Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Side 29
DV-.<kAUGA«BAGUft4rFEBRtJAfl M84 r
29
Vel klæddir vélsleðamenn á ferð í óbyggðum. Hér höfðu þeir gert stuttan stans á leið sinni og málin
rædd. DV-myndir Þorsteinn Pétursson.
Hópur vélsleðamanna í Bleiksmýrardal, alls átján manns.
„Allir geta tekiö þátt í þessu nám-
skeiði,” sagði Þorsteinn, en það veröur
haldið í skála Ferðafélags Islands.
Geta gist þar um tvö hundruö manns.
Hugmyndin er að stofnuð verði lands-
samtök vélsleðaeigenda á þessu móti.
A dagskrá verður sviöaveisla, kvöld-
vaka, kynntar verða nýjungar í sleöum
og útbúnaði, þar meðtalið talstöðvar
og Loran C. Eftir kvöldvökuna munu
allir þátttakendur ganga út fyrir og
kveikja á útikertum, sem við munum
kalla friðarljós, á miðjum Sprengi-
sandi. Það eiga sem sé allir mótsgestir
að hafa með sér útikerti,” sagði Þor-
steinn.
„Þetta verður fyrst og fremst mót,
ekki keppni, að minnsta kosti ekki
formleg. Aðaltilgangurinn er að menn
ræði málin. Það er mjög stór hópur
manna sem á vélsleða og ferðast mjög
mikið á þeim. Þess vegna teljum við
fulla þörf á því að brýnt verði fyrir
mönnum að þeir ferðist meö fullkom-
inni gætni og fyrirhyggju. Að ekki sé
minnst á virðingu við landið,” sagði
Þorsteinn ennfremur. Við höfum fulla
ástæðu til aö halda að menn leggi út í
óbyggðir illa útbúnir og það er nánast
furðulegt að ekki skuli oftar hafa hlot-
istslysaf.
Hver einasti vélsleðaeigandi ætti að
vera það vel útbúinn aö hann gæti
bjargað sér, jafnvel þótt hann þyrfti að
búa um sig í snjóskafli. Það hafa verið
sagðar ljótar sögur af áfengisneyslu
vélsleðamanna og er það mjög alvar-
legt ef satt er. Vélsleðar eru skemmti-
leg farartæki en jafnframt geta þau
verið hættuleg ef ekki er farið að meö
gát. Menn sem aka vélsleðum þurfa að
hafa réttindi til að aka léttu bifhjóli.
Vélsleðar geta þó verið mun kröftugri
en bifhjólin,” sagði Þorsteinn.
— Hafið þið stofnaö einhverja móts-
stjóm fyrir þetta mót?
,,Já, við erum sex í stjóm, þar af
fimm frá Akureyri og einn frá Reykja-
vík. Við komum fyrst saman í október
þannig aö undirbúningstíminn hefur
verið mjög góöur. Viðsendumauglýs-
ingar um allt land í desember og þátt-
takendur verða aö vera búnir að til-
kynna sig fyrir 20. mars. Við höfum nú
þegar fengið mjög góðar viðtökur
hvaðanæva af landinu. Virðist vera
sem menn hafi mikinn áhuga fyrir
mótinu.”
— Hvernig veröur ferðinni á móts-
stað háttaö?
Ætlast er til að menn komi í hópum
á áfangastað og gefa þeir upp brott-
fararstað og allar upplýsingar áöur en
farið er. Einnig verða þeir að tilkynna
hvaöa leið þeir muni koma og svo
verður einnig um heimleiðina. Þannig
er hægt að fylgjast með öllum. Það er
alls ekki ætlast til að menn komi einir
sér.”
— Er eitthvað alveg sérstakt sem
þið munið taka fyrir á mótinu?
„Ja, það er margt sem verður rætt
en það hefur oft verið sagt aö vélsleða-
menn gangi illa um skála þar sem þeir
koma, en það er hlutur sem má laga og
við munum ræða um. Feröamenn
þurfa líka alltaf að muna að bleytan er
þeirra aðalóvinur,” sagði Þorsteinn
Pétursson. Þess má geta að I móts-
stjóminni eru fulltrúar frá Flugbjörg-
unarsveitinni á Akureyri og Hjálpar-
sveit skáta. Þeir munu sjálfsagt geta
frætt vélsleðaáhugamenn um margt
sem tilheyrir fjallaferðum og ferðalög-
um um landið að vetri til.
.X':
Skíðafólk
Við sjáum um allan
akstur í skíðalönd
KR SKÁLAFELLI, ÍR HAMRAGILI,
VÍKINGS SLEGGJUBEINSSKARÐI.
Sérstakar ráðstafanir eru gerðar til að veita góða
þjónustu með ferðum sem víðast um Stór-
Reykjavíkursvæðið.
Við gerum okkar besta.
ÚLFAR JACOBSEN
Feröaskrifstofa
símar 1349913491
• •
SKÍÐABÚÐIN -
ÍÐALEIGAN
UMFERÐAR-
TÚKUM NOTAÐAN SKÍÐABÚNAÐ UPP í NÝJAN
SKÍÐABÚÐIN - SKÍÐALEIGAN
VIÐ UMFERÐARMIÐSTÖÐINA
Sími 13072
Ert þú einn af þeim sem veist ekki hvort þú vilt svigskíði eða víðavangsskíði? Við bjóðum
þér að leigja fyrst. og leigan gengur upp i að hálfu ef þú kaupir. Sá á kvölina scm á vöiina,
nema hjá okkur.
4
erbacher, Vestur-þýsk toppskíði með nýjung í stálköntum. Þú notar innri
og ytrl kantana ekki eins. þess vegna eru ytri og innri kantar Erbacher skiðanna ekki
slipaðir eins. Verð kr. 2.500 - 6.680.
KUUSISTO . Finnsk gönguskíói með kemiskum gripbotni. Ekkert vax, ekkert klístur,
engar rrfflur. Verð kr. 1.750 - 2.340.
Gönguskíðapakkinn, skiði, stafir.bindingar, skór. Fyrir börn kr. 3.160. Fyrir fullorðna kr.
3.900.
A
Falleg austurrisk barna og unglingaskiði á
ótrúlegu veröi. Verð kr. 1.280 - 2.120.
Barnaskíðapakkinn, skiði, stafir, bindingar og skár, frá kr. 3.830.
Kuusisto viðavangsskíði með kemiska gripbotninum. Verð kr. 2.660.
A FERÐ OG FLUGIHER ÞAR 06 ALLSSTAÐAR
TKYGGING HPass?"