Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Qupperneq 8
8 DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaðurogútgáfusfjói-i: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86*11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA J3. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍDUMULA12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverö á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað 25 kr. Bfíl Steingríms Vel getur veriö, aö Steingrímur Hermannsson sé á þessu ári fimmtán Sóknarkvenna viröi. Vel getur veriö, að hann ætti að fá í laun á þessu áritvær milljónir króna í staö einnar milljónar króna ráðherralauna. Opinberlega hefur forsætisráöherra um einnar milljón- ar króna laun á þessu ári, auk margvíslegra fríöinda, sem fylgja. En í ofanálag hefur hann nú gefið sér skatt- frjáls 0,6 milljóna innflutningsgjöld af 1,2 milljóna bíl. Þar sem þessar 0,6 milljónir eru skattfrjálsar, jafn- gilda þær um einni milljón króna í skattskyldum tekjum. Þannig tvöfaldar Steingrímur laun sín á þessu kjara- skeröingarári með því að beita úreltum spillingar- ákvæðum. Eölilegra væri, aö almennt samkomulag ríkti í þjóðfélaginu um laun forsætisráðherra, svo að þeir séu ekki eins og útspýtt hundsskinn við að komast yfir undir- borðsfé með aðferðum, sem samrýmast ekki sómatilfinn- ingu manna. , Meðal stjórnmálamanna er ekki einu sinni eining um, aö þeir eigi að fá að krækja sér í svart fé með þeim hætti, sem Steingrímur hefur gert. Það eru aðeins ráðherrar Framsóknarflokksins og Sjálfstæöisflokksins, sem haga sér svona. Alþýðuflokkurinn hætti þátttöku í þessari spillingu árið 1970 og Alþýðubandalagið gerði það árið 1974. Spillingar- stimpillinn stendur eftir á Framsóknarflokknum og Sjálf- stæðisflokknum, sem nú virðast raunar telja sér flest leyfilegt. Hér er verðugt verkefni fyrir áhrifamenn í þessum tveimur flokkum. Þeir mættu gjarna reyna að leiða ráðherrum sínum fyrir sjónir, að þeir séu ekki riddarar úr þrjátíu ára stríðinu, sem megi taka það, sem þá langar í. Þjóðinni ber auðvitað að greiða ráðherrum sínum gott kaup í þeirri von, að það skili sér á annan hátt. En skilja ber á milli þeirrar nauðsynjar annars vegar og meðferðar hins opinbera á þessum tekjum hins vegar. Alltof mikið er um, að ráðherrar og raunar stjómmála- menn yfirleitt láti gilda um sig aðrar reglur en aðra landsmenn. Þingmenn hafa til dæmis hert skattheimtu um leið og þeir hafa ákveðið að undanskilja sig sömu ákvæðum. Þannig eru ýmis fríðindi þingmanna ekki skattlögð, þótt sömu fríðindi annarra manna séu skattlögð. Þing- menn greiða ekki í lífeyrissjóð með sama hætti og aðrir menn gera. Að baki alls þessa er sjúk hugsun. Reglan á að vera sú, að sömu lög, reglugerðir og hefðir gildi um alla landsmenn, hvort sem þeir heita Jón eða séra Jón. Sérstaklega er nauðsynlegt að koma þessu jafn- vægi á í lögum, reglugerðum og hefðum um skatta og tolla. Hitt er svo annað mál, að vert er að kanna, hvort kjör stjómmálamanna séu nógu góð. Ef þeir eiga meira skilið en þeir fá með sömu reglum og annað fólk, eiga þeir að fá meira fé á sama hátt, en ekki undir borðið. Siðbót er raunar orðin mjög brýn, þegar samtrygging stjómmálaflokkanna hefur rofnað á þann hátt, að Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið treysta sér ekki til að taka þátt í verstu útgáfu spillingarinnar. Og ekki verður séð, að milljón króna sjálfsgjöf forsætis- ráðherra stuðli að þjóðarsátt um lífskjaraskerðinguna. Samkomulag stjómarflokkanna um afnám hinna fárán- legu toll- og skattsvika mundi hins vegar stuðla að vinnu- friði. Jónas Kristjánsson. Durtur og dólgur og dári og... Ég varö uppiskroppa meö bækur í vikunni og þurfti bráðnauðsynlega aö fara í bæinn. Þegar hinn frægi hershöföingi Rommel fór i stríö lagði hann mikla áherslu á aö hafa góðar njósnir um ferðir andstæðingsins og yfirburði liös. Síöan lagöi Rommel af stað og fór hratt yfir. Það er sitthvað sem læra má af velmenntuðum hers- höfðingjum og ég undirbjó för mína vandlega. Eg geröi mér þegar ljóst að ég hefði ekki yfirburði í liössöfnuði. Eg geröi mér einnig ljóst að ekki myndi ég hafa miklar n jósnir af ferðalögum andstæöinganna. En hraði er beitt vopn í skærum hvunndagslífsins, eins og á blóöugri stríðsvöllum og ég afréö að gera úr þessari búðaferð mikla leiftursókn. Til þess að tryggja mig fór ég síðan í dularklæði. Ég setti upp dökk gleraugu, fór í hólk- víða újpu, þunga og efnismikla, og vaföi trefli um háls og neðri hluta andlits. Síöan lagði ég af stað. Hemaðaráætlunin fór þegar í stað úr skorðum. Eg þurfti að taka strætisvagn á leið minni í bæinn, og tapaði tíma. Þeir sem eiga reglulega viðskipti við Strætisvagna Reykja- víkur vita það, sem Evklíö og ég aldrei vissum, að stysta leiðin milli tveggja punkta er ekki endilega bein lína. Þannig var ég þegar oröinn á eftir áætlun þegar í miöborgina kom. Ég komst þó óáreittur í fyrstu verslun- ina og stóð þar við um stund. Þar var heitt inni og ég vafði treflinum að hluta ofan af hálsinum og neðri hluta andlitsins svo að loftaði vel um. Að sjálfsögðu skimaði ég þó fyrst vand- lega umhverfis og sá að enginn óvin- anna, sem inni var, þekkti mig. Eg fann nokkrar áhugaverðar bækur og varð við það svo innblásinn gleöi og sjálf strausti að mér láöist aö vef ja treflinum upp að nýju þegar ég gekk út. Það var svo á miðju Austur- stræti aö ég fann skyndilega fyrir köldum gjóstrinum þar sem hann rændi líkamshita mínum. Eg stans- aöi snögglega og byrjaði að vefja. Um það bil sem hakan var að hverfa undir trefilinn fann ég aö gripið var þéttu taki í vinstri öxl mina um leiö og rám rödd við vinstra eyra bauð mér upp á kaff ibolla. Þannig leika örlögin mann oft grátt! Eg hafði ofmetnast, látið ginna mig til þess að sýna andlitiö í bænum og auðvitaö hlaut að fara sem f ór. Mér lá við gráti þar sem eig- andi rámu raddarinnar teymdi mig ómjúklega inn á Hressó og setti mig í bekkinn. Hann settist handan við borðiö og horfði rannsakandi augum á mig. Maður á miöjum aldri, af borgara- legum ættum úr vesturbænum, var kommúnisti i menntaskóla, en losaði sig við kommúnismann eins og slanga við ham eftir aö hann fór að vinna í heildsölu pabba síns. Nú á miöjum aldri, eins og fyrr segir, í óhamingjusamlegu hjónabandi og hafði þess vegna leiöst út í það að vinna f yrir f lokkinn til þess að sleppa útákvöldin. Hann leit frekar illa út. Auðvitað vel til fara því að hann er snyrti- menni. En mér virtist sem hánn hefði grennst dálítiö svo að fötin pok- uðu utan á honum. Og það voru baug- ar undir augunum, fyrir utan það að hann hafði greinilega gleymt að greiða sér af venjulegri vandvirkni. Þegar þjónustustúlkan hafði borið okkur kaffið og kökumar þóttist ég vita að hann færi að koma sér að erindinu. Ég hafði auðvitað ekki minnsta áhuga á erindi mannsins svo að ég ákvaö aö fara aö eins og Rommel geröi og koma fyrsta laginu á andstæðinginn meðan hann var óviöbúinn. ÖlafurB. Guðnason — Þú lítur dálítiö illa út! Vís aðferð til að koma snyrtimenn- inu á óvart og beina samræðunum inn á brautir sem honum ekki voru að skapi. Eg hélt áfram. — Eg hef ekki séð þig svona illa út- litandi áöur. Hvað er að? Er hjóna- bandið erfitt? Ég hélt að þetta myndi skrúfa fyrir manninn en því fór fjarri. — Mér líður bara þokkalega held ég en það er verra með f lokkinn! Eg hefði svo sem mátt vita það. Hann hafði farið að vinna f yrir flokk- inn vegna þess aö hjónabandið var erfitt, og nú, þegar á hjónabandið var minnst, hvarflaöi hugur hans beint til f lokksins. — Mér líst ekkert á þessa for- mannskandídata. Sama hver þeirra vinnur, þeir eiga eftir að kosta flokk- inn fylgi og það talsvert! Eg var kominn í sömu aðstööu og alltaf. Einhver maður úti í bæ var farinn að halda yfir mér fyrirlestur um mál sem ég hafði ekki minnsta áhuga á. Það hlýtur að vera einhver lausn á þessu vandamáli minu en ég hef ekki fundið hana enn. Nema þá að taka blásýru og ég kæri mig ekki umþað. — Hvaö er eiginlega að þessum flokki? Geturðu sagt mér það? Stærsti flokkur landsins, meö öflug- ustu aðstööuna á allan hátt, og samt er þetta ein eyðimörk. Ég umlaði og kinkaði kolli en ein- beitti mér þá að kökunni sem var ljúffeng. — Sjáðu bara hvers konar for- mannsefni hafa verið dregin fram! Einn er durtur, annar dólgur og sá þriðji dári! Og hver öðrum líklegri til þess að sameina flokkinn að sjálf- sögðu, hahaha. Eg strauk vínarbrauðsflögurnar úr andlitinu og leitaöi að viöeigandi svari við því sem rámur hafði sagt. Sú leit stóð stutt því að slíkt svar fannst ekki. Enda óþarfi því að hann fórafstaðaðnýju. — Hvers konar mann þurfum við? Við þurfum mikilmenni, kjarkmann og sjarmör, bráðgáfaðan ræöumann sem er að auki eiturharður pólitíkus. En hann er bara ekki til! — Þaö sem þjóðin þarfnast, kæri vinur, er stjórnandi. Eg ákvað nú að binda enda á þetta samtal og koma mér heim. En hann greip framí. — Já, einmitt! Sterkan mann sem er óhræddur við að beita hörðu! Ég hleypti honum ekki lengra með klisjurnar en greip frami, minnugur þess að hefðu strætisvagnarnir haldiö áætlun heföi ég ekki hitt hann. — Við þurfum mann sem hefur stálhendur í silkihönskum. Mann sem stjórnar málunum svo að til dæmis strætisvagnar haldi áætlun, það vantar allan aga..... - Já! Davíð! Eg stóð upp og gekk út, þreytu- lega. Þessir sjálfstæðismenn komast aldrei aftar í stafrófinu en að D! Eg kættist viö að hugsa til þess aö ég hafði keypt bók um herstjómarlist, eftir Clausewitz. Næst þegar ég fer í bæinn, verð ég betur undirbúinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.