Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Blaðsíða 1
segir Þórir Oddsson vara
Rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi
hringdi maöur til lögreglunnar í
Reykjavík og tilkynnti að hann hefði
orðið konu að bana í húsinu Njáls-
götu 48 a. Lögreglan fór þegar á stað-
inn og fann konuna látna í rúmi i
íbúöinni sem er í hrörlegu bakhúsi.
Tveir menn voru í íbúöinni þegar
lögreglan kom á staðinn. Voru þeir
báðir ofurölvi og höfðu yfir
meiningarlausar yfirlýsingar. Voru
þeir báðir handteknir og fluttir á
lögreglustöðina. Var þar gerð tilraun
til að yfirheyra þá en hún bar engan
árangur vegna ölvunar þeirra. Var
ákveðið að láta þá sofa úr sér
vímuna í nótt og yfirheyra þá í dag.
Voru yfirheyrsiumar ekki hafnar í
morgun þegar blaðið fór i prentun og
getur því ýmislegt breyst frá þvi sem
þeir sögðu í ölvímunni i gær.
Þórir Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri sagði í viötali við DV í
morgun að allar aðstæður bentu til
þess að maöurinn hefði orðið konunni
að bana eins og hann hefði sagt í
fyrstu. Hvemig það hefði gerst væri
ekki hægt að segja um á þessu stigi.
Kmfning ætti eftir að leiða það i ljós
og ýmislegt gæti líka breyst við yfir-
heyrslur yfir mönnunum, sem
myndu hef jast nú fyrir hádegi.
Konan sem fannst látin var 39 ára
gömul, fráskilin og fjögra barna
móðir. Hefur hún að undanförnu
verið í sambýli viö annan þeirra
manna sem var í íbúðinni. Hafa þau
búið þar en konan hafði lögheimili
annars staðar. Vom þau ölvuð í gær-
dag og hafði þá lögreglan m.a. af-
skipti af þeim. Var kvartað undan
þeim úr biðstöð SVR við Hlemm og
sótti lögreglan þau þangaö og ók
þeim heim til sín. Hvað gerðist þar
eftir það er ekki vitað með vissu en
þó er talið nokkuð víst að aðeins
annar mannanna, sem nú eru í haldi,
haf i verið í íbúöinni þegar konan lést.
-klp-
Tjóniðmetið
áAkranesi
— sjá bls. 3
Treholtfúsað
segjafráöllu
— sjá erlendar
fréttir á bls. 9
Sölukostnaður
ferskfisksétur
uppgróðann
— sjá bls.4-5
Ysa, hrogn
oglifur
— sjábls. 67
Hvað eigum viö
margafrídagaí
vændumáárínu?\
— sjá bls. 16
KEPPNI U|H
BREFINI
EIMSKIP
—rikið vill selja sín 5%
Eimskipafélag Islands hf. og síðan aftur núverandi hluthöfum til
ónafngreindur einstaklingur keppa kaups. Atti þá að staðgreiöa ríkinu
nú um kaup á 5,3% hlutabréfaeign , bréfin. Tilboðiö sem barst í gær,
ríkisins í félaginu. Eftir nýlega út- óvænt að sögn fjármálaráöherra, er
gáfu jöfnunarhlutabréfa er þessi um aö kaupverð veröi 5.250.000
eign ríkisins að nafnverði rétt tæpar krónur meö 20% útborgun og að eftir-
þrjármilljónir,eða2.C57.760krónur. stöðvar greiöist á 10 árum með
Samkvæmt upplýsingum sem DV lánskjaravísitölu.
hefur var ætlunin að Eimskip leysti Þessir kostir em nú til
bréfin til sín á þessu verði og byði samanburðar. HERB
Vinna hefst aftur i Bæjarútgerð Reykjavíkur i fyrramálið og ætti þá að draga nokkuð
úr þvi atvinnuieysi sem verið hefur i Reykjavík að undanförnu. Þessi mynd var tekin
af togara BÚR, Hjörteifi, er hann kom inn í morgun með 135 tonn. Jón Baldvinsson
mun koma tH hafnar i fyrramálið.
DV-myndS