Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Page 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983.
Iþróttir
Bjarni Ag. Friöriksson.
Bjarni fékk
gullíLundi
íopnasænska
meistaramótinu í júdó
Júdókappinn Bjarni Ág. Friðrlksson úr
Ármanni stóð slg mjög vel á opna sænska
meistaramótinu í júdó, sem fór fram í
Lundi um sl. helgi. Bjarni tryggðl sér
guilverðlaun í sinum þyngdarflokki — 95
kg flokki — lagði alia keppinauta sina með
miklum glæsibrag.
Bjarnl keppti tii úrslita gegn Bretanum
N. Kokoltaylo og lagði hann á „ippon” sem
er fulinaðarsigur.
Níels Hermannsson úr Armanni tók
einnig þátt í mótinu — 78 kg. flokki, en
hann komst ekki í úrslit.
■SOS
Heimskeppnin
íEnglandi
Heimskeppni félagsliða i knattspyrnu,
sem fer fram í fyrsta skipti 1985, verður
háð í Englandi. Eins og við höfum sagt fré
þá taka þátt i keppnlnni tóif af frægustu
félagsliðum heims — í þeim hópi er
Anderlecht sem Arnór Guðjohnsen lelkur
með.
-SOS.
Þjálfari rekinn
A-Þjóðverjar hafa látið landsliðsþjálf-
arann í knattspyrnu, Peter Storf, hætta
eftir að Ijóst er að þeir komast ekki í úr-
slitakeppni EM i Frakklandi.
Storf tók við landsUðinu i janúar 1982
eftir að fyrrum iandsiiðsþjáifari A-Þýska-
lands var rekinn — vegna þess að A-Þjóð-
verjar komust ekki í HM á Spáni.
-SOS.
Fulham komið
á skrið
Nokkrir leikir fóru fram í ensku knatt-
spyrnunni í gærkvöldi — og urðu úrsUtin
þessi:
2. deild:
Barnsley-Grimsby 3-1
C. Palace-Portsmouth 2—1
Fulham-Middlesbrough 2-1
Oidham-Chariton 0-0
3. deild:
Bolton-Burnley 0-0
Bournemouth-Bristol R. 0-1
Hull-Wimbiedon 1—0
Newport-Preston 1-1
Plymouth-Scunthorpe 4—0
Sheff.Utd.-Bradford 2—0
Leikjum Brentford-Rotherham og Orient-
GUlingham var frestað vegna veikinda og
meiðsla ielkmanna Ilðanna.
4. deild:
Aldersbot-Swindon 2-1
Blackpool-Mansfield 2-0
Bristoi C.-Reading 3-1
Chesterfieid-Hereford 0-0
Darlington-Bury 1-2
Doncastle-York 2-2
Hallfax-Northampton 2-2
Rochdale-Hartlepooi 2-0 -SOS.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Eyjamönnum hefur verið vísað úr
l.deildarkeppninni:
„Ekki skemmti-
legt að kveða upp
svona úrskurð”
— en hann er samkvæmt starfsreglum aganefndar, segir Sigurður
Hannesson, formaður aganefndar KSÍ
„Vestmannaeyingum er visað úr
keppni 1. deUdar árið 1983 og gert að
greiða sekt tU KSÍ að fjárhæð kr.
5000.00.” Þannig hljóðar úrskurðsorð
aganefndar KSÍ sem kom saman í
gær. Þar eru Vestmanneyingar ekki
lengur í 1. deUd eins og svo margir ótt-
uðust.
— Það er ekki skemmtUegt að kveða
upp svona úrskurð, sagði Sigurður
Hannesson, formaður aganefndar KSI.
— Við vinnum eftir starfsreglum og
þar segir i 6. grein 8. tölulið aö visa
beri félagi sem notar leikmann sem er
Dlego Maradona.
í leikbanni — úr keppni, sagði Sigurður
Hannesson.
— Nú, þegar búið er að vísa Eyja-
mönnum úr 1. deildarkeppninni. Þurfa
þeir að byrja upp á nýtt og sækja um
inngönguí4.deUd?
— Það er ekki í verkahring aga-
nefndar að dæma um það. Það kemur í
hlut aðalstjómar KSI aö ákveða fram-
hald málsins, sagði Sigurður.
Þess má geta að Eyjamenn geta
ekki áfrýjað úrskurði aganefndarinnar
þar sem í 4. grein starfsreglna nefnd-
arinnar, segir: Urskurðum aganefnd-
ar verður ekki áf rý jað.
Þriggja leikja bann
A fundi aganefndar 13. september
var Þórður Hallgrimsson, fyrirliði
Eyjamanna, úrskurðaöur í þriggja
leikja bann:
r----------------------------------
• a) Einnleikurvegna 10refsistiga.
• b) Tveir leikir vegna brottvísun-
araf leikveUi (ítrekun).
Eyjamönnum var sent skeyti þess
efnis 13. september kl. 18.30 og tóku
þeir við skeytinu (nr. 11/143) kl. 18.50
þann 15. september. Skeytið var svo-
hljóðandi:
„Þórður HaUgrimsson er dæmdur í
eins leiks bann vegna tíu refsistiga og
tveggja leikja bann vegna brottvísun-
ar af leikveUi (ítrekun). Samtals þrir
leikir. Aganefnd”.
Eins og sést á þessu, þá sést að það
fer ekki á miUi mála, að Þórður, sem
lék með Eyjamönnujm gegn Breiða-
blik, var í leikbanni í þeim leik þar sem
hann hafði verið úrskurðaöur í þriggja
leikja bann. -SOS
--------------------,
ára
í Aberdeen
Sigurður Jónsson — knatt-
spyrnukappinn ungi og efnUegi frá
Akranesi, sem mörg fræg félög í
Evrópu hafa verið á höttum eftir
undanfarin ár, héit upp á 17 ára
afmælisdaginn sinn i Aberdeen í
gær. Mikið hefur verið skrifað um
Sigurð í blöðum í Skotlandi undan-
farna daga og í gær birtust þar
myndlr af honum og greinar í
blöðum — Islendingurinn sem aU-
irvUjafá.
Sigurður hefur ákveðið að láta
ÖU hin f reistandi atvinnutUboð lönd
og leið að sinni. Hann kemur heim
með Skagamönnum — ætlar að
stunda nám á Akranesi i vetur og
leika með AkranesUðlnu næsta
sumar.
-SOS
Meiðsli Maradona hafa vakið mikla athygli:
„Kominn tími til
að stöðva ofbeldi”
á knattspyrnuvöllum, segir Luis Menotti, þjálfari Barcelona
Það er um fátt meira talað á Spáni
þessa dagana heldur en meiðsU knatt-
spyrnukappans Diego Maradona frá
Argentínu — en brotið var gróflega á
honum i leik um sl. helgi þannig að
hann ökkiabrotnaði og liðbönd slitn-
uðu. Maradona þarf að llggja á sjúkra-
húsi í viku og verður frá keppni í
minnst þrjá mánuði. Margir eru
hræddir um að knattspyrnuferUl hans
sé jafnvel á enda.
j Síminn hefur ekki stoppaö í her-
ibúðum Barcelona — áhangendur
Barcelona og aðdáendur Maradona í,
|Argentínu hafa hringt á nóttu sem
jdegi. Blöð á Spáni segja að meiðsli
Maradona séu meiðsli ársins.
Það var varnarleikmaðurinn
Andoni Goikoetxea frá Bilbao sem
braut á Maradona, en hann hefur
fengið viðurnefnið „Slátrarinn frá
Bilabo” vegna þess hvað hann leikur
fast. Það var einmitt hann sem fót-
braut V-Þjóðverjann Bernd Schuster í
leik fyrir tveimur árum, þannig að
Schuster var frá keppni í marga
mánuði.
• Luis Menotti, fyrrum
landsliösþjálfari Argentínu og núver-
andi þjálfari Barcelona, sagði eftir hið
grófa brot á Maradona: — „Það er
kominn timi til að stöðva ofbeldi á
knattspymuvöllum. Með þessu áfram-
haldi endar þetta með því að einhver
deyr á knattspymuvelli eftir að hafa
fengið ljóta útreið.”
Hvaö segir Goikoetxea: — „Þetta
var hart einvígi um knöttinn — ég
gerði þetta ekki af ásettu ráði.” Aga-
nefnd spánska knattspyrnusambands-
ins kemur saman í næstu viku og er
reiknað með að Goikoexan fái 15 til 25
leikja keppnisbann fyrir brot sitt á
Maradona.
• Maradona hefur oft deilt hart á
spánska knattspyrnumenn fyrir
grófan leik og harðar tæklingar á leik-
velli. — „Það eru margir leikmenn hér
á Spáni sem eru eins og villimenn á
leikvelli. Hugsa aðeins um að leika
fast,” hefur Maradona oft sagt og hann
hefur einnig deilt á dómara á Spáni
fyrir að þeir loki augunum fyrir
grófum leik þannig að leikmenn komist
upp með að brjóta ruddalega á and-
stæðingum sínum.
Þaö má fastlega reikna með að hið
grófa brot á Maradona verði til þess að
dómarar á Spáni fari að taka harðar
á brotum leikmanna. -SOS
Þeir eiga eftir að verða skæðir, þes
Þrótti í gærkvöldi og Atli Hiimarss
„Höfi
okkur
— sagði Geir Hallsteinsst
„Eg held nú að þetta verði ekki
svona auðvelt í vetur. Við erum að visu
í mjög góðu formi og setjum stefnuna á
titilinn en margir leikir okkar í vetur
eiga eftir að verða erfiðir,” sagði
Guðmundur Magnússon, fyririiði og
aldursforseti FH í handknattleik, eftir
að hann og féiagar hans höfðu rót-
burstað siaka Þróttara i 1. deildarleík
liðanna í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi. Lokatölur 31:18 eftir að staðan í
leikhléi hafði verið 18:8 FH í vil.
Mesti óþarfi er að eyða miklu plássi í
gang leiksins. Hann var í stuttu máli
eign FH-inga frá fyrstu mínútu og
aldrei var spurning hvorum megin
sigur hafnaði að þessu sinni.
„Við erum í bestu æfingunni og
raunar eina liðið sem hefur bætt sig
getulega frá síðasta keppnistímabili,”
sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH,
eftir ieikinn og bætti við: „Við reynum
aö ieika sterkan varnarleik. Tökum
hvem leik fyrir sig. Ég held að þetta
verði ekki eins auðvelt hjá okkur i
Gordon Strachan.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþró