Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Side 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 21. OKTOBER 1983. Spurningin Ætlarðu að sjá óperuna La Traviata? Jónas Helgason brunavörður: Við. erum alltaf á vakt í óperunni og sjáum hana. Magnús Th. Magnússon brunavörður: Nei. Mig langar ekkert til að sjá óperu með Garðari Cortes. Oddur Garðarsson flugvlrki:Ég ætla að sjá hana i bíó. Mér er sagt að upp- færslan þar sé betri. Jóhann Þórisson flugvirki: Ég ætla ekki að sjá hana. Ég hef lítinn áhuga é óperum. Guðbjartur Torfason flugvirki: Nei, ég hef lítinn áhuga á því. Aml Gunnarsson iagermaður: Ég reikna ekki með því en þó er aldrei að vita hvað maður gerir ef veturinn| verður harður. | Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur 9 8 áhyggjufullar eru ekki hressar með aðgerðir rikisstjórnar Steingrims Hermannssonar. Opið bréf til forsæf isráðherra: Oánægðar með aðgerðir ykkar 8 áhyggjufullar skrifa: Til forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar. Við undirritaðar viljum láta í ljós óánægju okkar vegna ummæla þinna í Morgunblaðinu í síðustu viku þar sem þú gefur í skyn að við séum ekki færar um að taka sjálfstæöar ákvarðanir. Við skrifuðum á undirskriftalista verkalýðshreyfingarinnar af þeirri einföldu ástæðu að við erum óánægðar með aðgerðir ykkar. Og það eru örugg- iega margir á þeirri skoðun. Við gátum ekki betur séð en allt þaö fólk sem mætti fyrir utan Alþingishúsiö, þegar undirskriftimar voru afhentar, hafi komið þangað af fúsum og frjálsum vilja. Eöa viltu kannski segja að það hafi veriðneytt tilaökoma? Og tala svo um 120 Húsvikinga, sem virðast vera ánægöir með gang mála, á móti 34 þúsund óánægðum lands- mönnum, finnst okkur frámunalega barnalegt. Við sem skrifum þetta bréf erum bæði úr hópi þeirra sem skrifuðu undir undirskriftalistann og þeirra sem ekki komust til þess. Steingrímur: Mundir þú geta lifað af því sem við höfum í kaup? Þú mundir aö sjálfsögu geta þaö, því ein- hvern veginn í ósköpunum förum við að því. En aftur á móti erum við vissar um að þú mundir ekki viljaþað. Við erum með að meðaltali 14 þúsund á mánuði fyrir vaktavinnu og þurfum að borga af því húsaleigu, 6 þúsund, rafmagn, þúsund til fimmtán hundruð, síma, eitt þúsund, og bama- pössun, 5 þúsund, en fáum 2500 endur- greiddar. Eftir eru þrjú þúsund krónur ámánuðitilaðkaupa mat og klæði. Og þið viljið að við strekkjum ólina betur. Varúð! Bankinn bítur Skúli G. Jóhannesson skrifar: Varúð, hundurinn bítur, er sett á skilti fyrir utan hús með það í huga aö halda fólki frá húsinu, og til að vara við hundi. Varúð, bankinn bítur, datt mér í hug aö setja mætti utan á Búnaðar- bankann, aðalbanka, þegar ég varð fyrir þeirri reynsiu mánudaginn 17. okt. sl. að Búnaðarbankinn, einn allra banka og fjárfestingafélaga, sem ég hafði samband viö, tekur dráttarvexti af skuldabréfi sem gjalddaga hefur á laugardegi eöa sunnudegi en greitt er á mánudegi. Skuldabréf mitt var á gjalddaga laugardaginn 15. október og ég kem á mánudagsmorgni 17. okt. til að greiöa mína skuld. Nei, góði — þú ert orðinn vanskilamaður, skuldabréfið fór í vanskil á sunnudagsmorgun. og þér ber að greiða dráttarvexti í 2 daga (60% ársvestir), — NEI það þýðir ekk- ert að semja um að greiða samnings- bundna vexti bréfsins fyrir þessa daga (laugardag og sunnudag), dráttar- vextir skulu það vera (stundum nota þeir orðið dagvextir, en þeir eru líka 60% ársvextir og því aðeins orðaleikur). Líklega getur Búnaðarbankinn, „aöalbankamenn”, hengt hatt sinn á einhverja reglugerð Seölabankans um aö þetta sé löglegt, — en siðlaust er það, enda er þessi regla ekki notuð í einu útibúi Búnaðarbankans, það segir sína sögu. Þessi regla er ekki notuð í fjórum bönkum (Landsb. Útvegsb., Iðnaðarb. og Alþýðub.) sem ég heimsótti, og að sögn Fjárfestinga- félags Islands er það almenn regla á skuldabréfamarkaðinum að skulda- bréf, sem hafa gjalddaga um helgar eöa á helgidegi, má greiða næsta dag sem opið er án dráttarvaxta. Þessi skrif mín um ranglát vinnubrögð lít ég á sem aðvörun til fólks og ætla ekki að hafa fleiri orð um þá afgreiöslu sem ég fékk, en vitni varð ég að því að fleiri fengu sömu af- greiðslu og ég þennan mánudag. Ég vona að bankinn sjái sér hag í því að breyta þessari ósanngjörnu reglu. SVAR: Oiafur Oddsson hjá Búnaðar- bankanum sagði að viökomandi vextir væru dagvextir en ekki refsivextir og ætti þessi regla að gilda fyrir allan Búnaöarbankann, jafnt aðalbanka sem útibú. Hann sagöi að hugsunin á bak við þetta væri sú að hefði maðurinn átt fé það sem hann ætlaði að greiöa skuldina með á reikningi í bankanum væru vextir reiknaðir út allan timann sem féð væri á reikningnum og þá yfir helgina. Keypti bíl af Landsbankanum: ERU ÞETTA HEIÐ- ARLEG VIÐSKIPTI? Jón Gunnar Jónsson hringdi: Ástæðurnar fyrir því að ég skrifa þessar línur eru þær að 8. ágúst 1983 keypti ég bíl af Landsbanka Islands. Bíllinn var seldur af Sambandi íslenskra samvinnufélaga í Ármúla. Hann kostaöi 160 þúsund krónur og var seldur með þessum skilmálum: 40 þúsund krónur út og 120 þúsund stóðu eftir á veðskuldabréfi til 12 mánaða. Gjalddagi fyrstu afborgunar var 25. september 1983 og var 11.187,50 krónur, en í upphafi átti að greiða sem ’nemur 10 þúsund krónum á mánuði. Er ég var búinn að greiða 11.187,50 krónur stóðu eftir 118.927 krónur. Svo kom næsta greiðsla og nam hún 11.163,90 krónum og hún hefur ekki veriö greidd. Ef hún væri greidd mundu standa eftir 110—111 þúsund krónur og ætti hver og einn að sjá hvað bankinn tekur í vexti af þessu láni. Ég hef spurt nokkra bilasala í Reykjavík hvað þessir bílar mundu kosta á frjálsum markaði og mér hefur verið tjáð að verð þeirra sé 100—110 þúsund, eftir því hvemig þeir séu borg- aðir. Ég vísa máli mínu til ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og spyr: Finnst henni það réttur viöskiptamáti að á sama tíma og Steingrímur Her- mannsson fer ofan í vasa þjóöarinanr og fær þar 700 þúsund krónur til bíla- kaupa, geti Landsbanki Islands selt bláfátækum verkamanni bílskrjóð á okurvöxtum? Ég segi nei. Landsbanki Islands á að heita banki þjóðarinnar og mér finnst að hann geti ekki leyft sér að selja bíla á þeim vöxtum þegar sh'kur viðskiptamáti þekkist ekki á hinum fr jálsa markaði. Eg óska eftir því að Landsbankinn annaðhvort taki bílinn aftur og greiði mér það sem ég er búinn að borga ellegar laekki bílinn til samræmis við hiðfrjálsa verðlag. Nú skora ég á þig, herra banka- stjóri, eða þann sem fer með þessi mál innan bankans, að svara þessu bréfi. Og ég spyr: Eru slík viðskipti heiðarleg? Hvernig losna ég við lúsina? Kona í Garðabæ hringdl og sagði frá því aö þrjú barnaböm hennar hefðu þrisvar sinnum nælt sér í lús frá því að skólar byrjuðu i haust. Henni leikur forvitni á að vita hvem- ig eigi að hreinsa þennan ófögnuð. SVAR: Hjá borgarlæknisembættinu feng- ust þær upplýsingar að í lyfjabúðum mætti kaupa sérstakt lyf til að ráða niðurlögum lúsarinnar. Lyf þetta fæst án lyfseðils og á því eru allar, leiðbeiningar um notkun. Þá veita hjúkrunarfræðingar skóianna allar nauðsynlegar upplýsingar. Heimir Bjarnason aðstoðarborg- arlæknir sagði að unnið væri að því að ráða niðurlögum lúsarinnar. Hann sagöi að það væri árviss viðburður aö lús kæmi upp í skólum borgarinnar og á þessu hausti værí kannskí eitthvað meira um hana en venjulega. ALDRAÐIR þurfa að ferðast eins og aðrir. Sýnum þeim tillitssemi. ||U^JFEROAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.