Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1983, Qupperneq 19
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Ryder lautinant vekur Connie til lífsins um stund en síðan verður
allt semfyrr.
vagninum. Stríðiö er líka háö af hest-
baki og víða sjást reykjarbólstrar
stíga til himins. Hermaður sést á
hlaupum og sprengja springur í þögn
gömlu heimildarmyndarinnar. Það
næsta sem áhorfandinn fær að líta er
stórkostlegur Rolls Royce sem
rennur ljúflega eftir þjóövegi. I
aftursætinu liggur ung kona með
augun aftur en sefur ekki. Á því sem
hún segir skilst fijótt að minningarn-
ar um eitt af fórnarlömbum stríðsins
sækja aöhenni.
Ungi hermaðurinn sem varð fyrir
sprengjunni var ástkær bróðir
Conniear. Lát bróðurins hefur orðið
henni þvílíkt andlegt áfall að hægri
handleggur hennar lamast. Connie
er þunglynd og reynir ekki að hafa
samband við annað fólk nema hvað
hún skrifar hinum látna bróður bréf
eftir bréf. Bróðirinn var nokkurs
konar uppreisnarmaður í fjöl-
skyldunni og einungis með hans
hjálp eygði Connie undankomuleiö
frá þrúgandi andrúmslofti Belfast og
heimilislífi sem henni fannst óþol-
andi.
Erfiö hetja
Veglegt hús Wintour-fjöl-
skyldunnar stendur ekki fjarri þeim
bæjarhluta þar sem átökin milli
kaþólskra og mótmælenda eru hvaö
hörðust. Þess vegna er settur sér-
stakur hervörður við húsið, annars
væri breski skipasmíðajöfurinn tæp-
ast óhultur. Nærvera hermannanna
hefur óvænt áhrif á Connie. Hún fær
áhuga á breska lautinantinum Ryder
hennar við umheiminn meira og
meira. Hjúkrunarkona Conniear
bendir henni út um gluggann og telur
útsýnið fagurt en Connie spyr aðeins
dauflega: „Er sumarið strax
komið?" Þannig sést hvað breitt bil
er orðið milli hinnar sjúku konu og
venjulegs fólks sem lítur tilveruna
björtum augum.
Morð og verkföll
Julie Covington er þekkt leikkona
og söngkona í Bretlandi og henni
tekst vel að skila hlutverki Conniear,
sem er daufgerð og ekki ósvipuð
Ofelíu í Hamlet. Connie reynir aldrei
að rísa upp og berjast gegn því sem
hún sér fara aflaga heldur lamast
andlega og siöan likamlega. Ef til
vill þykir sumum persónan svo dauf
að erfitt sé að fá samúð meö henni og
einn breskur gagnrýnandi lét svo um
mælt að hann hefði fundið til sam-
kenndar með hjúkrunarkonunni sem
grípur til þess örþrifaráðs að gefa
Connie utanundir til að reyna að
vekja hana af dvalanum. En hvorki
högg hjúkrunarkonunnar né krukk
lækna hefur minnstu áhrif á liðan
Connie, henni versnar stöðugt og
undir lokin sést hvar lífinu er haldið í
henni með því að leiða ofan í hana
slöngur.
En það sem aðalpersónan hreyfir
tæpast legg né lið í Ascendancy
verða aðrar persónur að sjá um
framvindu atburöarásarinnar. Faðir
Conniear á stórfelld viðskipti við
Þjóðverja sem þykir nú hentugt að
Kvikmyndin Ascendancy
E t
ð
d0>
É
kvikmyndahátídinni í
Berlin 1983.Húnfjallar
nm ástandið á Norður-
írlandi á þriðja áratugnum
og líf ungrar breskrar
au ðmannsdát 1 ur þar í landi
valdhafaima
láta smiöa skip á Irlandi eftir að
friður hefur komist á í Evrópu.
Þegar verkfall vofir yfir og allar
horfur virðast á að skipasmíðastöö-
inni takist ekki að standa við gerða
samninga við Þjóðverja grípur
Wintour til þess ráðs að koma á
deilum milli trúarhópanna tveggja.
Að því búnu er lítil hætta á samstöðu
umverkfall.
Oöldin berst með ýmsum hætti inn-
fyrir dyr Wintourfjölskyldunnar.
Tveir af þjónunum í húsinu læðast út
aö næturþeli og myröa kaþólskan
mann. Annar þjónninn ber að dyrum
en hinn hleypir skotunum af. Eitt
augnablik sést uppljómað fordyri og
maðurinn sem fellur saman og
konan sem stendur eftir yfir líki
bóndans mitt í óöldinni. Þjónarnir
hrópa slagorð mótmælenda og atrið-
inulýkur.
Gullbjörn í Berlín
Andstæðan við örstutta stundina
sem morðið tekur er langvarandi
sorgin og hryllingurinn að ódæðinu
afstöðnu.
UNIONIÍ
t*
WINTOU
Connle (Julie Covington) horfir
fjarrænum augum á mannlíf
Belfastborgar.
Um hábjartan dag er slasaður piltur
borinn inn í eldhús Wintourfólksins
og lagður upp á borð. Hann hefur
greinilega orðið fyrir banvænu skoti
og blóöið gusast úr munninum á
Wium og aftur yfir andlitið. Allt
hefur þetta yfir sér einhvern hroll-
vekjandi blæ hversdagsleika svipað
gömlu heimildarmyndinni sem sýnir
hermanninn verða fyrir sprengju.
Ascendancy hlaut gullbjöminn á
kvikmyndahátíðinni í Berlín 1983 og
þykir ekki nein venjuleg bresk kvik-
mynd um vandræðin á Norður-
Irlandi. Hún sýnir Norður-Ira, mót-
mælendur og kaþólska hálflamaða
vegna átakanna og bresku hermenn-
ina sem er í rauninni sama um það
sem fram fer á meðan ekki er skotiö
beint á þá. Leikstjóri myndarinnar,
Edward Bennett, hefur fengiö mikið
hól fyrir verk sitt, en jafnframt hefur
verið bent á að fálátur og dálítið
brechtískur leikur leikaranna í
myndinni dragi ef til vill beittustu
vígtennurnar úr henni. En um það
verður hver að dæma fyrir sig
hvenær svo sem Ascendancy kemur
hingað upp á klakann.
-SKJ.
DV. LAUGARDAGUR 2. JOLI1983.
Ascendancy er kvikmynd um vandræði og átök sem
engan endi virðast ætla að taka. Hún gerist í Belfast á
þriðja tug þessarar aldar og fyrri heimsstyrjöldinni er
nýlokið. Átök mótmælenda og kaþólskra eru uggvænleg
og afskipti breska hersins bæta ekki ástandið á Norður-
trlandi. Aðalpersóna myndarinnar er ung kona sem
verður fómarlamb aðstæðnanna.
Julie Covington fer með aðalhlut-
verk myndarinnar sem Connie
Wintour. Stúlkan er dóttir vellauðugs
manns, Breta sem rekur skipa-
smiöastöð á Norður-Irlandi og fyrir
bragðið getur hún horft á átökin allt í
kring frá sjónarhóli forréttinda-
manneskjunnar. Faðir Conniear á
ekki minnstan þátt í því hvernig
komið er fyrir íbúum eyjunnar
grænu, hann er einn af helstu full-
trúum breska auðvaldsins og hann
hikar ekki við að notfæra sér ástand-
ið til að ná fram eigin markmiðum.
Bréf til látins bróður
Ascendancy hefst á atriöi úr
gamalli heimildarmynd úr fyrri
heimsstyrjöldinni. Brynvagn ekur
yfir eydda akra Norðaustur-Frakk-
lands og hermaður stendur uppi á
(Ian Charleson) og finnst að í honum
hafi hún á einhvern hátt endurheimt
hinn dána bróður. Ryder finnst af-
leitt að hafa misst af „hinu raun-
verulega stríði” og vill því fyrir
hvem mun vera nærri minni háttar
skærum eins og borgarastríðinu á
Norður-Irlandi, fremur en verða með
öllu úr leik. Smámsaman verður
Connie ljóst að henni hefur skjátlast
þegar hún hélt að Ryder gæti orðið
henni nokkur uppbót í bróðurmissin-
um og hún verður brátt þögul og
þunglynd á ný.
Connie er að því leyti erfið hetja að
ekki er gott aö sjá hvort hér er á ferð-
inni manneskja sem fallið hefur
saman í sjálfsvorkunn eða hálf-
gerður dýrlingur sem tekið hefur á
sig þjáningar heimsins. Eftir því
sem á líður myndina rofna tengsl