Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. Krabbaveiðimenniniir Kim Boddy t.d. og Guðjón Guðjónsson sem haía ábuga á að kanna möguleika á krabbaveið- um við íslandsstrendur. Fyrir aftan þá má sjá uppstoppaðankóngakrabbaeins og þeir hafa verið að veiða við strendur Alaska á undanförnum árum. DV-mynd GVA. Krabbaveiðimenn frá Bandaríkjunum: Kanna möguleika á veiðum við ísland „Það er vitað að það eru krabba- tegundir hér við land sem má veiða og selja dýrum dómum en það er ekki vit- að hvað þær eru í miklu magni né hvar bestu veiðisvæðin eru,” sagði Guðjón Guöjónsson skipstjóri sem hér hefur dvaÚð undanfarnar vikur við að kanna möguleika á því að veiða krabba hér viðland. Guðjón, sem er sonur hins landfræga skipstjóra hér á árum áður, Guöjóns Illugasonar, hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár. Hefur hann stundað þar krabbaveiðar, mest við strönd Alaska. Krabbaveiðar eru stór tekjulind í Bandaríkjunum enda krabbar meðdýrustu réttum sem fást á veitingastöðum þar eins og víöa um heim. „Eg vissi aö hér væru krabbar við landiö enda vita allir sjómenn um það og þeir ekki ósjaldan bölvað upphátt þegar hann hefur veriö að flækjast í Krossgátuunnendur! Takið eftir! Þæreru hreint frábærar. Síðastainnköllun! Lausnir úr verðl.gátum þurfa að póstleggjast fyrir 30. september. /næsta blaði fjölgum við og hækkum vinninga. ÚTGEFAND netunum hjá þeim. Mig langaði því til að kanna þetta betur og kom hingað í sumar ásamt félaga mínum. Kim Boddy sem einnig er krabbaveiðimað- ur. Þetta er fyrirtæki sem ekki kostar mikla peninga en þó nóg til þess að við þyrftum að fá aðstoð og fyrirgreiðslu hjá því opinbera hér. Við höfum talað viö sjávarútvegsráöherra og fieiri aðila og þeir hafa allir sýnt þessu máii mikinn áhuga. Það er það eina sem hefur gerst. Áhuginn er mikiil en svo eralltstopp. Við höfum fengið að fara út með frænda mínum sem er á ýsuveiðum til að sjá hvernig þetta lítur út. Það fæst að sjálfsögðu enginn árangur af slíkum ferðum. Við þurfum aö hafa okkar bát og okkar gildrur og kanna líkleg mið. Við höfum til dæmis áhuga á að komast á miöin fyrir austan Eyjar og fleiri mið umhverfis landið. Það er bara spum- ing hvaö við getum beðið lengi eftir svari frá því opinbera,” sagði Guðjón. -klp Krabbaveiðar gætu komið sem auka- búgrein Krabbaveiðar eru svo til óþekktar hér við land og möguleikamir sem þar eru ókannaöir með öllu. Einn maður hefur undanfarin tvö sumur verið að veiða trjónukrabba, fyrir eitt eða tvö veitingahús í Reykjavík, í Faxaflóa og notað til þess litlar gildrur. Krabbaveiðimenn í Norður-Kyrra- hafi nota við sínar veiðar mjög stór- ar gildrur. Hafa félagamir tveir sem hug hafa á krabbaveiöum hér við Is- land, og sagt er frá hér á öðrum staö á síöunni, látið útbúa eina slika gildru fyrir sig. Er sú gildra hátt í tveir metrar í þvermál og annað eins áhæö. Gildra þessi hefur nú verið sett í sjóinn út af Þorlákshöfn í tilrauna- skyni og verður vitjað um hana ein- hvem næstu daga. I gildrumar er sett beita, fiskur eða fugl. Krabbinn sem er hrææta fer inn í gildruna og festist þar. Um gildrurnar er vitjað með vissu millibili og krabbinn sem í þeim er þá látinn í ker, sem er fullt af sjó, um borð í veiðiskipinu. Er hann síðan seldur lifandi og fæst mjög gott verð fyrir hann. Þær tegundir sem koma trúlega til með að veiðast hér við land em þrjár. Er það trjónukrabbi, gadda- krabbi og tröllakrabbi. Af trölla- krabba eru tvær tegundir hér og er önnur þeirra mjög stór. Ef þeir Guðjón Guðjónsson og Kim Boddy fá aðstoð hjá því opinbera til aö kanna krabbamiðin hér við land og veiðamar takast vel getur þama orðið um arðbærar veiðar að ræða. Krabbaveiðar í Norður-Kyrrahafi og víðar hafa dregist saman vegna of- veiði að undanförnu og verðið því rokið upp úr öllu valdi. Hér gætu krabbaveiðar verið „aukabúgrein” hjá sjómönnum að áliti margra. Gildrurnar má fara með á leið i eða úr róöri og sækja þær svo eftir hentugleikum. Krabbinn skemmist ekkert í gildrunum í sjón- um og vinnan við þetta er tiltölulega lítil miðað við aðrar hefðbundnar veiðar. -klp Ríkisst jórnin á loðnuveiðar upp á von og óvon Þrátt fyrir að ekkert liggi fyrir um hvort eða hversu mikið unnt verður að veiöa af loðnu fyrir áramót gerir þjóðhagsspá ráð fyrir 250 þúsund tonna loönuafla á árinu og telur aö sá afli geti dregið úr samdrætti þjóðar- tekna um fjögur prósent. Þegar seiðarannsóknir á stofnin- um, sem nú gæti komið til veiða, voru gerðar 1981 reyndist útkoman í slakara lagi. Það skal þó tekið fram að mikilla frávika hefur orðið vart á báða vegu frá seiðamælingum til raunverulegs veiðistofns. Norsk og íslensk rannsóknaskip reyndu að mæla veiðisto&iinn i sum- ar en vegna íss, og þar sem Ioðnan var í æti við yfirborðið, náðust ekki marktækar niðurstööur úr mæling- unum. Upp úr mánaðamótunum hefst svo leiðangur tveggja íslenskra skipa og eins norsks í þeim tilgangi að reyna að átta sig á stærð stofnsins. Sá leið- angur mun líklega taka um þrjár vikur. Að honum loknum munu fiski- fræðingarnir semja skýrslu sem lögö verður fyrir síldar- og loönuvinnu- nefnd Alþjóða hafrannsóknaráðsins í Kaupmannahöfn sem heldur fund um máliö dagana 25. til 28. október. Alit nefndarinnar verður síðan sent til fiskveiðinefndar ráðsins og þaðan er að vænta formlegrar ráðgjafar um veiðamar enda eiga íslendingar, Norðmenn og EBE sameiginlegra hagsmuna aðgæta. Fari svo að okkur verði úthlutað 250 þús. tonnum í ár þyrfti loðnan helst aö halda sig norður af landinu í vel veiöanlegu ástandi og miklu magni til að hægt sé aö ná þessum aflafyriráramót. Það er hins vegar ekkert að treysta á það og haldi hún sig t.d. á Grænlandssundi, eða nálægt Hal- anum, kunna hafís og veður aö gera veiðamar erfiðar. Eini ljósi punkturinn er að ef við fáum að veiða þetta magn og getum það er gott verð á loðnuaf urðum nú. -GS. Að undanförnu hefur Nýbýlavegurinn í Kópavogi, sem er • ein mesta umferðargata þar, verið lokaður vegna lagfær- inga á mótum Skeljabrekku. Er verið að hækka Nýbýla- veginn upp á þessum kafla en þar og í Skeljabrekku hefur oft verið erfitt að fara um, sérstaklega í hálku. Þessu verki á að ljúka nú í vikunni og verða margir Kópavogs- búar sjálfsagt fegnir því enda hefur verið erfitt að komast á ökutækjum úr Kópavogi á meðan þessi mikla umferðar- gata hefur verið lokuð. Klp/DV-mynd EÓ. Stefán doktor f kjarneólisfræði Fyrir skömmu varði Stefán G. Jónsson doktorsritgerð í kjarneðlis- fræði við háskólann í Lundi í Svíþjóð. Heiti ritgerðarinnar er: Near-Yrast Spectroscopy of Rare-Earth Nuclei. Yrast Isomerism and Bandcrossings. Doktorsritgerðin er hluti af sam- starfi milli háskólans í Lundi, Niels Bohr stofnunarinnar í Rise og háskól- ans í Osló í grannrannsóknum í kjarn- eðlisfræði. Stefán G. Jónsson er fæddur á Munkaþverá í Eyjafirði, sonur hjón- anna Jóns Stefánssonar og Aðalheiðar Guðmundsdóttur. Stefán hefur verið ráðinn til kennslustarfa á Akureyri. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.