Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 36
36 Messur GuSsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 2. október 1983. Árbæjarprestakall: Barnasamkoma í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu kl. 2. Organleikari Jón Mýrdal. Ath. breyttan messutíma, sr. Guðmundur Þorsteinsson. Ásprestakall: Guðsþjónusta í nýbyggingu Ás- kirkju við Vesturbrún kl. 2. Kaffisala safnaðarfélagsins í Norðurbrún 1 eftir messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall: Messa í Breiðholts- skóla kl. 14. Sr. Olafur Jóhannsson skóla- prestur prédikar. Ungt fólk aöstoðar. Altaris- ganga. Sr. Lárus Halldórsson. Bústaðakirkja: Barna- og fjölskylduguðs- þjónusta í Bústöðum kl. 11. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Messa kl. 11. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Félagsstarf aldraðra hefst á miðvikudaginn kl. 2. Æskulýðsfélag Bústaðakirkju, fundur miðvikudagskvöld kl. 8.30. Sr. Ölafur Skúlason. Digranesprestakail: Bamasamkoma i Safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Ferming og altarisganga. Fermdar verða Katrín Auður Sverrisdóttir, Hvassaleiti 41, og Valgerður Halldórsdóttir, Smáraflöt 30, Garðabæ. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 2. Ferming og altarisganga. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Dómkórinn syngur. Sr. Þórir Stephensen. Eiliheimilið Grund: Messa kl. 10. Sr. Lárus HaUdórsson. Fella- og HólaprestakaU: Ferming og altaris- ganga í Bústaðakirkju kl. 2. Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan í Reykjavík: Fyrsti fermingartím- inn í kirkjunni laugardaginn 1. okt. kl. 14. Al- menn guðsþjónuta sunnudag kl. 14. Fermingarbörn og foreldrar þeirra hvattir til að koma. Þeir sem gefa BibUur á hótel, í skóla og á sjúkrahús (Gideon-félagar) koma í heim- sókn og taka samskot við kirkjudyr. Organ- leikari Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 2. Altaris- ganga. Fermdur verður Hjörleifur Hreiðar Steinarsson, Kleppsvegi 68. Almenn sam- koma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. HaU- dórS. Gröndal. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Organleikari Hörður Áskelsson. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kirkjuskóli barnanna er í Safnaðarheimilinu á sama tíma (kl. 11). Börnin komi fyrst í kirkjuna og taki þátt í upp- hafi messunnar. Þriðjud. 4. okt.: Fyrirbæna- guösþjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. Spilakvöld kl. 20.30 til ágóða fyrir kirkjubygg- inguna. Miðvikudagur 5. okt.: Náttsöngur kl. 22.00. Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa ki. 2. Ath. breyttan tíma. Ferming. Prestamir. Langholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Organ- leikari Jón Stefánsson, prestur sr. Sigurður Haukur Guöjónsson. Fermd verða Chiem Tai Shill, Keilugranda 4, Kristín Pétursdóttir, Skeiðarvogi 157, og Þorbjörg Stefanía Þor- steinsdóttir, Sunnuvegi 9. Safnaðarstjórn. Laugameskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Skírn. Kl. 14: Ferming á vegum Laugames- og Seljasóknar. Þriðjudagur: Bænaguðsþjón- usta kl. 18. Föstudagur: Opið hús fyrir aldr- aöa kl. 14.30. Sr. Ingólfur Guðmundsson. Neskirkja: Laugardagur 1. okt.: Félagsstarf aldraðra kl. 15. Sýndar litskyggnur.úr Austur- landsferðinni. Fjarða- og klettakórinn syngja. Spumingakeppni. Sr. Frank M. Halldórsson. Barnasamkoma ki. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson (ath. breyttan tíma). Miðvikudagur: Fyrirbæna- messa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Oskar Olafs- son. Seljasókn: Fermingarguðsþjónusta verður í Laugarneskirkju kl. 14. Ath. að guðsþjónust- an í ölduselsskóla fellur niður vegna fermingarinnar. Fimmtudagur 5. okt.: Fyrir- bænasamvera Tindaseli 3 kl. 20.30. Sóknar- prestur. Stokkseyrarkirkja: Bamamessa ki. 11. Sr. Olfar Guðmundsson. Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 2. Sr. Olfar Guðmundsson. Ýmislegt Safnaðarfélag Áskirkju Nk. sunnudag verður messað í kirkju- byggingunni kl. 14. Eftir messu verður safnaðarfélagið með kaffisölu að Norðurbrún 1, og mun Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri skýra fyrirhugað skipulag á lóð kirkjunnar. Þær sem vilja gefa kökur komi þeim kl. 11—13 á sunnudag aöNoröurbrún 1. Hafnarfjarðarkirkja Barnastarfið hefst með sunnudagaskóla kl. 10.30. Messa kl. 14.00. Sr. Gunnþór Ingason. ÁRBÆ J ARPREST AK ALL: Væntanleg fermingarbörn í Arbæjarsókn á árinu 1984 era beðin að koma til skráningar og viðtais í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar fimmtudag- inn 6. okt., stúlkur kl. 6 sd. en drengir kl. 6.30, og hafi börnin meö sér ritföng. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Væntanleg fermingar- böm mæti í Langholtsskóla kl. 4 miðviku- daginn 5. okt. og hafi með sér ritföng. Sr. Ámi Bergur Sigurbjömsson. BREIÐHOLTSPRESTÁKALL: Fermingar- börn í Breiðholtssókn 1984 komi til innritun- ar í anddyri Breiðholtsskóla (hjá salnum) þriðjudaginn 4. október milli kl. 16 og 17. Sr. Láras Halidórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Væntanleg fermingar- börn eru beðin að mæta í kirkjunni þriðju- daginn 4. okt. kl. 6 sd. og hafi með sér rit- föng. Sr. Olafur Skúlason dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL: Þau böm f Digranesprestakalli sem eiga aö fermast 1984 eru beðin að koma til innritunar í Safnaðarheimilið við Bjamhólastíg miðviku- daginn 5. okt. kl. 3—5. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÖMKIRKJAN: Fermingarbörn sr. Þóris Stephensen komi í kirkjuna mánudaginn 3. okt. kl. 5 sd. en fermingarbörn sr. Hjalta Guðmundssonar komi í kirkjuna 4. okt. kl. 5 sd. Börnin eru beðin að hafa með sér skrif- færi. FELLA- OG HÖLAPRESTAKALL: Fermingarböm ársins 1984, sem ekki hafa þegar verið innrituð, komi til viðtals í skrif- stofu mína í Menningarmiðstöðinni við Gerðuberg þriðjud. 11. okt. frá kl. 5—7. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Vorfermingarbörn 1984 í Grensásprestakalli komi til viðtals og skráningar í Safnaðarheimili Grensáskirkju við Háaleitisbraut miðvikudaginn 5. október milli kl. 5 og 6 sd. Sr. Halldór S. Gröndal. FRlKIRKJAN I REYKJAVÍK: Fermingar- börn ársins 1984 eru beðin að koma í kirkj- una við Fríkirkjuveg laugardaginn 1. októ- ber kl. 14. Bömin hafi með sér Nýja testa- menti, fermingarkverið: Lif með Jesú, stíla- bók og penna. Sr. Gunnar Bjömsson. HALLGRÍMSPRESTAKALL: Væntanleg fermingarböm í Hallgrímskirkju eru beðin að koma til innritunar miðvikudaginn 5. okt. kl. 6. Sr. Karl Sigurbjörnsson og sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Fermingarböm ársins 1984 komi til viðtals og skráningar í kirkj- unni þriðjudaginn 4. október kl. 6 sd. og hafi með sér ritföng. Prestamir. KÁRSNESPRESTAKALL: Fermingarböm 1984 komi í Kópavogskirkju kl. 6 sd. miðvikudaginn 5. október. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Fermingarböm Langholtssóknar 1984 mæti til innritunar þriðjudaginn 4. okt. kl. 18.00 í Safnaðar- heimilinu við Sólheima. Sr. Sigurður H. Guöjónsson. LAUGARNESKIRKJA: Fermingarböm ársins 1984 komi til viðtals í kirkjuna þriðju- daginn 4. okt. og miðvikudaginn 5. okt. milli kl. 16 og 17. Sr. Ingólfur Guðmundsson. NESKIRKJA: Væntanleg vorfermingarböm í Nessókn komi til skráningar og viðtals í kirkjunni nk. föstudag 7. okt. milli kl. 13 og 15. Prestarnir. SELJASÖKN: Fermingarbörn Seljasóknar mæti í ölduselsskóla þriðjudaginn 4. okt. kl. 20.00 og í Seljaskóla miðvikudaginn 5. okt. kl. 20.00. Vinsamlega komið með skriffæri. Sóknarprestur. KIRKJA ÖHÁÐA SAFNAÐARINS: Sr. Emil Björnsson biður væntanieg fermingarbörn í Oháða söfnuðinum árið 1984 að koma til við- tals í kirkju Oháða safnaðarins kl. 5.30 fimmtudaginn 6. okt. Fundir Kvenfélag Lágafellssóknar Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Hlé- garði mánudaginn 3. október kl. 20.30. Fund- arefni: Sagt frá Grænlandsferð félagsins og fundi Kvenfélagasambands Gulibringu- og Kjósarsýslu. Rætt verður um fyrirhugað vetrarstarf og fleira. Kaffidrykkja. Allar konur velkomnar á fundinn. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fýrsta fund sinn þriðjudaginn 4. október kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Unnur Arngrímsdóttir heldur erindi og eru félagar hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Fram konur Fyrsti fundur vetrarins verður mánudaginn 3. október kl. 20.30. Svandís Sigurðardóttir sjúkraþjálfari verður með leiðbeiningar og svarar fyrirspumum. Mætum allar. Stjómin. Félag harmóníkuunnenda með skemmtifund Félag harmóníkuunnenda verður með skemmtifund og kaffisölu í félagsheimili Fáks við Elliðaár sunnudaginn 2. október kl. 15. Kvenfélag Árbæjarsóknar Fyrsti fundur vetrarins verður þriðjudaginn 4. október nk. kl. 20.40. Venjuleg fundarstörf. Ingólfur S. Sveinsson flytur erindi um vöðva- bólgu og streitu. Kaffiveitingar. Allar konur velkomnar. Stjórn kvenfélags Árbæjar- sóknar. Frá Háskóla íslands Umræðufundur verður haldinn á vegum fé- lagsvísindadeildar Háskóla Islands fimmtud- aginn 6. október 1983 í hliðarsal Félagsstofn- unarstúdenta. Fundarefni: 1. Stjórnmálafræði á Islandi: Ástand og horfur. Svanur Kristjánsson, próf- essor, hefur framsögu. 2. Almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn en nemendur í stjórnmálafræði og stjómmálafræðingar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta. Reyðfirðingar með kaffi og basar á Hótel Sögu Kvennadeild Reyðfirðingafélagsins verður með kaffisölu og kökusölu á Hótel Sögu á sunnudaginn kl. 14. Eldri Reyðfirðingar era sérstaklega vel- komnir en einnig allir aðrir hvaðan sem þeir era ættaðir. Konumar lofa góðum kökum og sterku kaffi og svo er það náttúrlega basar- inn. -EIR. Neskirkja: Félagsstarf aldraðra. I dag kl. 5 verður sam- verustund í safnaðarheimilinu, sýndar verða litskyggnur úr Austurlandsferðum. Fjarða- og klettakórinn syngja og svo verður spum- ingakeppni. Frá Sjálfsbjörg Reykjavík og nágrenni Félagsmála-, æskulýðs- og dansnefnd hafa opið hús í félagsheimilinu Hátúni 12, frá kl. 20.30 i kvöld, föstudagskvöld. Meöal annars verða nýju hljómflutningstækin notuð. Kaffi- veitingarog fleira. Eyfirðingar Arlegur kaffidagur og basar verður að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 2. október. Húsið opnað kl. 14. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Kvennadeild Eyf irðingafélagsins. íbúasamtök norðan Hverfisgötu Ibúar á svæði er markast af Ingólfsstræti, Skúiagötu, Snorrabraut og Hverfisgötu hyggj- ast bindast samtökum. Undirbúningsnefnd boðar til stofnfundar í Þjóðleikhúskjallaran- um nk. laugardag kl. 14.30. Til þessa fundar verður boðið öllum er búa á því svæði sem að framan greinir. Auk þess eru allir er starfa á svæöinu velkomnir á fundinn. Aðalfundur Húnvetninga- félagsins í Reykjavík verður haldinn i Domus Medica mánudaginn 3. október kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, önnurmál. Stjórnin. Verkakvennafélagið Framsókn Fundur, haldinn í Verkakvennafélaginu Framsókn 26. sept. 1983; beinir þeirri eind- regnu áskoran til ráðamanna togaraútgerða í Reykjavík að siglingar togara verði sem mest takmarkaðar á næstu mánuðum. Ljóst er að siglingar togara stefna atvinnuöryggi fjölda verkakvenna í hættu. Á sama tíma og al- menningi er gert að sæta geigvænlegri kjara- skerðingu er óhæfa að togarar séu látnir sigla, þannig aö atvinnuleysi skapist hjá verkafólkiílandi. Kattavinafélagið með kökubasar og flóamarkað Kattavinafélagiö veröur meö kökubasar og flóamarkaö aö Haliveigarstöðum laugar- daginn 1. október og hefst hann kl. 14. Félag einstæðra foreldra heldur framhaldsflóamarkað Vegna áskorana og eftirspurnar verður framhaldsflóamarkaður í Skeljahelli, Skelja- nesi 6, laugardaginn 1. október og sunnu- daginn 2. október frá kl. 14. Mikið hefur bæst við, keramik, kerti, blóm, leirtau og svo fram- vegis. Jólakort fyrri ára seld á spottpris. Nýr og notaður fatnaður, allar stærðir. Húsgögn, glæsilegt sófaborð, hægindastólar, rúm, svefnbekkir, radíófónn og fleira. Athugið að ekkert kostar meira en 100 kr. Sjáumst. Fióamarkaðsnefnd, Ferðalög Útivistarferðir Dagsferöir sunnudagínn 2. okt. Síðasta haustlitaferðin kl. 8. Verð kr. 450. 2. Kl. 10.30 Móskarðshnúkar—Svinaskarð. Skemmtileg fjallganga og gömul þjóðleið í Kjósina. Verð250 kr. 3. Kl. 13 Maríuhöfn—Búðasandur. Létt strandganga. Fomar minjar um verslunar- stað o. fl. Verö 250 kr. Frítt f. börn i dags- ferðir. Brottför frá bensinsölu BSI. Símsvari 14606. Sjáumst á sunnudaginn. Ferðafélag íslands Dagsferðir sunnudaginn 2. okt.: 1. KL 10: Hátindur Esju (914 m) — Sands- fjall. Verð kr. 250. 2. Kl. 13: Eyjadalur og nágrenni, en dalurinn er norðanmegin í Esju. Verð kr. 250. Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bíl. Ath.: Pottasett frá Nýjadal er í óskilum á skrifstofu FI. Leiklist Þjóðleikhúsið um helgina: Skvaldur eftir Michael Frayn verður á dag- skrá Þjóðleikhússins nú um helgina en leikritið var frumsýnt um síðustu helgi við stórgóðar undirtektir. 4. sýning verksins verður föstudagskvöldið 30. september og er þegar uppselt á þá sýningu. 5. sýningin verður iaugardagskvöldið 1. október og er einnig uppselt á þá sýningu, og 6. sýningin verður sunnudagskvöldið 2. október. Skvaldur er, eins og fram hefur komið í fréttum, glórulaus farsi, hláturstykki sem gerir stólpagrin að leikhúsi og vondum gamanleikjum. Þetta verk hefur nú fengið afar lofsamlega dóma gagnrýnenda, enda er hér á ferðinni meist- aralega samansett gamanleikrit. Leikstjóri er Jill Brooke Ámason en með hlutverkin fara: Þóra Friðriksdóttir, Gunnar Eyjólfs- son, Sigríður Þorvaldsdóttir, Bessi Bjama- son, Rúrik Haraldsson, Tinna Gunnlaugs- dóttir, Sigurður Sigurjónsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og ÞórhallurSigurðsson. Tilkynningar Perusala Lionsmanna Arleg perusala Lionsklúbbs Garða og Bessa- staðahrepps fer fram helgina 1. og 2. október nk. í Garðabæ og Bessastaðahreppi. Lions- menn í Garðabæ og Bessastaðahreppi hafa á undanfömum árum unniö að ýmsum verk- efnum, stórum og smáum, til hagsbóta fyrir íbúa þessara byggðarlaga, en aðalverkefni klúbbsins í ár, sem og undangengin tvö ár, er aðstoð við aldraða í bæjunum og hefur klúbburinn m.a. í því skyni keypt vistpláss á Hrafnistu í Hafnarfirði og verður lokið við að greiða það á þessu ári. Um leið og við Lionsmenn í Garöabæ og Bessastaðahreppi þökkum íbúunum frábæran stuðntag á undanförnum árum, þá vonum við að sölumönnum okkar verði vel tekið nú um helgina, sem jafnan áður. Opið hús hjá Geðhjálp Félagsmiðstöð Geðhjálpar, Báragötu 11 Reykjavík, sími 25990. Opið hús laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. Happdrætti Happdrætti Dregið var í happdrætti Færeyska sjómanna- heimilistas 9. september sl. Upp komu þessi númer: 1. nr. 6260 2. nr. 12971 3. nr. 16152 4. nr. 7931 5. nr. 7901 6. nr. 6606 7. nr. 9898 8. nr.14383. Þökkum veittan stuðntag. Byggtagarnefndta. Útdregnir vinningar í bilbeltahappdrætti Umferðarráðs 28. sept. 1983: Nr. 24943 Tveir „Good year” hjólbarðar / Hekia hf. (kr. 6.000,-), nr. 44589 Endurryðvöm á bíl / Ryðvarnarskálinn (kr. 3.000,-), nr. 16938 Tudor-rafgeymir / Skorri h.f., (1.500,-) , nr. 30632, 29295, 27461, 46672 „Bílapakki” til umferðaröryggis / bifreiðatryggingafélögin (1.163,-), nr. 41973, 24407 , 29396, 23288, 16991 „Gloria” slökkvitæki og skyndihjálparpúði RKI/olíufélögta (812,-). Verðmæti vtantaga samtals 19.212,- kr. Fjöldi vtantaga 12. I dag var dregið í síðasta sinn í „BÍIbelta- happdrætti” Umferðarráðs. Jón Helgason dómsmálaráðherra dró út vtaningana á skrif- stofustani. Ýmislegt Sími AA-samtakanna Eigir þú við áfengisvandamál aö stríða þá er sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 daglega. Tónleikar Hádegisdjass á Hótel Loftleiðum I fyrra var tekta upp sú nýjung á Hótel Loft- leiöum að hafa lifandi djass í hádegtau á sunnudögum og mættu margir af bestu djass- leikurum okkar til leiks og léku meðan gestir neyttu matar. Nú á að taka upp þráðtan aftur og verður byrjað næstkomandi sunnudag og mun þá Friðrik Theódórsson etanig kynna hvað verður næstu sunnudaga. Djasstan mun sem sagt duna á Hótel Loftleiðum á sunnu- dögum i vetur og er ekki að efa að unnendur sveiflunnar taka þessu f ramtaki fegtas hendi. Nýjar bækur Vísnabókin Ný útgáfa komin út IÐUNN hefur gefiö út nýja útgáfu af Vísnabókinni, hinu gamalkunna safni sem Símon Jóh. Ágústsson tók saman, en Halldór Pétursson myndskreytti. Vísnabókin kom fyrst út áriö 1946 og hefur síðan verið ein ailra vinsælasta og útbreiddasta barnabók í landinu. Þessi nýja útgáfa er hin sjöunda og skiptir upplag bókarinnar nú nokkrum tugum þúsunda. Til hinnar nýju prent- unar Vísnabókarinnar hefur verið vandaö eftir föngum og eru margar myndanna iitprentaðar. Bókin er prentuð í Odda. Hún er 110 blaðsíður að stærð. DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983. Hans og Gréta með myndum eftir Svend Otto S. IÐUNN hefur gefið út Hans og Grétn, hið sígilda ævintýri Grimms-bræðra, með litmyndum eftir danska teiknar- ann Svend Otto S. Hann er kunnur af teikningum sínum og hefur Iöunn áður gefið út Fimm Grimmsævintýri meö myndum eftir hann, svo og norska ævintýrið Pönnukökuna. Þorsteinn frá Hamri hefur þýtt Hans og Grétu. Bókin er sett hjá Ásetningu en prentuö í Dan- mörku. í víti eiturlyfja Bók eftir danska stúlku Hjá IÐUNNI er komin út bókin í víti eiturlyfja eftir Birthe E. Christensen. Þorvaldur Kristinsson þýddi. Höfund- ur er ung dönsk stúlka sem segir hér á umbúðalausan hátt frá ævi sinni, einkum þvi skeiði sem hún var ánetjuð eiturlyfjum, en það voru sjö ár og hún var fimmtán ára þegar hún hóf að neyta þeirra. I kynningu forlags á kápubaki segir: „Hér leggur hún ævi sína á borðið. Hvernig hún lenti í eitur- lyfjunum. Hvernig „sjö ára helvíti sem djönkari og hóra” gekk fyrir sig — og hvernig hún sneri við blaðinu. — Þessi bók er skrifuð handa þeim sem ekki þekkja vonleysi óviðráðanlegrar fíkni- efnaneyslu. Þaö þarf kjark til aö slíta sig lausan. Og margt getur fleygt „stelpugæs eins og mér” aftur í skítinn .. . Eg hélt aö ég myndi aldrei sigra .. . Þaö tók mig rúm þrjú ár aö skrifa þessa bók og þaö var hörð barátta aö ljúka henni.. . Rís upp kona og sýndu hvaðíþérbýr!” í víti eiturlyf ja kom út í Danmörku áriö 1981. Hún er gefin út með styrk úr norræna þýðingarsjóðnum. Bókin er í tuttugu og einum kafla, 140 blaðsíður aö stærö. Oddi prentaði. Barnasjúkdóm- ar og slys Ný heimilishandbók IÐUNN hefur gefiö út Barnasjúkdóma og slys, sænska handbók handa for- eldrum og öörum uppalendum. Aöal- höfundar eru Ake Gyllenswárd og Ulla-Britt Hágglund, en Guðsteinn Þengilsson læknir þýddi og staðfærði. I bókinni er fjöldi mynda. Hér er lýst hinum venjulegu einkennum barna- sjúkdóma. Með hjálp bókarinnar má þekkja sjúkdómana á frumstigi og taka ákvörðun um hvenær ástæða sé til að tala viö lækni eöa heilsugæslustöð. Þá er hér einnig að finna ráð og leið- beiningar um hvemig fólk getur best annast veik böm sín í heimahúsum. Meöal þess sem gerö er grein fyrir í bókinni em alis konar áföD: bkeðing, taugalost, eitrun, bruni, kal o.fl., og hvernig við skuli bregðast. Þá eru hér einnig ráð til að koma í veg fyrir slys- farir barna, heima, við leik utan dyra og í umferðinni. Þá eru kaflar um al- menna heilsugæslu, vöxt og þroska barna o.s.frv. Guðsteinn Þengilsson hefur áður þýtt og staöfært bókina Hverju svarar læknirinn? sem Iðunn gaf út í fyrra. — Baraasjúkdómar og slys er 117 blaðsiður. Bókin er sett hjá Prisma, en prentuð í Svíþjóð. Snorri Hjartar- son á færeysku Ut er komin hjá bókaforlaginu Orð og leg í Færeyjum þýðúig Martins Næs á ljóðabókinni Hauströkkrið yfir mér eftir Snorra Hjartarson. Á færeysku heitir bókin Heystmyrkrið yvir mær og er gefin út með styrk frá Norðurlanda- ráði. Snorri fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þessa bók árið 1981. Erfiðara er en ætla má aö flytja ljóð milli svo skyldra mála sem íslensku og færeysku, en óhætt er að fullyrða að Martin Næs hefur unnið starf sitt af næmi og vandvirkni. Bókin er 74 bls., prentuð hjá Einars Prent í Þórshöfn. Hún er til sölu hjá Bókabúð Máls og menningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.