu en allflestir íbú-
anna sjá að svarta leðjan sem dælt er
upp úr hafinu muni jafngilda gulli og
grænum skógum.
Gerð myndarinnar Local Hero
kostaði fimm milljónir Bandaríkja-
dala (reikni nú hver fyrir sig á nýja
genginu) og kvikmyndin er alger-
lega fjármögnuð af breskum aðilum.
Taka myndarinnar fór bæði fram á
vestur- og austurströnd Skotlands en
að auki brugðu kvikmyndageröar-
menn sér til Texas, nánar tiltekið
Huston, til að mynda amerísku olíu-
höfðingjana á heimavelli.
Fjármögnun Local Hero gekk með
ágætum en sama verður ekki sagt
um Gregory’s Girl því Forsyth mátti
leita lengi áöur en hann fann ein-
hvem sem hafði nógu mikla trú á
honum til að vilja leggja fé til gerðar
Girl báru á síðustu árum með sér
ferskan andblæ, kvikmyndin
Chariots of Fire þó öðrum fremur.
Leikstjóri hennar er Hugh Hudson en
framleiöandinn David Puttnam. Það
er einmitt sá sami Puttnam sem er
framleiðandi myndarinnar Local
Hero og því var ekki nema von að
menn biðu meö nokkurri eftirvænt-
ingu eftir nýrri mynd frá tveim af
sprækustu piltunum innan breskrar
kvikmyndagerðar.
myndarinnar. Einn þeirra framleið-
enda sem Forsyth fór til var David
Puttnam, en í þaö skiptið neitaði
hann allri samvinnu.
Spennan eða hinn mannlegi
þáttur
Þegar Gregory’s Girl var komin
vel á veg og alla leið inn á borð hjá
klippurunum var það Puttnam sem
leitaði til Forsyth og lagði til að þeir
tækju höndum saman við gerð kvik-
Gregory’s
Girl
I kvikmyndinni Gregory’s Girl á unga parið fótboltann að saineigin
legu áhugamáli en samkomulagið er þó ekki alltaf uppá það besta.