Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Side 2
2
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
Kvótaf undurinn í Sigtúni:
„Til andsk....
með kvóta-
kerfid”
— hiti í mörgum f undarmanna
„Er einhver hér inni úr LIU,
samtökunum okkar?”
Það mátti heyra saumnál detta.
„Nei, ekki þaö? Við því var svosem
ekki að búast. Þeim kemur þetta
ekkert við!”
Þaö brutust út fagnaðarlæti og
dynjandi lófaklapp. „Nei, við því var
ekki að búast,” heyrðist víðs vegar um
salinn.
Það var einn ræðumanna, Sigurður
Haraldsson, á fundi hóps hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi, sem haldinn var í
Sigtúni í gær, er þetta sagði í fundar-
stóli.
Fund þennan sóttu liðlega tvö
hundruð manns. Fundurinn var daufur
framan af, en sótti í sig veörið. Hátt í
30 manns stigu í pontu og í lokin var
borin upp ályktun varöandi gagnrýni á
kvótakerfiö svokaliaöa og hún sam-
þykkt einróma. Alyktunin í heild
birtist hér annars staðar á síðunni.
Það var hiti í ýmsum sem kvöddu sér
hljóðs á þessum fundi. Það kom fram
mikil gagnrýni á fiskifræðingana og
einn fundarmanna sagði:
„Það verður að minnka tiltrúna á
þessum mönnum, mönnunum, sem
öllu ráða og búa til öll vandræðin. Þeir
hafa engar forsendur. Það er mál að
linni.”
Annarsagöi:
„Almenningur í þessu landi lifir á
fiskveiðum en ekki Tommahamborg-
urum og Prins Póló. Til andskotans
með kvótakerfið.” Og fundarmenn
fögnuðu óspart.
Kristján Ragnarsson mætti ekki á
fundinn, eins og kunnugt er, og sætti
hann og félagar hans í stjórninni miklu
ámæli. Einn ræöumanna likti Kristjáni
viö páfann í Róm og sagöi hann eins og
smákrakka þegar hann væri með yfir-
lýsingar í blöðum þess efnis að honum
heföi ekki verið boðiö á fundinn. Var
yfirhöfuð einhverjum boðiö? spuröi
hann svo í lokin.
Almennt lá fundarmönnum þungt
orð til Kristjáns og annarra ráöa-
manna LIU og hvöttu Halldór As-
grímsson til aö velja sér aðra ráðgjafa.
,,Ut með kvótann. Við erum tilbúnir að
vinna að undirbúningi nýs kerfis,
endurgjaldslaust,” sagði einn.
Talsverö frammíköll voru þegar
ákveönir menn stigu í pontu. Til dæmis
kallaði einhver fram i hjá ráöherra er
hann minntist á að karfinn væri á
þrotum. „Þaö er lygi, lygi” og
einhver jir tóku undir það.
Mörgum þótti ráöherra óþarflega
ákveðinn í máli sínu og einn ræðu-
manna sagði: „Þaö er ekki endalaust
hægt að finna niggara til aö éta þetta
gúanódrasl. Þaö er vitlaust að láta
menn vera að draga þetta úrsjó.”
Nokkrir tóku þó ekki eins djúpt í
árinni. Einum fannst fljótaskrift á
kvótakerfinu og annar var bara
ánægður meö kerfið, nema hann baö
ráöherra að fara nú að taka ákvörðun
um hvort auka ætti viö kvótann.
-KÞ.
„Ég vil láta
reynaá
kvótakerfið
í eitt ár”
— sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra
,,Eg er þeirrar skoöunar aö við
látum reyna á þetta kvótakerfi í eitt ár
með þeim breytingum sem þörf er á,”
sagði Halldór Asgrímsson sjávarút-
vegsráðherra, er hann sté í pontu í
Sigtúni í gær.
„Það er auðvelt að vera á móti
kvótakerfinu, en jafnerfitt virðist vera
aö koma með eitthvaö í staðinn,” sagði
Halldór ennfremur. „Menn hafa hér
hver á eftir öðrum rifið niður þetta
kerfi, en ég hef ekki heyrt neinar úr-
bætur.
Veiðin á síðasta ári var mjög lök og
fiskurinn léttari en nokkru sinni fyrr.
Astandið þá var vægast sagt ekki
bjart. Nú virðast hins vegar fiski-
stofnarnir vera að taka við sér. En við
ætlum að búa í þessu landi lengur en
eitt ár, því verðum við að fara skyn-
samlega í hlutina.
Síldin og loðnan voru kláruð á einu
bretti. Og nú er það ekki bara þorskur-
inn sem er í hættu heldur karfinn líka.
Auövitaö hafa orðið mistök og við
erum að reyna aö laga það. Mér finnst
ekki sanngjamt, eins og hér hefur
veriö gert, að kalla forvígismenn fisk-
samtakanna illum nöfnum. Auðvit-
aö eru menn ekki sammála í þessu
frekar en öðru og gagnrýni er til góös,
ef hún er sanngjöm. Þessir menn
vinna eins og þeir geta.
Heföi verið betra að gefa upp
eitthvert ákveðið aflamagn og menn
síðan slegist um að ná inn leyfilegum
afla? Slík lögmál frumskógarins eru
ekki vænn kostur aö mínu viti.
Sannleikurinn er sá að viö erum með
alltof lítinn fisk miöaö viö flotann.
Aðalatriðið er hvernig við ætlum aö
byggja upp fiskveiðarnar í fram-
tíðinni. Mín skoðun er sú að þaö er ekki
komin sú reynsla á kvótakerfið aö
hægt sé aö fordæma þaö, eins og hér
hefurveriðgert,” sagði Halldór. -KÞ.
Liðlega tvö hundruð manns sóttu fundinn um kvótakerfið i SigtúnN gær. Maðurinn fremst á myndinni,
sem snýr baki að myndavéiinni, er Jón Magnússon útgerðarmaður, einn skipuleggjenda fundarins. Þá
má sjá Steingrim Sigfússon alþingismann fjær, þar sem hann horfir yfir öxl sér. Þó nokkrir þingmenn
mættu á fundinn, þótt ekkiþættu þeir nógu fjölmennir að áliti fundarmanna.
„Fundurinn varar stjórn-
völd við núverandi stefnu”
— ályktun fundarins
I lok fundarins var ályktun þessi
borin undir atkvæði fundarmanna og
einróma samþykkt:
„Almennur fundur sjómanna, út-
gerðarmanna og fiskverkenda hald-
inn í Sigtúni sunnudaginn 18. mars
1984 telur að sú leið sem valin var til
stjórnunar fiskveiöa í byrjun ársins,
skipting afla á veiðiskip, sé með öllu
óhæf þar sem hún leiðir m.a. til órétt-
látrar skéröingar á þeirri athöfn
fiskimannsins sem leitt hefur sjávar-
útveginn til aö vera meginstoð
þjóöarbúskaparins. Einnig skal bent
á hvern veg þessi stjórnun leikur at-
vinnuöryggi fólks einstakra
.byggðarlaga.
Fundurinn gengur ekki framhjá
þeirri staöreynd aö nýta verður fiski-
stofna meö fullri varðúð, því veröi að
gæta, að friöun hrygningarfiska
komi að sem mestu gagni, þá veröi
og gætt vemdunar ungfisks.
Viö takmörkun á sókn í fiskistofna
ber að endurskoöa fiskveiöistefnuna
ársf jórðungslega með tilliti til fram-
vinduveiöa.
Fundurinn telur að þeim
stjómunaraöferöum, tímabundnar
veiöistöðvanir, sem viðhaföar hafa
verið á liönum ámm hafi ekki veriö
beitt sem skyldi, því veröi þær aö-
ferðir endurskoðaöar, þar sem þær
myndu sníöa frá höfuðgalla kvóta-
kerfisins, en leiða til þess árangurs,
sem k vótakerf inu er ætlað að ná.
Fundurinn varar stjórnvöld alvar-
lega við núverandi stefnu viö stjórn-
un fiskveiða, sem leiöa mun til upp-
g jafar athafna í fiskveiöum og ófam-
aðar sjávarútvegsins. Telur hann
því að endurskoöa beri nú þegar gild-
andireglur.”
Haiidór Ásgrimsson sjávarútvegsráðherra i hópi fundarmanna.
D V-m yndir E. Ó.
Skora á Kristján að
„Grundvöll-
ur kvótans
er
brostinn”
— sagði Skúli
Alexandersson
alþingismaður
„Gmndvöllur kvótans er þegar
brostinn,” sagði Skúli Alexandersson
alþingismaður.
,4íerfi á borö viö þetta, þar sem
ákveðið aflamagn er á hvem bát, býð-
ur þeirri hættu heim að menn reyni
meir en áður að laumast framhjá vigt.
Það hljóta að vera til aðrar leiðir. Afla-
skeröingin á Vestf jörðum er þegar orð-
in fimmtíu prósent. Ranglætið á þenn-
an kvóta er hróplegt,” klykkti Skúli út
með.
„Ánægður
með
koma á f undi með
útgerðarmönnum
— innan hálfs mánaðar
„Eg vil skora á Kristján Ragnars-
son, formann LIU, að innan hálfs
mánaðar haldi hann fund með út-
gerðarmönnum,”
Þetta var tillaga eða áskorun, sem
Björgvin Jónsson útgerðarmaður bar
fram á fundinum í Sigtúni í gær.
Hann reifaði kvótakerfiö og bað
menn að stilia orðum sínum í hóf í
garð Kristjáns og annarra stjómar-
manna LIU, en mikil reiði var í þeirra
garð meðal fundarmanna vegna þess
að þeir létu ekki sjá sig.
„Þótt það kvótakerfi sem nú er við
lýði megi gagnrýna á ýmsa lund er ég
þó fylgismaður réttláts kvóta,” lauk
Björgvin orðum sínum.
-KÞ
fundinn”
„Við vorum mjög ánægöir meö
fundinn,” sagði Jón Magnússon, einn
skipuleggjenda hans, í samtali við DV
eftir á. „Hann var miklu fjölsóttari en
viö áttum von, þar sem margir komust
ekki vegna veðurs.”
-KÞ