Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Síða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR1. FEBRUAR1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Líbanon:
Horfír til borgara-
styrjaldar ef sam-
komulag næst ekki í
_ _ _ Liðsflutningar stjórnarhers
™ fc-'j' —_ _ Líbanon að undanförnu í
■ SÆmlj%rSs JS nágrenni höfuðborgarinnar hafa
njÍBr B B^^B mU vakið beyg hjá drúsum, sem telja Btjjr
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa í!
Líbanon, hefur sakað stjórnarher
Líbanons um að draga liö að sér til að
hefja sókn gegn stjómarandstæðing-
um.
I Beirút var staðfest að töluveröir
liösflutningar hafi átt sér stað síðustu
daga í grennd við höfuðborgirnar, en
þar væri þó einvörðungu um að ræða
mannaskipti.
Hópur iðnrekenda í Líbanon hefur
hótað aö loka um 100 verksmiðjum
sínum í fimmtán daga og svipta þar
með um 14000 verkamenn atvinnu í
bili, ef ekki náist samningar um friðun
landsins. — Er þama um að ræöa
iðjuver í bænum Shweifat þar sem
drúsar búa og hafa þaðan yfirsýn yfir
bækistöð bandaríska friöargæsluliðs-
ins í Beirút. Hafa átökin oft beinst að
þessumstaö.
Fjölmiðlar í Beirút láta í dag í ljós
þungar áhyggjur af því að skefjalaus
borgarastyrjöld kunni að brjótast út ef
ekki takist samningar í yfirstandandi
lotu.
Embættismenn hafa látiö eftir sér
hafa að stjórnarherinn hygðist rjúfa
sambandiö milli drúsa í Shweifat og
shiite-múslima í suðurhluta Beirút.
Forsætisráöherrann hefur þó ítrekaö
borið á móti því að stjómin mundi etja
hernum fram og beita ofbeldi til að
bæla niður stjómarandstöðu.
-«■---------------------m
Hættan þykir fara dagvaxandi á því að
algert borgarastríð brjótist út í
Líbanon ef ekki náist þjóðarsátt í yfir-
standandi viðræðulotu.
Baader-Meinhof
bófar fyrír rétt
I öryggisfangeisinu Stammheim í
Stuttgart verður réttur settur í dag yfir
tveim heistu hryðjuverkamönnum V-
Þýskalands sem gmnaðir eru um hlut-
deild í morðunum 1977 á Siegfried
Buback ríkissaksóknara, Jiirgen
Ponto bankastjóra og Hanns-Martin
Schleyer leiötoga atvinnurekenda.
Þau Christian Klar (31 árs) og
Brigitte Mohnhaupt (34 ára) eru
samtals ákærð fyrir níu morö en þau
vom félagar í Rauðu herdeildinni, sem
varð tii upp úr Baader-Meinhof-hópn-
um. Grunar lögregluna að þau hafi
tekið forystu fyrir glæpahópnum þegar
upphaflegu foringjamir, Andreas
Baader, Ulríka Meinhof, Gudmn
Ensslen og Jan Carl Raspe, frömdu
sjálfsmorð í Stammheim-fangelsinu
1977.
Verkfall hjjá
Times-blaðinu
Lundúnablaðið Times hefur ekki
komið út síöan á fimmtudag, né heldur
kom systurblað þess, Sunday Times, út
um helgina, vegna deilu við prentara.
Samningaviöræður þykja stefna í átt
til lausnar og horfur á því að Times
komi út síöar í þessari viku.
Þetta er í fimmta sinn á tveim árum
sem útgáfa blaösins hefur stöðvast, en
að þessu sinni spratt deilan út af
stöðuveitingum. Tap útgáfunnar
vegna stöðvunar er metið til 1,5
miiljóna sterlingspunda og þykir úti,
um vonir stjórnarinnar til þess að
rekstur blaðsins yrði hallalaus þetta
árið eftir taprekstur margra undan-
farinnaára.
Þekkja morðingja
27 þorpsbúa
Öryggissveitir í Uganda telja sig nú er það fýrsta opinbera staðfestingin á
vita hverjir voru að verki í þorpi einu fréttum byggðum á heimildum
skammt frá Kampala um síöustu helgi kirkjunnar manna um að nær 30
þegar 27 manns voru stungnir til bana. manns hafi verið myrtir þegar hópur
Segir Uganda-útvarpið aö tveir fantaréöistáþorpiðMuduma.
menn séu til yfirheyrslu um málið og
Ríkisstjórnarfundur veröur í Bonn í dag, sá fyrsti eftir að Kohl kanslari
kom úr heimsókn sinni frá Israel og verður á fundinum f jallað um mál Kiessl-
ings hershöfðingja og Wörner varnarmálaráðherra.
Flest merki þykja benda til þess aö Kohl muni ekki láta Manfred Wörner
vikja úr embætti varnarmálaráðherra. (Wörner sést hér á myndinni fyrir
ofan). Hefur Kohl undanfarna daga átt viðræður við einstaka ráðherra
stjórnarinnar og leiðtoga stjórnarflokkanna.
Wörner þykir hafa spjarað sig vel í sínu embætti aö undanskildu máli
Kiesslings sem hann rak fyrir meinta kynvillu. '
Fiskveiðistefna
EBE tekur nú íoks
að fullu gildi
Sjávarútvegsráðherrar EBE-land-
anna uröu í gær ásáttir um skiptingu
aflakvótanna fyrir árið 1984 og af-
greiddu að þessu sinni á mettíma það
sem hefur veriö eitt langdregnari
deilumála aðildarrikjanna á undan-
fömumárum.
Þykri þessi snögga afgreiösla benda
til þess að stefna EBE í fiskveiöumál-
um gefi góða raun. Viðræðumar stóðu
ekki nema einn dag. — Samkomulag
um veiðamar 1983 náöist ekki fyrr en í
desember og um veiðarnar 1982 urðu
menn ekki ásáttir fyrr en í janúar 1983.
Nýju aflakvótarnir eru mjög svip-
aðir kvótunum 1983, en aðailega hafði
menn greint á um skiptingu þorsk-,
sUdar- og markrílafla.
EBE-ráðherrar undirrituöu sam-
eiginlega fiskveiðistefnu fyrir aðildar-
ríkin í janúar í fyrra, eftir sjö ára viö-
ræður, en hún tók ekki gUdi því að sam-
komulag um aflakvóta náðist ekki fyrr
en 11 mánuðum síðar.
Reagan í sam-
keppni við Hitler
Vaxmyndin af Díönu prinsessu
er ekki lengur sú sem dregur aö sér
flesta áhorfendur í vaxmyndasafni
Madame Tussaud í London eins og
hún geröi allt síðasta ár. Þaö er
poppstjaman David Bowie sem
tekiö hef ur hennar sess.
Bowie er sýndur í gulrauðum
fatnaði og meö ljósabliki miklu auk
undirspils og var valinn af gestum,
sem vinsælasta fíguran í safninu. I
ööru sæti var Mahatma Gandhi en
Díana prinsessa í þriðja.
I könnun um hötuðustu myndirn-
ar féll Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra úr öðm sæti niður I það
fjórða. Hennar fyrri stað tók Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseti, sem
keppir um fyrsta sætiö við Adolf
Hitler. Muammar Gaddafi, leiðtogi
Líbýu, er í þriðja sæti.