Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Page 34
34
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983.
Helgarvísur
Helgarvísur
Helgarvísur
Helgarvísur
58. þáttur
Hulda Björnsdóttir sendir þættinum þessa
ástandsvísu:
Ástandspíkur áttu gott
ekki sízt í fletum.
Þágu bædi þurrt og vott
og þœgilegheit hjá Bretum.
Ég rakst á gamalt bréf frá Þráni Þorvalds-
syni, Þórarinssonar frá Hjaltabakka. Þráinn
sendir Kjartani Sigurjónssyni, skólastjóra á
Isafiröi, þessakveöju:
Hcelir jafnan sjálfum sér,
sidprgðina lemur.
,,Kains ”— merkið Kjartan ber
kannski ödrum fremur.
Þráinn segir, aö Alexander Stefánsson hafi
fengið þessa afmælisvísu f rá sér:
Bídur flestra gröfin grá,
gerast riðir fúnir.
sexllu ára svipnum á
sjást vel lygarúnir.
Aðalheiður Jónsdóttir botnar:
Skyldi ,Slefanía"nú
ná að endurfeeðast,
þýlyndis á breiðri brú
bogin ennþá la ðast ?
Örlaganna báru-blak
byltir mörgu í heimi.
Minna vona flýtur flak
fyrir öfugstreymi.
Löngum einn ég verst í vök
vonleysis og kvíða.
Fyrir marga meinta sök
má égþjást og líða.
Vonin þreytir víða flug,
vonlaust oft þó reynist.
Enginn veit hvað innst i hug
annars stundum leynist.
Fyrir sjónum manna má
margur rangt sig kynna
til að leyna trega og þrá
tilfinninga sinna.
A ýmsa lund vort innsta þel
örtög sundur toga,
en kaldri undir klakasket
kyndlar slundum loga.
Vndir margri ygglibrún
örlar fyrir meinum
eftir sára sorgarrún
— segir fátt af einum.
Stundum getur lítið Ijóð
losað flís úr veiku holdi
og tendrað afturgamla glóð,
sem gustinn kalda illa þoldi.
Gunnþór Guðmundsson í Dæli botnar:
Lífs á göngu lúinn ég
lil nú yfir farinn veg.
Áfanginn, sem ekki sést,
ýmsum kann þó reynast bezt.
\ú er ror um fold og firði,
ferðalanga vaknarþráin.
Hjólafákinn gjörðum gyrði,
geysast síðan út í bláinn.
Skyldi ,,Stefanía” af náð
ná að endurfœðast —
eða Kjartans kammeráð
kotbúskapinn hra ðasl?
Kristinn Björnsson, Bólstaðarhlíð 13 í
Reykjavík, botnar:
Ætíð saklaus sæt og fín
saman bezt við undum.
„Þú um mig frá mér tilþín ”
magnaðist þó stundum.
Æska þín var efnisrík,
ung varsl geislum vafin.
Núna ertu liðið lík,
lágt í moldu grafin.
Hefur jafnan heiltað mig,
heitt ég mun því vona,
að ég megi eiga þig,
elskulega kona.
Þó að mörgum þyki gott
þrumarann að smakka,
sýnist alltaf franskbrauð flott
í félagsmálapakka.
Lýðum fannstu raunhæf ráð,
rekka nauztu hylli,
tiðum vannstu djarfa dáð,
drjúga hlauztu snilli.
Falla valla griisin græn,
gleði hallar karla.
Fjalla-skalla vefur væn
voðin mjallar alla.
Hriðin stríða móði með
mönnum kvíða vekur.
Tíðin blíða gteður geð,
gaddinn þíða tekur.
Tekur líða ævi á,
ellin stríða bagar,
vekur kvíða höldi hjá,
hverfa blíðudagar.
Kæra elsku móðir mín
milda, hjarla varma
færa minnin þýðu þín
þekkan létti liarma.
Daníel kveður tvíræð sléttubönd:
Heldur loforð, aldrei á
æru níðist manna.
Veldur góðu, síður sá
sóma hallar granna.
Maður góður, aldrei er
illur síiiuin grönnum.
Glaðurjafnan, lítið lér
lofið verstu mönnum.
Á ÞINGINIJ ER ÞOKM GRÁ
ÞÖRF A SVII'TIVIMILM
Jónatan Jakobsson kenndi mér næstu vísu.
Hann heldur, án þess að fullyrða þaö, að vísan
sé eftir konu úr Kelduhverfi, og hafi hún ort
hana, er reiðhestur hennar var felldur:
Ellin hallar öllum leik,
ættum valla að sláta.
Hán mun alla eins og Bleik
eill sinn falla láta.
„Loki Laufeyjarson” botnar:
Margan æsti glysið glæst
og glaumur hæstu sala.
Oft úr smæstu æxlast stærsl,
en um það fæstir tala.
Þegar aftur vaknar vor,
verður glatt ískinni.
Eigi dey ég enn úr hor,
þótt ekki neitt ég vinni.
Gvendur J. Botnar fyrripart Friðriks Sigfús-
sonar:
Þó að okkarþjóð sé beygð
og þyngist margra róður,
ekki sækir að mér feigð
ennþá, Friðrik góður.
Gvendur J. botnar einnig fyrriparta Eysteins
íSkáleyjum:
Þó að margur meti popp,
mér erþað til ama.
Fer ég samt og fæ mér hopp,
fáist einhver dama.
Jörðin er hörmulegt hallærisplan
og heimurinn óþverrastaður.
Oftast er hagsældin of eða van
og umræðan heimskulegt blaður.
Jón Sigurðsson frá Skíösholtum er hálf-níræð-
ur að aldri og býr í Borgarnesi. Hann sendir
þættinum ágætt bréf. Hann sendir vísur er hann
kallar:
íamstri daganna
Vakir lengi í vitund manns
vonin trega-sára,
þó að gengi hamli hans
hrakföll bernskuára.
Þegar finn ég handtök hlý
hjartans inn að griinni
geymast kynnin óspiltt í
endurminningunni.
Jón segir þessar vísur gamlar nema þá síð-
ustu. Hann bætir viö:
Líður að endalokum
Líða dagar lífs í önnum,
leikur hagur sitt á hvað.
Allt er nagað tímans tönnum,
tíð og saga vitna um það.
Förlast þróttur, fjörið dvínar,
fölna ótt hin grænu strá.
Verður htjótt um vísur mínar,
vetrarnóttin dettur á.
Fyrir handan móðu og mistur
mér í anda gefur sýn:
Ollum vanda undan leystur,
óskalandið bíður mín.
Vera má í veröld nýrri
verðiþrá mín endurnærð,
vakniþá í dýrð og dýrri
draumaspá af meiri stærð.
„Gömul kveðja” kemur næst:
Lifa enn í mínu minni
munablíðu hótin þín.
Yfir fennir okkar kynni —
og um siðir sporin mín.
Ég verð að láta fleira, sem Jón sendir, bíða
næsta þáttar.
Erlendur Hansen á Sauöárkróki sendir
botna:
Hækkar sólin liiinni á,
hopar fönn af tindum, —
á þinginu erþokan grá,
þörf á sviptivindum.
Vonir glæðast, vakna senn
vorsins blóm í haga.
Upp til sveita eru menn
allt að bæta og laga.
Ég er Ijóss og birtu barn,
blómum ann af hjarta, —
sigli, ótrauður, gleðigjarn
gegnum húmið svarta.
Ennþá hækkar mjólk og mör,
mér fer ekki að lítast á.
Niðurtalning, neyðarkjör,
nóttin svört og Gunnar frá.
Margt er gjört til gamans, þá
göngu ört fram miðar.
Höllustaði horfa má,
hof ins mikla friðar.
Ekki reynist gatan greið,
grjót í hverju spori.
Ég skal finna aðra leið
af einurð, festu ’ og þori.
Lárus Hermannsson botnar eigin fyrripart:
Fjöldi hefur á Flúðum gist,
finnst þar mörgum gaman.
Erótík og útivist
eru fléttuð saman.
Og Lárus botnar enn:
Þó að mörgum þyki gotl
þrumarann að smakka,
það breytzt getur í brókarþvott,
borðirðu marga pakka.
Ekki reynist gatan greið,
grjót í hverju spori.
Ófær sýnist önnur leið
enn á þessu vori.
Drekk ég bæði mjólk og mysu,
því mikiðþarf að strita ogpúla.
Yrkið Ijóð um krumma og kisu,
kref ég ykkur, Þröst og Skúla.
Margir eru þeir enn, sem iöka þá þjóðaríþrótt
að setja saman vísur og kviðlinga. Þeir eru lík-
lega fleiri, sem það stunda, en menn gera sér al-
mennt í hugarlund. Nýlega kom ég sem oftar á
lækningastofu vinar míns, Sæmundar Kjartans-
sonar húðsjúkdómalæknis. Þar var maður,
Hallmundur Kristinsson að nafni, aö dúkleggja
og teppaleggja stofuna. Sæmundur kynnti okkur
og sagði Hallmundi, að ég væri umsjónarmaður
Helgarvísna í DV. Þá kvaðst Hallmundur svo
sem geta látið mér nokkrar stökur í té, en sagði
bezt við eiga, að hann léti mig heyra það nýj-
asta, sem hann hefði ort:
Ljóð mín munu leiða af sér siðbót,
líka það að fleiri verði góðskáld.
Ef ég gerði eina vísu í viðbót,
er viðbúið ég yrði kallað þjóðskáld.
Sigurgeir Þorvaldsson sendi mér á sínum
tíma Vísnakver Daníels Ben. Daníel hefur verið
mjög leikinn að ríma, og eru margar sléttu-
bandavísur í kveri hans, hvorki fleiri né færri en
250. Þær eru margar mjög vel kveðnar, og fara
nokkrar þeirra hér á eftir:
Meinum strjálar hyggjan hlý,
hreystin málar kinnar.
Hreinum bálar aiigum í
eldur sálar þinnar.
Þá er komið að nýjum fyrripörtum. Erlendur
Hansen hefur þennan formála að sínum fyrri-
parti: „Þjóöin tók eftir því, að veðurfar breytt-
ist til hins betra, þegar nýr landbúnaöarráð-
herra tók við.”
Á Seglbúðum er sífellt vor,
en sólarlaust á Akri.
Jón Sigurðsson frá Skíösholtum sendir fyrri-
part, sem hann væntir, að góöur hagyrðingur
geti botnað. Reyndar sendir hann vini sínum,
Guðmundi Sigurðssyni frá Höfða, sérstaka
kveðju með þessum ljóðlínum:
Finnst mér undir fótum iníniim
feðra grund sé heilög jörð.
Lárus Hermannsson segir:
Til gamans veil éggefa þér
góða fyrriparta.
Um ævintýrin enn má skrifa,
ærin munu tilþess föng.
Einhvern tíma öllþið grétuð,
ástvininn ei misstuðþó.
Hér á ineðal munu vera
menn, erkunna sig að tjá.
Varla ein mun Ijóða-lína
létta allri sorginni.
Lárus sendir fyrripart, sem er, að ég held,
samhljóða fyrriparti vísu, sem Bjarni
Asgeirsson orti, er hann hafði keypt læri í
kjötverzlun í Reykjavík. Vísa Bjarna er svona:
Þar sem einn á öðruin lifir,
efnishyggjan verður rík,
þess vegna kemst enginn yfir
ódýr læri í Reykjavík.
En Lárus botnar fyrripart B jarna svo:
Gróðrafiknin gnæfir yfir
gjörðum manna í Reykjavík.
Mér finnst, aö lesendur geti vel notað botn
Lárusar sem fyrri part.
Skúli Ben
Utanáskriftin er:
Helgarvísur
Pósthólf 66
220Hafnarfjörður.