Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Síða 48
r
- TlMARIT
FYRIR ALLA.
ÁSKRIFTARSÍMI
ER 27022.
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
Skákmótið íBela Crkva:
lón L. í
ef sta sæti
Jón L. Arnason vann glæsilegan sig-
ur á júgóslavneska stórmeistaranum
Vukic í sjöundu umferð skákmótsins
sem nú stendur yfir í Bela Crkva í
Júgóslavíu. Með þessum sigri komst
Jón L. í efsta sæti mótsins en því deilir
hann með f jórum öðrum skákmönnum.
Hinum Islendingunum á mótinu
gekk ekki eins vel, Jóiiann Hjartarson
tapaði fyrir júgóslavneska stórmeist-
aranum Marjanovic, Karl Þorsteins-
son tapaði fyrir Júgóslavanum Krcnic,
Margeir Pétursson og Belgíumaðurinn
Peagericht gerðu ja&itefli og sömuleiö-
is gerðu þeir Elvar Guðmundsson og
júgóslavneski stórmeistarinn Kneze-
vic jafntefli.
Að loknum sjö umferöum á mótinu
eru þeir Rakic, Martinovic og Jón L.
efstir og jafnir með 6 vinninga. Mar-
geir er skammt á eftir með 5 1/2 vinn-
ing, Jóhann og Karl eru með 5 vinninga
og Elvar er meö 41/2 vinning.
Veður í Júgóslavíu var hið besta í
gær, sól og blíða og mesta furða hvað
skákirnar entust aö sögn Jóns L. Arna-
sonar. -SþS.
Ferðaskrifstofu-
leyfi afturkallað
Samgönguráðuneytið hefur aftur-
kallaö ferðaskrifstofuleyfi Ferðaskrif-
stofunnar Olympó hf. Ástæða þess er
sú aö ferðaskrifstofan setti ekki full-
nægjandi bankatryggingu fyrir rekstr-
inum, en hún er samkvæmt ákvörðun
ráðuneytisins 800 þúsund krónur.
-JH
12.369 bifreiðatjón:
Sem samsvarar
100 einbýlishúsum
Hvorki meira né minna en 12.369 bif-
reiöatjón voru bætt í ábyrgðartrygg-
ingum á síðasta ári. Hins vegar sýndu
lögregluskýrslur einungis 7.622 bætt
tjón.
Þessar upplýsingar komu fram á
þjálfunarnámskeiði fyrir ökumenn
sem tryggingafélögin FlB, Umferðar-
ráð og ökukennarafélag Islands geng-
ust f yrir nýverið.
Þetta gífurlega tjón sem veröur á bif-
reiðum hér á landi á árihverju kemur
að sjálfsögðu fram í síhækkandi iö-
gjöldum tryggingafélaganna. Þannig
nam heildarkostnaður ofangreindra
félaga vegna umferðaróhappa á síð-
asta ári 232.565 þúsund kr. sem sam-
svarar verði á eitt hundrað einbýlis-
húsum að því er fram kom á námskeið-
inu. -JSS
LOKI
Nú er hver síðastur að
gúma út fyrir mánaða-
mótin.
Hertar reglur um ávísanareikninga:
EIN LOKUN ÞÝÐIR
ALLSHERJARLOKUN
Nýjar og hertari reglur um tékka-
viðskipti taka gildi 1. júlí. Ein veiga-
mesta breytingin er sú að ef lokað er
fyrir einn reikning í ákveöinni
bankastofnun þá ber að loka öðrum
tékkareikningum sem sami maður
hefur í sömu peningastofnun eða
annars staðar. Fyrri reglan var sú
að slík allsherjarlokun gat aðeins
orðið ef um kæru til sakadóms var að
ræða.
Þessi breyting snertir alla þá sem
hafa tékkhefti á þann hátt að menn
verða að gæta þess betur að fá ekki á
sig lokun. Þá geta þeir átt á hættu að
fleiri stofnanir loki á þá og líka að
láunstraust þeirra hjá bönkunum
minnki mjög mikið. Áður var það
þannig að þó að ein stofnun lokaöi
reikningi gat eigandinn vakiö aðra
reikninga sína og byrjað að gefa út
ávísanir annars staðar eins og ekk-
ert væri. Núverður hannalmenntúti-
lokaður frá tékkaviöskiptum í kerf-
inu.
Einnig verður erfiðara að opna aft-
ur tékkareikning, það er að segja að
fella nafn sitt af lokanaskránni. Sé
viðkomandi kominn á hana verður
hann að vera þar minnst tvö ár og
enginn sem er á lokanaskrá fær að
opna tékkareikning. Refsing þyngist
eftir því hve mörgum reikningum
hefur verið lokað vegna misnotkun-
ar. Séu tveir reikningar misnotaðir
er refsingin þrjú ár og f jögur ár fyrir
þrjá reikninga og svo framvegis. Yf-
irleitt má segja að betur verði skoð-
að en áður hvernig viðkomandi hefur
hagað sér í viðskiptum til að meta
hvort hann skuli fá tékkhefti. Þar
kemur meðal annars til hvort hann
hefur á sér dóma fyrir víxilbrot eða
eitthvaðslíkt.
Fleiri breytingar taka gildi um
tékkaviðskipti nú um mánaðamótin.
Eru þær ekki síður aöhaldsaðgerðir
fyrir peningastofnanimar en við-
skiptavinina.
-JBH.
Forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir, ávarpar isfirðinga af Austur-
fcfel. Fins og sést á myndinni hafði safnast mikiii
isturvöll til þess að fagna forsntanurp. Nánar er
*ðaÍÍör forsetans á bls. 3.
DV-simamyntt GVJ\
■mmmr^ffnannfiöídi
VIÐ ERUM BJARTSYNNI
„Við erum bjartsýnni nú,” sagði
dr. Paul Miiller, aðalsamninga-
maður Alusuisse, síðdegis í gær að
loknum viðræöum við samninga-
nefnd íslensku ríkisstjórnarinnar.
Ákveðið var að deiluaðilar hittust
aftur í Reykjavík eftir mánuö, 21. og
22. júlí næstkomandi.
Á fundinum í gær vom rædd deilu-
efni þau sem lúta að álmálinu. Enn-
fremur var rætt um hugsanlega
endurskoðun álsamninganna. Að
sögn dr. Jóhannesar Nordal, for-
manns íslensku nefndarinnar, vom
þetta fyrst og fremst könnunarvið-
ræður. „Aðaltilgangurinn var að
kynna sjónarmið aðila og skiptast á
upplýsingum. Þetta voru mjög vin-
samlegar og gagnlegar umræður,”
sagðiJóhannes.
Dr. Jóhannes og dr. Miiller sögðu
— þetta eru öðruvísi heiðursmenn, sagði dr. Paul Mllller
að loknum álviðræðunum í gær
báöir að alþjóðlegur gerðardómur
væri dýr og seinvirk leið. Vonuðust
þeir til að f ara mætti einfaldari leið.
Á svissnesku samningamönnunum
mátti heyra að betri andi hefði ríkt í
þessum viöræöum en áður. „Þetta
em ööruvísi heiðursmenn,” sagði dr.
Miiller.
Af hálfu Islands sátu viðræðumar,
auk dr. Jóhannesar, þeir
Guðmundur G. Þórarinsson, dr.
Gunnar G. Schram, en þeir þrír
skipa samninganefnd um stóriöju,
Páll Flygenring ráðuneytisstjóri og
Garðar Ingvarsson, ritari nefndar-
innar.
Fuiltrúar Alusuisse voru, auk dr.
Miiller, þeir dr. Dietrich Ernst,
Halldór H. Jónsson og Ragnar S.
Halldórsson. -KMU.
Létt var yfir samningamöunum Alusuisse þegar þeir mættu til viðræðnanna
i gærmorgun. Einhver efasvipur er þó á iðnaðarráðherra.
DV-mynd: Einar Ólason.