Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Blaðsíða 11
WM>r CTfnorrvrvo ro yrrm/ rrtrr-JAM ™
DV. FÖSTUDAGUR 21. OKTOBER 1983.
VIÐTALIÐ:
99
Eg er ekki sportidjót
97
—segir Ingólfur Hannesson, íþróttafréttamadur sjónvarpsins
„Þaö var skrítin tilfinning að fá á
sig rautt ljós og vera kominn inn á
stóran hluta heimila í landinu. Eg
var óöruggur í byrjun, en þetta
venst.”
Ingólfur Hannesson íþróttafrétta-
maður sjónvarpsins er oröinn öllu
sjóaðri nú eftir nokkurra mánaða
dvöláskjánum.
„Eg spekúlera ekkert í því hvemig
ég er fyrir framan þennan stóra hóp,
heldur frekar hvernig þátturinn
gengur frá tæknilegu hliðinni. ”
Ingólfur útskrifaðist úr Iþrótta-
kennaraskólanum 1978 og um haust-
ið fór hann að kenna nokkra tíma í
Iönskólanum. Vinnukvótinn var hins
vegar ekki fullur. Þá var það að
Þjóðviljinn auglýsti eftir íþrótta-
fréttamanni. Ingólfur sótti um og var
ráðinn.
„Þaö var gengiö frá þessu á föstu-
degi og mér var tilkynnt, að ég þyrfti
að vera tilbúinn með tvær siður fyrir
þriðjudaginn, ” sagði Ingólfur.
— Hvernig gekk það?
„Ágætlega. Gunnar Steinn Páls-
son, sem hafði verið íþróttafrétta-
maður, hjálpaði mér. Við fengum
ágætt mál upp í hendumar og fyrstu
tvær síðumar vora þokkalegar. ”
Eins og sannur íþróttafrétta-
maöur, stundar Ingólfur sjálfur
íþróttir sér til gamans. Hann skokk-
ar, syndir og leikur knattspyrnu.
, Jín ég vil ekki láta kalla mig
sportidjót. Iþróttir era aðeins eitt af
mínum áhugamálum.”
Þeir sem fylgjast með skrifum
íþróttafréttamanna hafa kannski
tekiö eftir því, að þeir hafa oft dálitið
sérstakt orðfæri. Ingólfur var
spurður um þaö.
„Menn búa sér til eigin orðaforða
og hættan við að festast í honum er
oft vegna mikillar tímapressu. Eg
hef staðiö sjálfan mig að því að lýsa
leik eftir leik með sömu orðunum.”
Ingólfur fór til Oslóar haustiö 1981
til náms í uppeldis- og félagsfræði
og hann vinnur að þvi að ljúka þvi
námi samhliða störfum sínum hjá
sjónvarpinu.
,,Frítími minn fer að miklu leyti í'
félagsfræðilestur. Ég á eftir síðasta
áfangann í cand. mag. próf og
draumurinn er að klára það næsta
vor,” sagði Ingólfur Hannesson.
Ingólfur er kvæntur Guðrúnu
Bjamadóttur fóstru, sem nú er við
framhaldsnám í Osló, og eiga þau 4
ára dóttur. -GB
Fékk markið í höfuðið
Ungur piltur var fluttur meðvit-
undarlaus á sjúkrahús í fyrradag eftir
aö hafa slasast á marki.
Nánari tildrög vora þau, að tveir
piltar voru aö ieika sér á litlum knatt-
spymuvelli við Langholtsskóia.
Slepptu þeir sjálfum knettinum i leikn-
um en fóru að klifra í markstöngunum.
Tókst þá ekki betur til en svo, að þver-
sláin á markinu datt niöur og lenti á
höfði annars piltsins. Hlaut hann mikið
högg og var fluttur meðvitundarlaus á
sjúkrahús, þar sem gert var að
meiðslum hans.
-klp-
„Það var skrftin tflffamfaig að f á á sig rautt ljós segir Ingólfur Hannesson um
fyrstu beinu útsendinguna sina. DV-mvnd Bi.Bi.
.. 11
Afgreiðslutími verslana
umfram almenna
dagvinnu:
Launakosfn-
aður eykst
um 60%
Niðurstöður útreikninga sem
Sigfinnur Sigurðsson, hagfræð-
ingur Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, hefur gert í fram-
haldi af þeirri umræðu sem verið
hefur um breyttan afgreiðslutíma
verslana sýna aö launakostnaður
þeirra sem lengst hafa opiö getur
aukist allt að 60 prósentum.
Ef bornarerusamantværversl-
anir þar sem önnur hefur opið á
þeim tíma sem almenn dagvinna
segir til um en hin til kl. 19 mánu-
daga, þriðjudaga og miðvikudaga,
til kl. 20 fimmtudaga, til kl. 21
föstudaga og til kl. 16 laugardaga
þá mun launakostnaöur síðar-
nefndu verslunarinnar vera 60
prósent hærri en þeirrar fyrr-
nefndu.
„Umræöan um breyttan
afgreiðslutíma verslana helgast af
innbyrðis samkeppni kaupmanna
um viðskiptin,” sagði Sigfinnur
Sigurðsson. „Þaö er athyglisvert
að einstakar verslanir sjá sér hag í
að hafa opið frameftir á meðan
keppinautamir hafa lokað. Þegar
allar verslanir fá að hafa opið þá
minnkar áhuginn snarlega. ’ ’
Gisli Blöndal hjá Hagkaupi sagöi
fráleitt að túlka þessar tölur
þannig að aukinn launakostnaður
kæmi fram í hærra vöraverðí. „Við
nýtum fjárfestingar okkar betur
því lengur sem við höfum opið og
auk þess verða viðskiptin verulega
meiri,” sagði Gísli. „Hér er um að
ræða aukna þjónustu öllum til
hagsbóta.” -EK..
Komdu ij
á pelm y
gamla og
shiptu á nýrri
Bílar og g.
greiðsluhjör e
við allra hæfi ^
btl?
Komdu þá
til
^ ohhar
^ Mesta
bílaárval
landsins
Opið
laugardag
frú 9—18
J
BORGARBILASALAN HF.
GRENSÁSVEGI11
BÍLASKIPTIHF.
SIMAR 83150 — 83085