Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1983, Blaðsíða 12
12
DV. FOSTUDAGUR 2. DESEMBER1983.
Útgátufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON.
Rilstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 8MU. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA33. SÍMI 27022.
Afgreiðsla,áskriftir, smáauglýsingar.skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022.
Sími ritstjómar: 86411.
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. P rentun:
Árvakur hf., Skeifunni 19.
Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr.
Helgarblað 25 kr.
Ný rás—frjáist útvarp
Ríkisútvarpið hefur fært út kvíarnar. Ný rás hefur
hafið göngu sína meö pompi og prakt. Enginn vafi er á
því, að allir þeir sem tök höfðu á, stilltu inn á hina nýju
rás í gærdag og hlustuðu með nokkurri eftirvæntingu á
dagskrána úr nýja útvarpshúsinu. Útvarpsstjóri „tók
fyrstu skóflustunguna” og áréttaði að hlutverk nýrrar
rásar yrði létt undirspil í daglegu amstri.
Með þessum áfanga er enn eitt skrefið stigið til fjöl-
breyttari fjölmiðlunar á öldum ljósvakans til þess að
mæta kröfum nútímaþjóðfélags og nýta sér tækni og nýj-
ungar á þessu sviði. Á undanförnum árum hafa orðið
margvíslegar breytingar til batnaðar á rekstri Ríkisút-
varpsins.
Skemmst er að minnast sérstakrar útvarpsstöðvar á
Akureyri, stereo útsendingar voru teknar upp fyrir
nokkrum árum, litvæðing sjónvarps, beinar sjónvarps-
myndir frá gervihnöttum og í raun og veru má sjá þess
merki í dagskrá hljóðvarps og sjónvarps, að gjörbylting
hefur átt sér stað í allri dagskrárgerð. I öllum meginat-
riðum er dagskrá í lifandi tengslum við þjóðlífið, hvort
heldur það eru skemmtiþættir, fréttir, fræðsluefni, viðtöl
eða morgunvökur. Segja má, aö vaxtarbroddur sé greini-
legur á öllum sviöum Ríkisútvarpsins, efnisvali og efnis-
gerð.
Þessu ber að fagna. Ríkisútvarpið er snar þáttur í lífi
hvers einasta Islendings, fjölskyldumeðlimur á heimil-
um, samferðamaður á ferðalögum, miðill við allra hæfi.
Vitaskuld er oft deilt um ágæti þess efnis, sem sent er
út, en enginn getur verið án þess, og áhrif þess eru mikil.
Ábyrgðin fer eftir því, og þá almennu einkunn má gefa út-
varpsmönnum, að þeir hafi verið hlutverki sínu vaxnir.
Án nokkurs vafa má rekja endurhæfingu Ríkisút-
varpsins til þeirrar umræðu, sem átt hefur sér stað um
svokallaöan frjálsan útvarpsrekstur. Það eru ekki mörg
ár síðan hverri tillögu um nýbreytni í dagskrárgerð var
tekið með neikvæðri íhaldssemi. Öryggið um einokunar-
aðstöðu leiddi til tregðu og stöðnunar og lögverndaður
einkaréttur Ríkisútvarpsins hefur lengst af verið því
fjöturumfót.
Þegar nýtt útvarpslagafrumvarp sá dagsins ljós og
sýnt var að alvara var á ferðum um afnám þessa einka-
réttar, vöknuðu forráðamenn Ríkisútvarpsins til lífsins.
Öttinn við samkeppnina rak þá í endurhæfingu.
Árangurinn er að koma í ljós, meðal annars með betri
dagskrá og nú síðast í nýrri rás, sem sniðin er að vilja
þjóðarinnar. Loksins hefur mönnum skilist, að Ríkisút-
varpið er ekki fyrir þá sem þar starfa, heldur þjóðina,
sem á útvarpið hlustar.
Þessi þróun breytir hins vegar ekki því, að afnema ber
einkarétt ríkisins af útvarpsrekstri. Fögnuður
almennings yfir hinni nýju rás sannar þá staðreynd, að
f jölbreytni og frelsi í fjölmiðlun er af hinu góða.
Því miður hefur frumvarp um ný útvarpslög og afnám
einkaréttar ríkisins ekki enn séð dagsins ljós. Núverandi
menntamálaráðherra hafði þó stór orð um að slíkt gerðist
á þessu þingi og það strax á liðnu hausti.
Einhver nátttröll á alþingi Islendinga munu þvælast
fyrir því máli. Einokunarsinnar og afturhaldsseggir
mega ekki verða til þess að stöðva framgang þess fram-
faramáls. Ný rás hjá Ríkisútvarpinu er góð út af fyrir sig.
En hún er aðeins áfangi á leiðinni til frjáls og fjölþætts
útvarpsreksturs. Nú verður að stíga skrefið til fulls.
ebs.
Mun nefndin iika i starfi sínu leitast við að koma á beinum tengslum við konur sjáifar 6 vinnustöðun-
Hvers vegna f ramkvæmdanefnd um launamál kvenna?
Vakning meðal kvenna
I fyrri grein var fjallaö um hvers
vegna framkvæmdanefnd um launa-
mál kvenna var sett á fót, — og nauö-
syn þess að víðtæk samstaöa náist
meðal kvenna um aö uppræta launa-
misréttikynjanna.
I þessari grein veröur fjallað um
framkvæmdanefndina, störf hennar
ogáform.
Aðdragandinn
Á ráðstefnu Sambands alþýöu-
flokkskvenna, sem haldin var 24.
sept. sl. var samþykkt tillaga sem
borin var fram af konum úr þeim
stjórnmálaflokkum og samtökum
sem fulltrúa eiga á Alþingi svo og
nokkrum konum úr verkalýöshreyf-
ingunni. — Tillagan var um aö leitað
yröi samstööu um skipan fram-
kvæmdanefndar meö þátttöku
kvenna í launþegahreyfingunni og
öörum áhugaaöilum um launajafn-
rétti kynjanna sem skipuleggi síöan ,
aðgeröir sem leiði til úrbóta og upp-
ræti launamisréttið.
Skipan fram- .
kvæmdanefndar
Strax í framhaldi þessarar l
ályktunar ákváöu þær konur sem aö |
tillögunni stóöu að ' óska eftir aö I
heildarsamtök launafólks, svo og l
kvennasamtök í landinu, ættu aðild |
aönefndinni.
Allir þessir aöilar sem leitaö var j
til urðu fúslega viö þeirri ósk og eiga
nú 19 konur sæti í nefndinni.
Auk fulltrúa allra stjómmála-
fiokka og samtaka sem fulltrúa eiga
á Alþingi eiga fulltrúar eftirtalinna I
aðila sæti í nefndinni: Alþýöusam-
band Islands (frá Iðju), Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag
háskólanema, Samband íslenskra
bankamanna, Starfsmannafélagiö
Sókn, Verkakvennafélagið Fram-
sókn, Verslunarmannafélag Reykja-
víkur, Verkakvennafélagiö Snót í
Vestmannaeyjum, Kvennafram-
boðiö í Reykjavík, Kvenréttindafé-
lag Islands, Bandalag kvenna, Kven-
félagasamband Islands og jafnréttis-
ráð.
Upplýsingar um
launamisrétti
Framkvæmdanefndin taldi strax í
— síðarigrein
Kjallarinn
Jóhanna Sigurdardóttir
upphafi aö mjög mikilvægt væri aö
safna saman á einn staö öllum þeim
upplýsingum sem tiltækar eru úr
kjararannsóknum og könnunum er
snerta launamisrétti kynjanna.
I þaö hefur veriö lögö mikii vinna
á undanfömum vikum og hafa tvær
konur veriö sérstaklega ráönar til
þess starfs fyrir framkvæmdanefnd-
ina.
Verður á næstu dögum ákveöiö
meö hvaöa hætti þessum upplýsing-
um verður best komið á framfæri viö
stéttarfélögin í landinu svo og kon-
urnar sjálfar á vinnustöðunum.
Samráð og samvinna
Framkvæmdanefndin mun í starfi
sínu leggja mikla áherslu á gott sam-
starf og samvinnu viö stéttarfélögin í
landinu, — konurnar sjálfar á vinnu-
stööunum svo og aöra þá hópa sem
sérstaklega vilja leggja því liö aö
uppræta launamisrétti kyn janna.
Hefur framkvæmdanefndin skrif-
að öllum stéttarfélögum í landinu
þar sem kynnt er stofnun fram-
kvæmdanefndarinnar svo og mark-
miö og áform og leitað eftir stuöningi
stéttarfélaganna við starf nefndar-
innar.
Hefur framkvæmdanefndin einnig
rætt meö hvaöa hætti nefndin gæti
best stutt við bakiö á konum í samn-
inganefndum og trúnaöarstööum
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Stefnt er að því fljótlega að boöa til
samráösfundar meö þessum konum
og leita eftir því meö hvaöa hætti þaö
gæti best gerst.
Mun nefndin líka í starfi sínu leit-
ast við að koma á beinum tengslum
við konumar sjálfar á vinnustööun-
um.
Framkvæmdanefndin stefnir aö
því aö boöa til funda um þessi mál. —
Viðfangsefni fundanna varðar launa-
mál kvenna, sérstaklega launamis-
rétti kynjanna og meö hvaöa hætti og
eftir hvaöa leiöum best veröi stuðlað
að fullu launajafnrétti kynjanna við
sömu störf í þjóöfélaginu. — Einnig
aö fá endurmetin heföbundin
kvennastörf í þjóöfélaginu sem flest
hver eru metin til lægstu launa.
Vakning
Ástæöa er til aö ætla að sú vakning
sé uppi meðal kvenna í þjóðfélaginu
sem knúiö gæti á um aö launamis-
rétti kynjanna veröi ekki látiö viö-
gangast lengur.
Meöal annars ber stofnun fram-
kvæmdanefndar um launamál
kvenna því glöggt vitni og sá fjöldi
samtaka og félaga sem aöild eiga aö
nefndinni, — aö konur séu staöráön-
ar í aö láta ekki fótum troöa þau
mannréttindi sem er undanbragða-
laust launajafnrétti kynjanna á
vinnumarkaðnum.
Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaður
„Ástæða er til að
ætla að sú vakning
sé uppi meðal
kvenna í þjóðfélag-
inu sem knúið gæti á
um að launamisrétti
kynjanna verði ekki
látið viðgangast
lengur.”