Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1984, Page 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR1. FEBRtJAR 1984.
Spurningin
Hvernig er að búa á
Skógum?
Þessar skógadislr svara:
Kristín Halldórsdóttir: Agætt, en það
er skemmtilegra í Reykjavík.
Gyða Erlendsdóttir: Mér finnst gaman
að búa hér á Skógum. Bílamir eru
ekkert að ergja mann.
Kristbjörg Ingimundardóttir: Þaö er
bara gott. Félagslíf mætti þó vera
meira.
Guðiaug Sigurðardóttir: Mér finnstj
það alveg ágætt. Þó mætti vera meira
félagslíf.
Sæfinna Asbjömsdóttir: Það er bara
gott. Hér er fallegt og skemmtilegt.
Elísabet Sverrisdóttir: Æðislegt,
rólegt og gott, betra en í Reykjavík.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Dave Allen góður
— og lesendadálkurinn líka
4747-9568 hringdl:
Mig langar til að lýsa yfir hvað ég
er hissa þegar fólk er að setja út á
Dave Allen þættina. Því mér finnast
þessir þættir vera eitt besta sjón-
varpsefnið. Það eru ekki allir sem
,geta setið fyrir framan fólk og látið
allt vera sniðugt sem þeir segja. Nú
ef fólk hefur ekki kímnigáfu til að
taka þessu frá honum, er til eitt gott
ráö, hreinlega aö slökkva á sjón-
varpinu þegar þátturinn er.
Mig langar til að þakka sjón-
varpinu fyrir að endursýna þættina
og umsjónarmanni lesendadálksins
langar mig líka að þakka fyrir góðan
dálk og skemmtilegan.
FRIDAGAR A ARINU
Grétar H. Óskarsson
flugvélaverkfræðingur skrifar:
Hið fræga ár Orwells 1984 er nú
gengið í garð. Hugsýn Orwells á ekki
alveg við okkur Islendinga í dag, en
nógu slæmt er ástandiö samt. Efna-
hagsmálin í kalda koli eins og áður,
sbr. áramótaboðskap allra forsætis-
ráðherra síöustu áratuga, og þorsk-
urinn búinn í sjónum. Bændurnir
látnir framleiða sína „busa” á
kostnað skattborgaranna og gróðurs
öræfanna og umframframleiöslan
gefin fátækum útlendingum eins og
Svíum, Norðmönnum og Bandaríkja-
mönnum.
En það bítur ekkert á landann.
Samtals frí: 150 dagar
Það fer að nálgast það að maöur|
eigi frí annan hvem dag ársins.
En spurningin er hver borgar allt |
Þegar verst árar er bara farið í frí.
Eg leit yfir almanakið sem ég fékk í
jólagjöf og lagði saman frídaga
næstu tveggja ára mér til hugar-
hægöar í öllum raunum lækkandi
kaupmáttar og kjaraskerðinga.
I stuttu máli taldist mér til að ég
myndi eiga frí í 150 daga á því herr-
ans ári 1984 og 152 daga árið 1985.
Ekki er von til að Albert fjármála-
ráðherra vilji greiöa mér hærra
kaup þegar ég er í fríi 150 daga af 366
(það er hlaupár í ár svo aö Albert
græðir af mér einn dag, en ég hefni
mín á næsta ári því þá fæ ég 152 daga
frí og árið er ekki nema 365 dagar).
1985
nýársdagur
skírdagur
föstudagurinn langi
annarípáskum
sumardagurinn fyrsti
l.maí
uppstigningardagur
annaríhvítasunnu
17. júní
frídagur verslunarmanna
aöfangadagur
jóladagur
annarí jólum
gamlársdagur
52 helgar
30 daga sumarfrí
4 daga hálsbólga
152 dagar
þetta frí? Það skyldi þó aldrei vera
aö maður borgaði þaö sjálfur með
lægrilaunum?
Frídagarárin: 1984
nýársdagur
skírdagur
föstudagurinn langi
annar í páskum
l.maí
uppstigningardagur
annar i hvítasunnu
frídagur verslunarmanna
aöfangadagur
jóladagur
annarí jólum
gamlársdagur
52 helgar
30 daga sumarfrí
4 daga kvefpest
Unglingarnir leika sór áhyggjulausir á sólarströndinni. Margir íslend-
ingar sækja hvild og afslöppun til sólarlanda i frium sínum. Brófritara
telst tilað við megum eiga von á 150 fridögum á árinu.
UNGBÖRNÁ
Peyinn á myndinni hefur engar áhyggjur af skólanum enda ekki kominn á
skólaaldur. En hver veit nema krakkar á hans aldri þurfi að fara i skóla
þegar fram líða stundir. Þangað til ætla þeir að slappa af og njóta þess að
vera litlir.
BB
Leikritið Lína langsokkur hefur notið geysilegra vinsælda i Þjóðieik-
húsinu. Akureyringur spyr hvort þeir megi eiga von á að sjá leikritið
sýnt á Akureyriþviþar er mikill áhugiá að fá Linu iheimsókn.
SKÓLABEKK?
Sigfús Aðalstelnsson skrifar:
Markús öm Antonsson segir það
vera mikið hagsmunamál foreldra að
böm þeirra gangi í 5 ára bekk og að
það fyrirkomulag komist á í öllum
skólum.
I fyrsta lagi tel ég að þetta ætti aö
vera hagsmunamál bamanna fyrst og
fremst, en það virðist hafa gleymst.
I öðm lagi er þetta fáránleg afstaða
sem að mínu mati er aðeins leið til að
fylla tómar kennslustofur í vissum
hverfum.
I þriðja lagi væri gaman að vita
hvort þetta sé leið til að koma í veg
fyrir atvinnuleysi í kennarastétt.
Á Islandi hafa verið byggðir leik-
skólar og dagheimili sem era gerð
fyrir börn yngri en 6 ára. Það væri
skynsamleg ráðstöfun aö auka fjárlög
til slíkra staða svo forréttindahópar
kæmu ekki aðeins sínum bömum þar
aö heldur allir uppalendur.
Á leikskólum og dagheimilum er öll
fræðsla og umönnum í höndum
uppeldismenntaös fagfólks. Mér er
spum hvort stjómvöld telji grunnskól-
ann betri kost fyrir börn heldur en dag-
heimili og leikskóla? Gaman væri að f á
afstöðu þeirra sem hlut eiga að máli.
Verður það kannski raunin í framtíð-
inni aö við setjumst á skólabekk áöur
en við förum aö halda höfði eöa geta
setið rétt? Spyr sá sem ekki veit.
LÍNA LANGSOKK-
UR ÚT Á LAND?
Jóna Frímannsdóttir hringdi:
Mig langar að vita hvort Þjóðleik-
húsiö geti komið með Línu langsokk
norður til Akureyrar. Það er mikill
áhugi fýrir því. Þaö væri hægt að fá
áhorfendur á þó nokkrar sýningar.
Það hefur oft verið f arið með leiksýn-
ingar út á land en ég veit ekki hvað
Lína langsokkur er umfangsmikiö
verk.
Sigmundur Orn Arngrimsson,
skipulagsstjóri Þjóðleikhússins, og
leikstjóri Línu langsokks, sagði að
mikill áhugi væri fyrir því innan
Þjóðleikhússins að fara með leikritið
í ferö um iandiö. En áður en það yrði
gert þyrfti að kanna hvaöa staðir
væra heppilegir því þetta væri stór
og umfangsmikil sýning. Einhverjar
minniháttar breytingar þyrfti að
gera á verkinu þar sem uppsetning
Þjóöleikhússins hentaði ekki til flutn-
ings á minni stöðum. Akureyri væri
einn þeirra staða sem væri verið að
athuga og kæmi hann vel til greina.
Annars væri málið í athugun en ef af
yrði væri hugsanlegt að fara með
sýninguna af stað í byr jun sumars.