Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Blaðsíða 44
44
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Jane Fonda á þeim tima sem hún barðist hart gegn þátttöku Bandarikjanna i Vietnamstriðinu og var i
hlutverki róttækrar, reiðrar ungrar konu.
Það er af sem áður var
Jane Fonda i hlutverki „likamsræktarráðunautsins" sem er orðinn
„milljón dala hisness ".
Leikkonan og „andófskonan” Jane
Fonda, 46 ára, hefur fengið orö í eyra
aö undanförnu. Asaka hana margir
um hræsni eftir aö hún tók aö gera
líkamsrækt aö rokna viðskiptum og
er nú aö hefja sölu á æfingagöllum í
stórverslunum vítt og breitt um
Bandaríkin. Hvaö er oröið af þeirri
herskáu Jane sem æpti á Banda-
ríkjastjóm á dögum Víetnam-
stríösins? spyrja menn. Hvað er
orðið af hinni reiðu ungu konu sem
þóttist róttækust allra? segir fólk.
Pegar Jane ákvaö aö hefja fram-
leiðslu á æfingagöllum í massavís og
dreifa þeim til fyrirtækja vítt og
breitt fannst almenningi keyra um
þverbak. Símhringingar dundu á
henni og fólk stóö í hópum meö
mótmælaspjöld fyrir utan þær stór-
verslanir þar sem Jane var aö kynna
vörusína.
Þegar Jane kom til Boston og hélt
kynningu á vörunni í einni stór-
versluninni stóðu hópur fyrrverandi
hermanna úr Víetnamstríðinu meö
mótmælaspjöld sem á stóö meöal
annars: „Jane svikari Fonda. Viö
þolum þig ekki!” Jane ku hafa snúiö
sér aö hópnum sem síöan líkti
framkomu hennar viö framkomu
Nixons foröum og sagði: „Ykkar
framkoma er ekki táknræn fyrir
vilja almennings í landinu.” En það
sama sagöi Nixon við Jane Fonda og
fleiri sem mótmæltu Víetnam-
stríöinu á sínum tíma.
Já, sagan endurtekursig.
„Ertu ófrisk
Díönu.
Haraldur krónprins tekur á móti
Díana í fítun
„Ert þú ófrísk? Þaö er ekki að sjá —
ekki enn þá,” sagði Haraldur krón-
prins brosandi þegar hann tók á móti
Díönu prinsessu þegar hún heimsótti
Noreg fvrir skömmu. Díana brosti á
móti og tjáði norska krónprinsinum aö
hún vænti sín í september.
Kvensjúkdómalæknir Díönu hefur
fyrirskipaö aö hún fari í fitun en prins-
essan, sem er 1,78 metrar á hæö, vegur
60 kíló. Læknir hennar heldur því
fram að meðgangan veröi auöveldari
ef hún fitni um 7 kíló. Þannig aö mat-
seöill Díönu nú samanstendur af fugla-
kjöti, hrísgrjónum, fiski, með fitandi
rjómasóSum og eins miklu súkkulaöi
og hún getur í sig látiö hvem dag.
Díana prinsessa er ekki mikið fyrir
leikfimi og sleppti sliku alveg þegar
hún gekk meö frumburð sinn. Læknir
hennar hefur hins vegar ráölagt henni
aö fara í göngutúra reglulega meðan á
meögöngunni stendur.
Meðfylgjandi myndir eru teknar viö
heimsókn Díönu til Osló. Sést hún í
Þessar myndir voru teknar af Diönu
þegar hún gekk með Vilhjálm.
fylgd með Haraldi krónprinsi og Sonju
eiginkonu hans.
Litlu myndirnar eru af Diönu þegar
hún gekk með Vilhjálm prins.
Ásamt Hara/di og Sonju.
Leikurhún
Leigh?
Fyrirhugað er að gera kvikmynd um
ævi leikkonunnar Vivian Leigh sem
heimsfræg varö fyrir leik sinn í „A
hverfanda hveli”. Vivian Leigh dó áriö
1967.
Leikkonan Jane Seymour er talin
líkleg í hlutverk Vivian Leigh en
Seymour segist ekki taka hlutverkiö aö
sér nema allir séu sáttir viö hana í því,
þar á meðal Sir Lawrence Olivier sem
kvæntur var Leigh.
Jane Seymour.