Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1983, Qupperneq 37
píjfir frjciTi/'n'rr.cio op anrtf rprivrrm'/ 37 DV. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER1983. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið KONA SKÓLASTJÓRANS I sumar kom upp mikið hneykslis- mál í Bretlandi sem leiddi til þess að skólastjóri nokkur, Lyn Blackshaw að nafni, varð aö segja af sér í starfi sínu við einkaskóla þar í landi. Þannig er mál meö vexti að fyrir nokkrum árum dunduðu þau hjónin sér við þaö að taka myndir hvort af ööru í dónalegum stellingum og senda þær til vafasamra tímarita. Skólinn þar sem Lyn starfaði er mjög dýr einkaskóli og þegar farið var að birta myndir þeirra hjóna i blöðum vítt og breitt um landið þá krafðist skólastjómin afsagnar hans í skyndi. Þessar myndir fóru fyrir brjóstið á fleirum en skólastjóminni því um tíma voru bresku blöðin full af frásögnum af þeim hjónum og siðgæð- ispostular hömuðust á þeim sem mest þeir máttu. Svo mikill varð mótbyrinn að þau hjón neyddust til að flýja heim- ili sitt í nágrenni skólans og fara í felur í London. Gamninu er hins vegar ekki enn lokið því kona skólastjórans lét einmitt taka þessa mynd af sér til þess aö storka postulunum enn frekar. I kjölfar þessarar myndbirtingar hefur hún lofað frásögn af ástarlífi þeirra hjóna og munu Bretar bíöa spenntir þessa dagana eftir henni. Hún Beth sagði í viðtali: ,,Sú frásögn mun að öllum líkindum hneyksla foreldra bama við skólann, sérstaklega þegar þeir lesa um það þegar ég og maðurinn minn elskuðumst á þaki skólans.” Það er greinilega nóg að ske í Englandi. Þetta er ein af þeim myndum sem leiddu tH þess að skóiastjórinn varð að segja af sór. Hór er aftur á móti nýrri mynd sem kona skóiastjórans Ut taka afsór, tfl að storka siðgæöispostuium enn frekar. Stuðmenn og Hallbjöm á Borginni Hallbjðrn HJartarson „bukkar" sig er áhorféndur Uta fögnuð sinn i ijós. Það var troðfullt á Borginni þegar Stuðmenn tróðu þar upp í1 næstsíðasta skipti á þessu ári fyrir nokkru. Ljósmyndari DV átti í mestu erfiðleikum með að athafna sig vegna mannmergðar og varö á endanum að skrúfa aðdráttar- linsuna á. Á þessum tónleikum kom Hallbjörn Hjartarson kántrísöngvari einnig fram við mikinn fögnuð viðstaddra og að sögn ljósmyndarans tókst; honum firnavel upp. Best er að láta staðar numið og leyfa mönnum að sjá það sem ljósmyndarinn sá með aðdráttarlinsunni sinni. SLS DV-myndir Helgi. Valgeir, Þórður og Egiii á fullu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.