Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Blaðsíða 10
10 oort CTrr*m‘\rrt-\i>~% . rj-Tr> , f-yrr \ ^rr» • \TC' D V. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. „Ég varaldreihræddum aðóggætiekkihugsaðsjálf umbarnið. . Lífið er stuiidum lygilegra en nokkur saga — heimsókn til myndlistarmannsins Sissú í Skerjafirði Síöustu tvær vikur hefur fyrsta mál- verkasýningin hennar verið opiri í Verslanahöllinni viö Laugaveginn, en lauk í gær. Sigþrúður málar í bílskúrn- um heima hjá sér. Hún hefur einn hjólastól í íbúöinni, annan í bílskúrn- um, en hálfskreiöist niður tröppur sem liggja þarna á milli. „Mikið ertu dugleg.” Sigþrúður: ,,Já, þaö er alltaf verið aö segja það við mig. Mér finnst þessi setning eins og bjölluhljómur fyrir eyr- unum á mér og svo svara ég eins og segulbandsspóla: „Þakka þér fyrir, þakkaþérfyrir, þakka þér fyrir...” Hjólastóllinn rennur hratt milli eld- húss og stofu og kaffið kemur á boröiö. Sunna litla sefur í vöggunni í næsta herbergi, yndisleg dúlla. Hún er tíu mánaöa. Systir Sigþrúðar lítur sem snöggvast inn, hefur keypt pappírs- bleyjur ódýrt einhvers staðar og er horfin aftur. „Hvernig meiddistu ?” Sigþrúöur brosir fjarrænt: ,,Æ, ég var á skíðum og ætlaði að renna mér á uppblásinni bílslöngu, .. Brosið hverfur, en kemur aftur „. . .bara eina ferö.. . semsagthryggbrotnaði.” „Var það ekki mikið áfall? Þú varst ekki nema nítján ára.” „Tvö þrjú fyrstu árin voru verst. . . en það er ekkert mál lengur. . . maður venst öllu.” Hún er mjög grönn, álfakroppur, svolítið eins og ekki -þessa-heims-leg. Orðin koma hægt, eins og úr fjarska. Augun eru möndlulaga og lifandi, hár- iö vöfflukrullaður skýstrókur. Elísabet Taylor kom á íslenska veitingastaðinn Hún er sú sjötta í röðinni af systkin- unum átta og við tölum um það hvern- ig sé að alast upp í svona stórum hópi. Mamma hennar hafði reyndar lært uppeldisfræði í New York og hefur það væntanlega komiö sér vel. „Andinn var mjög frjálslegur. . . ekkert strangt, ekkert ,,þú kemur inn klukkan átta”.. . það var alltaf eitt- hvað að gerast. . . og heimiliö opið fyrirvinumokkar.. .” Þá var ekki komin öll þessi byggð í Skerjafjörðinn. „Við höfðum hesta í bílskúrnum.. . fórum í útreiðartúra út á Seltjamarnes... þetta var hálfgerð sveit...” Elsta systirin, Stella, býr í New York og rekur eina íslenska veitinga- staðinn, sem þar er: Palsson’s. Hún byrjaði á einni hæð, bætti svo þeirri næstu fyrir ofan við. Kannski hafa það verið áhrif frá fjölmennu bemsku- Hugsum okkur örlaga- og ástarsögu, þar sem fallega stúlkan hryggbrotnar nítján ára gömul, svo að hún getur aldrei framar stigið í fætuma. Hún læt- ur ekki hugfallast heldur fer til New York og er þar á listaskólum í fimm ár. Þar veröur hún ástfangin af blökku- manni og elur honum barn. Hún flytur aftur með barniö heim í Skerjaf jörðinn til f jölskyldu sinnar og skilur elskhug- ann og hjartað hálft eftir í New York. Mundum við trúa slíkri atburðarás? Nei, varla. En lífið sjálft er stundum lygilegra en nokkur skáldsaga. Stúlkan er til og heitir Sigþrúður Pálsdóttir, kölluð Sissú, en barniö Sunna Guðrún. Við heimsækjum þær mæðgur einn af þessu björtu kyrru haustmorgnum sem koma skáldum í stemmningu svo að þau gleyma fátækt sinni og lánleysi og yrkja upphafin ljóð. Það blikar á hafið og fjöllin á Reykjanesi út um gluggana á húsinu þeirra sem er nokkuö stórt enda á Sig- þrúðursjösystkini. „Þaö er mjög gott að eiga svona stóra fjölskyldu,” segir hún. „Alltaf einhver sem getur hjálpað mér.” Mikið ertu dugleg! Víliö og volið er einhvers staðar ann- ars staðar að finna en í munni þessarar fíngerðu stúlku. Hún er alls ekki sterk- leg að sjá, en einhvers staðar innan í henni hlýtur aö leynast mikil seigla. Háskélabíé 8. október: Berkofsky spil- ar til styrktar Grensásdeild Grensásdeild tekur við slösuðu fólki til endurhæfingar. Píanóleikar- ínn Martin Berkofsky varð fyrir óhappi á vélhjóli fyrir ári og marg- brotnaði á hægri handlegg og fæti. Hann hefur nú fengið fullan bata eft- ir dvöl á Grensásdeild. 1 þakklætis- skyni heldur hann píanótónleika íi Háskólabíói á laugardaginn eftír viku, 8. október.kl. 14.30. Allur ágóði rennur til Grensásdeildar. Þar vantar meöal annars fé til að full- gera sundlaug. Sigþrúður Pálsdóttir þekkir Grens- ásdeildina vel að vonum. Hún benti á að þeim fjölgar sem lamast vegna umferöarslysa. „Þegar ég kom þangað fyrst var kannski eitt til- felli á ári, nú þrjú eða fjögur. Oft. ungir piltar, fimmtán til tuttugu ára gamlir.” Aldraðir, fatlaðir og námsmenn Það kemur náttúrlega ekki tórdeik- unum viö, en Sigþrúður talaði einnig um hvað hún væri lánsöm að geta bú- ið heima. „Mér finnst allt fatlaö fólk vera etns konar meðsystkini,” segir hún, „en ég vildi síður búa á stofnun eða £ húsi þar sem allir væru fatlaðir. Það er til fyrirmyndar að í Kópavogi eru byggð fjölbýlishús þar sem nokkrar íbúðir eru sérhannaöar fy rir fatlaða. Þetta er svipað og meö aldraða og með námsmenn. Hjónagarðarnir við Suðurgötu og dvalarheimili aldraöra við Lönguhlíð eru svipaðar byggingar aö sjá. Hefði ekki verið sniðugra að skipta þeim þannig að aldraöir heföu fengiö helming íbúð- anna í hvoru húsi, námsmenn helm- ing?” ihh Sissú: Tvö þrjú fyrstu árin voru verst. maður venst öllu. . . en það er ekkert mái lengur. . . D V-myndir Einar Ólason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.