Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Síða 4
•or» r rrrTrrAfr^T/^i 4 r- riTTr\ &/-Trr » o,tt r urr DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. BilUnn sem fór út af veginum í Kambanesskriðum er gjörónýtur þar sem hann Uggur nú 70 metra fyrir neðan veg- inn. DV-myndirSigst. Melsteö Beygjan hættulega í Kambanesskriðum: ÞAR HEFUR OFT ÁÐUR MUNAÐ MIÓU Eins og við sögöum frá í blaðinu í gær var maður hætt kominn þegar bif- reið sem hann var í fór út af veginum í Kambanesskriðum rétt austan við Breiödalsvík. Valt bíllinn niður skrið- umar og stöðvaöist nær 70 metrum neðar. Bílstjórinn kastaðist út úr bíln- uin á miðri leið og slapp með marbletti og skrámur. Þar sem bíllinn fór út at er mjög kröpp beygja og er hún ómerkt meö öllu. Varúðarmerki um að beygjur séu framundan eru á veginum en það er Iangt frá því að vera nægjanlegt á þessum stað að áliti þeirra sem fara umveginn. Hefur oft mátt Utlu muna að Ula hafi farið þama. Ekki er langt síðan aö vömbíU fór þar út af. Vó hann salt á brúninni en ökumaðurinn komst út úr honum og slapp með skrekkinn í það skiptið. Það gerði líka maöurinn sem þama fór út af í vikunni. BUUnn hans, sem sést hér á myndinni, er gjcrónýtur eft- ir velturnar allar niður skriðurnar. En menn náðu vörabíhium aftur upp á veginn áður en hann fór sömu leið. -klp. VönibílUnn, sem fór út af á sama stað fyrir nokkru, vó salt á brúninni í þessari hættulegu beygju sem margir hafa kvartað yfir að skuli vera ómerkt með öUu. Fara menn að binda skip við bryggjur? — rekstrarskilyrði útgerðarinnar með öllu óviðunandi, segir stjórn LÍÚ Dalvík: MIKILL SKORTUR A FÓLKI í FISKVINNU — enginn vill koma og því hefur verið sótt um leyfi til að fá útlendinga „Okkur vantar hér 25 manns í fisk- vinnslustörf, en það er ekkert útlit fyrir að okkur takist að fá þá,” sagði Kristján Ölafsson, kaupfélagsstjóri á Dalvík, í samtali við DV í gær. Kristján sagði ennfremur að búið væri að reyna mikið að fá fólk til vinnu annars staðar frá, en það ekki tekist.Þaö hefði því verið sótt um leyfi tU verkalýðsfélagsins að flytja inn tíu manns til að byrja með er- lendis frá. Reynt hefur verið að fá fólk frá Akureyri í fiskvinnsluna á Dalvík. „Ef um það hefði verið að ræða hefðum við keyrt það á mUli kvölds og morgna eða þá um helgar. Við höfum hér húsnæði tU að taka við tíu tU fimmtán manns,” sagði Kristján. Ástæðuna fyrir manneklunni nú sagði Kristján þá helsta að unga fólkið heföi f ariö meira í burtu í skóla en í fyrra. Þá gat hann þess að afla- magn væri jafnvel heldur minna nú enþá. Þegar vantaði svona mjög fólk færi meiri fiskur í salt en í frystingu þar sem fljótlegra væri að koma honum þar í gegn. Þetta væri baga- legt þar sem saltfiskverkunin væri nú rekin með bullandi tapi. -JBH/Akureyri. Skagfirðingar stórhuga í loðdýraræktinni: Loðdýrabændur reisa fullkomna fóðurstöð — sú fyrsta sinnar tegundar á landinu Ný fóðurstöð til að framleiða loð- dýrafóður verður opnuö á Sauðárkróki eftir nokkra daga. Mun þetta vera fyrsta fullkomna fóðureldhúsiö á land- inu. Slíkar stöðvar segja loðdýra- bændur að sé f orsenda fyrir þessari bú- grein. Fóðurstöðin á Sauðárkróki er í eigu 13 loðdýrabænda í Húnavatnssj’slum og Skagfirði og er henni ætlað að þjóna því svæði í framtíðinni. Bændurnir stofnuðu hlutafélag um reksturinn, Melrakka hf. Þeir eiga 60% af hlutafé og ýmis fyrir tæki svo sem sláturhús og frystihús eiga 40%. Áætlaður kostn- aður við fóðurstööina er um 4 milljónir króna. Uppistaöan í hráefni stöðvarinnar verður fiskbein, einnig selkjöt og slát- urinnmatur. Fram til þessa hefur verið unnið fóður úr þessu hráefni í vísi „I hönd fer erfiðasta rekstrartímabil ársins og hljóta hin erfiðu rekstrarskil- yrði að draga úr möguleikum til þess að halda skipum til veiða,” segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á stjómar- fundi LIU í gær. Eins og kom fram í viðtali viö Kristján Ragnarsson í DV í gær hyggst stjórn LIU samt ekki beita sér fyrir að menn bindi skip sín við bryggj- ur til að knýja á um úrbætur. Líklega telur stjórn LÍU að nægilega mörg skip muni stöövast sjálfkrafa til að ráða- menn geri sér grein fyrir stööunni. að fóöurstöð sem þama hefur starfað. Nú hins vegar verður aöstaða öll miklu betri með fullkomnum vélum sem keyptar hafa veriö frá Danmörku. Vél- amar era að nokkra tölvustýrðar og á 1 starfsmaður að geta sinnt framleiðsl- unni. Fóðurstöðin getur framieitt fóður fyrir um 10 þúsund refalæður en í Skagafirði munu nú vera 2000 refa- læöur. I þessum tölum eru minkalæð- umar einnig taldar með. Miðað við 10 þúsund læðumar með 70 þúsund skinn og meðalverð í haust 1000 krónur væri heildarveltan 70 milljónir króna. Þannig er ljóst að fóðurstöðin ætti að afla mikilla gjaldeyristekna fyrir þjóð- arbúið þegar fram líða stundir. -JGH/Akureyri. I niðurlagi ályktunarinnar segir: „með áframhaldandi taprekstri er ein- staklingum gert ókleift að stunda þennan atvinnurekstur, en þeir hafa verið burðarás í þessari atvinnustarf- semi undanfarna áratugi”. -GS. Hallgrímur fékk 10 ára fangelsi Hæstiréttur staðfesti í fyrradag tíu ára fangelsisdóm sem kveðinn haföi verið upp í Sakadómi Reykjavíkur yfir Hallgrími Inga Hallgrímssyni. Hallgrímur Ingi var dæmdur fyrir hrottafengna h'kamsárás á 15 ára stúlku í Þverholti í Reykjavík í desember árið 1981. Auk þess aö skilja stúlkuna eftir bjargarlausa á afviknum stað á vetr- arkvöldi var Hallgrimur sakfelldur fyrir tilraun til nauðgunar og stuld á úri. Hæstiréttur féllst á það mat und- irréttar að varhugavert væri að telja að það hafi verið ásetningur ákærða að verða stúlkunni að bana. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.