Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
221. TBL. —73. og 9. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983.
Krabbaveiðimenn
frá Bandaríkjunum:
Kanna mögu-
ieikaáveiémn
viðísland
— sjábls.2
„Alþýðuflokk-
urínnhefði
haftgóðáhrífá
ríkisstjóm-
ina”
— sjá bls. 5
Réttaðímiðri
vikurauðninni
— sjábls. 11
Allirfírðir
fulfírafsíld
— sjábl.5
Laxá strönduð
— engin hætta á ferðum
Flutningaskipið Laxá strandaði í
gærkvöldi suðaustur af Fríörikshöfn
á Skagen i Danmörku. Situr skipið
fast á sandrifi og þvi vonast til að
skemmdir séu litlar. Engan sakaði
um borð við strandið og gera menn
sér vonir um aö hægt verði aö ná
skipinu á Oot í dag.
Það var um klukkan tíu í gær-
kvöldi að dönskum tima að flutninga-
skipið Laxá, sem var á leið frá
Gautaborg til Álaborgar, tók niðri á
sandrífi um 2,5 sjómílur norður af
eyjunni Lesö, sem er suðaustur af
Friðrikshöfn. Veður var gott er þetta
gerðist og óvíst hvað olli strandinu.
Enginn leki kom að skipinu og er
því farmur skipsins, 350 tonn af
vörum, óskemmdur. Engan sakaði
heldur af tólf manna áhöfn skipsins.
Dráttarbátur er á leið á strand-
staöinn og er vonast til að hægt verði
að ná skipinu á flot í dag. Verða
skemmdir kannaðar og sést þá hvort
nauðsynlegt reynist að senda skipið í
slipp.
Veðurspáin fyrir svæðið þar sem
Laxá strandaöi er góð og ætti því
veður ekki að hamla björgunaraö-
gt rðum. Erfiðleikamir munu helst
vera fólgnir í því að lítill munur er
þama á flóði og f jöru. Engin hætta er
á ferðum þótt það dragist eitthvað að
ná skipinu á flot, það stendur vel og
þótt veður versni er engin hætta á að
illa fari. Skipstjórí á Laxá er Sig-
urður Leifsson.
-SÞS.
Sjávarútvegsráðherra
skýtur
fjármálaráðherra ref
fyrirrass
ísölu ríkiseigna:
„Við höfum ákveðið að selja
Hafþór og munum auglýsa hann til
sölu alveg á næstu dögum. Hann
veröur seldur án veiðarfæra og haf-
rannsóknabúnaöar og hafa mjög
margir þegar sýnt áhuga á að kaupa
skipið," sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra í viötali við
DVígær.
Er hann var spurður hvort skipið
yrði ef til vill selt til einhver staðan
Hafrannsóknaskipið
Hafþór er til sölu
sem væri orðinn ofarlega á biðlista
eftir skuttogara svaraði hann: „Við
erum að auglýsa skipið til að sjá
hvað við getum fengið fyrir það og
hversu góðan kaupanda við getum
fengið.”
I kjölfar þessarar sölu stendur til
að endurbæta Áma Friðriksson og
Bjarna Sæmundsson svo þeir verði
vel hæfir til að þjóna sínum hlutverk-
um áfram. Síðar stendur til að selja
Dröfn, eða um það leyti sem nýtt
skip úr hinu svonefnda raðsmíða-
verkefni bætist í flota Hafrannsókn-
ar.
Þá mun stofnunin hafa yfir að ráða
þrem góðum skipum, tveim endur-
bættum og einu nýju, og taldi Halldór
að reksturinn yrði mun hagkvæmari
ennú.
Ekki vildi Halldór beinlínis meina
að sala Hafþórs þýddi enn aukna
sókn: ,,Hann hefur nokkuö verið
leigður til fiskveiöa og þar sem við
tökum við einu raðsmíðaskipinu mun
það ekki fara á veiðar.”
Ákvörðun um sölu Hafþórs var
tekin í sjávarútvegsráðuneytinu, að
frumkvæði þess, svo Halldór virðist
vera að skjóta fjármálaráðherra ref
fyrir rass í beinharðri sölu ríkis-
eigna.
-GS.
Húsasmiðurinn Bjarni
Karlsson má teljast heppinn að
ekki fór verr þegar djúpur
skurður, á þriðja metra á dýpt,
hrundi saman í gær. Bjarni var
að tengja regnvatnsrennu við
frárennslislögn þegar skurð-
bakkinn gaf sig. Um leið og
mölin skreið yfir hann tókst
honum að krafla sig upp.
Fargið fór því ekki alveg vfir
hann heldur upp að brjósti.
Þannig sat smiðurinn fastur í
hálfa klukkustund undir hús-
vegg Taungarðs, húss tann-
læknadeildar Háskólans. Með
aðstoð vélskóflu tókst lögregl-
unni að létta af honum farginu
og bjarga honum úr prísund-
inni.
-KMU/DV-mynd: S.