Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 19
DV. MIÐVKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. 19 Menning Menning Menning Menning FYLLT ÚT í EYÐURNAR Þingvallastemmning 11 eftír Magnús Tómasson. I Listasafni alþýöu stendur nú yfir sýning sem nefnist „Vetrarmynd”. Er hér um aö ræða samsýningu nokkurra myndlistarmanna, þeirra Baltazars, Braga Hannessonar, Magnúsar Tómassonar og Þorbjargar Höskulds- dóttur. Sýningin stendur fram til 2. október. Saman ... Samsýningum fjölgar óöum meðal íslenskra myndlistarmanna. Og er þaö vel, nema ef ske kynni að þær dragi úr einkasýningum viökomandi lista- manna. Því víst er aö listamenn þurfa að vera sérlega afkastamiklir, vilji þeir taka þátt í alls kyns félagssýning- um og koma meö sólósýningar þar inn ámilli. Samsýning þeira félaga í Vetrar- mynd snýst um sameiginlegt áhuga- mál, landslagiö, sem þó er upplifað á mjög mismunandi hátt. Magnús Tómasson, fyrrum súmari og myndhöggvari, sem undanfarin ár hefur mikið unniö í anda gömlu dada- istanna kemur nú fram meö oliumál- verk eftir nokkra hvíld í því efni, og málar „landslag”. Myndir Magnúsar eru þær myndir sem vekja hvaö mesta athygli hér á sýningunnL Miðað við hina listamennina þá kemur fram i myndverkum Magnúsar ákveðin leit og tilraunir, bæði hvaö snertir form og inntak. En það er ekki þar meö sagt að „leitin” eöa „tilraunirnar” séu frum- legar eða persónulegar. Nei, í raun er maður undrandi að jafnhæfur mynd- listarmaöur og Magnús skuli ekki hafa persónulegrí sýn en raun ber vitni. Landslagið hér hjá Magnúsi er aðeins svið fyrir gamlar súrrealista klisjur: „tilviljunarkennd stefnumót ólíkra Votahrím eftír Baltasar. hluta”, sem síðari tíma collage-meist- arar, eins og t.d. Erró hafa nýtt út í ystu æsar. Ljónið hans Magnúsar i hinu íslenska landslagi, virkar þvi lítt sannfærandi í tvennum skilningi! Táknfræðimyndir Magnúsar með hinni goðsögulegu visun, virka meira spenn- andi. Kannski vegna þess að þar virðist listamaðurínn hafa ákveðið „byggingarefni”, goðsögnina! En hvernig raðast svo hugmyndin á léreft- ið? Því miður þá er eins og listamaður- inn detti aftur í ákveðnar, gefnar for- múlur og viö tökum eftir einföldum leik með samsvörun í formi: brauð/tippi, piss/kaffi o.s.frv. Auðvitaö værí kannski hægt aö lesa eitthvað út úr þessum upplýsingum í Myndlist Gunnar B.Kvaran öðru veldi, en á þessu stigi málsins sjáum við þessi verk sem innblástur frá yngrí listamönnum, ég nefni aðeins Helga Þorgils. En þó svo að erfitt sé að finna afgerandi persónulega punkta í þessum myndverkum, þá eru myndir Magnúsar oft smellnar — góðir brand- Svartur sandur eftír Þorbjörgu Höskuldsdóttur. Ijósm. GBK arar — sem fá áhorfendur til að brosa út í annað munnvikið! önnur lögmál... Baltazar er annar „landslagsmál- arí” sem túlkar sitt landslag sam- kvæmt lögmálum landslags-abstrakt- ionarinnar! Landslagið er síaö í gegnum tilfinningaupplifun lista- mannsins. En listaverk er ekki aðeins tilfinningar því að mynd er ávallt mynd með sinum innri lögmálum sem áhorfandinn skoðar sjónrænt. Því getum við sagt að þessi verk byggist á heiöarlegri tjáningu, en myndrænt séð virka þau sem gamlar lummur! Að róta í litnum og gefa í skyn landslag og skepnur flokkast aöeins undir handa- vinnu sem hefur verið aðskilin allri skapandi hugsun. Þessar myndir ættu að vera einkamál listamannsins! Flísalagningar ... Og Þorbjörg Höskuldsdóttir heldur áfram að flísaleggja náttúruna. Það er sem maður hafi séð áður einhver til- brigði við þessar eilíföarspumingar varðandi náttúruna og manninn. Hann sem beislar náttúruna og umbreytir samkvæmt sinni fastmótuðu rök- hyggju og trú. En þó að áhorfendur geti tekið eftir ákveðnum „stöðug- leika” og persónulegum eiginleikum í myndverkum Þorbjargar þá er komin ákveðin stöðnun og þreyta í þessar innréttingar. Myndimar segja manni vart meira en þær sem maöur sá fyrir þó nokkuð mörgum árum! Bragi Einn viökomandi listamanna hefur þó nokkra sérstöðu hér á sýningunni. Það er Bragi Hannesson en hann getur ekki talist vera atvinnumaður í faginu eins og meðsýnendur hans þrír. Bragi brýtur landslagið upp í ljósbrigði og form, hæverska samhljóma, sem virðast ekki hafa annan metnað en þá fullnægingu sem athöfnin að mála gefur af sér. Þetta eru því myndir áhugamannsins, sem skortir ákveöna afstöðu til myndmálsins. Myndir Braga em eins konar „eintal ama- törsins”, sem hefur ekkert að gera með hugmyndir þess eðlis að umbreyta listasögunni. Aðeins að málatil að mála! Þekktir listamenn Þó að ekki sé hægt að bera saman viðkomandi listamenn, þá eiga þeir það sammerkt að verk þeirra virka yfirhöfuð átakalaus og hugmynda- snauð. Það er vart nokkuð sem kemur manni á óvart. I stærra samhengi ganga þessar myndir inn í söguna og hverfa. Hér virðist engin þeirra hafa tekis á við neitt, heldur aðeins fyllt út í eyðumar! -GBK. y, Frá Sögufélagi: Úr fórum fortíðarinnar — um sakamenn, bújarðir, saumakonur miðalda, þrælahald og margt fleira Það þætti hart í dag að vera dæmdur til lífstiöar fangelsis fyrír þá sök eina að vera lausgangarí og latur þrjótur! En slíkur dómur var kveðinn upp á Alþingi sumaríð 1776 yfir manni úr Rangárvallasýslu. Það og margt annað má lesa í fimmtánda bindi af Alþingisbókum ís- lands sem í seinustu viku kom út hjá Sögufélagi. Einnig kynnti félagið þá endurútgáfu af fimmta bindi Jaröa- bókar Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Fjallar það um Hnappadals- og Snæfellssýslu. Ársrit félagsins, Saga 1983, er einnig nýkomið út og loks má nefna níunda bindið í Ritsafni Sagnfræðistofnunar: erindi flutt á ráö- stefnu um kvennasögu á miðöldum, sem haldin var í Skálholti sumariö 1981. Léreftin hvít úr „Het Wapen" Álþingisbækurnar ná yfir tímabiliö frá því á seinni hluta 16. aldar og fram til 1800, eöa þangaö til hætt var aö þinga við öxará. Það var byrjað að gefa þær út árið 1912 og fer þvi starfi bráðum að verða lokið. Fimmtánda bindiö tekur yfir árin 1766 til 1780 og eru þá aöeins tvö bindi eftir. Þarna er gífurlegur fróðleikur um mesta niðurlægingarskeið þjóðarínnar saman kominn. Dauðadómur, lýsingar strokumanna, konungsbréf og jarða- kaupaskjöL Það var skylda að lýsa vogrekum í lögréttu og í alþingisbók- umfrá 1716 og 1722 (10. bindi) má finna upplýsingar um gullskipið fræga, sem strandað haföi í Skeiðarárósi hálfri öld áður. Er þá botn skipsins sjáanlegur og hvít léreft úr skipinu enn að reka á fjörur Skaftfellinga, sem og járn og eirlengjur. Gunnar Sveinsson skjalavörður hef- ur annast útgáfu seinustu binda Alþingisbókanna og fýlgja þeim ná- kvæmar nafna- og atriöaskrár. I Jarðabók Árna og Páls eru miklar upplýsingar um bújarðir og efnahag landsmanna eins og hann var í upphafi 18. aldar. Hverri jörð er nákvæmlega lýst, með kostum og göllum: „Heimilismenn 7. Móskurður að mestu þrotinn. Silungsveiði lítil, Vatnsból erf- itt á vetrardag. Jörðin spillist mjög af skriðum. . .” Þannig hljóöa lýsingarnar á kjörum forfeðranna. Umsjón með endurútgáf- unni hefur Svavar Sigmundsson. Hver voru áhrif kristnitöku á líf kvenna? Tímaritið Saga 1983 er á fjóröa hundrað síður og flytur fjölda greina og ritdóma. Þar er skrífað um þræla- hald á þjóöveldisöld, baskneska fiski- menn á Norður-Atlantshafi, mataræði Islendinga á 18. öld, þróun bókasafna í landinu og ótal margt fleira. Nánar verður fjallaö um Sögu hér í blaðinu innanskamms. Eríndasafnið frá kvennaráðstefn- unni í Skálholti nefnist „Förandringar í kvinnors villkor under medeltiden.” Þar skrifar Anna Sigurðardóttir um þátt íslenskra kvenna í skím ungbarna og Elsa E. Guðjónsson um islenskar miðaldakonur, innan klaustra og utan, sem lögðu stund á útsaum. Norðmaðurinn Else Mundal veltir því fyrir sér hvort sú bóklega menning sem kom til Norðurlanda meö kristn- inni hafi ýtt konum til hliðar, en Grethe Jakobsen frá Danmörku leiðir rök að því að krístnin hafi bætt stöðu kvenna á Norðurlöndum. Áll eru niu erindi í ritinu, á dönsku, sænsku og norsku, með örstuttum enskum útdráttum. Helgi Þorláksson og Silja Aðalsteinsdóttir önnuöust út- gáfuna. IHH Nýjar bækur kynntar i Sögufólagi. F.v. Gunnar Svainsson, Heimir Þorkelsson, Einar Laxness, formaður Sögufélags, Helgi Þoríáksson, Sigurður Ragnarsson, Svavar Sigmundsson og Ragnheiður Þoríáks- dóttír, framkvæmdastjóri fóiagsins. DV-mynd: GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.