Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Blaðsíða 3
DV. MANUDAGUR19. MARS1984.
3
Bfldudalur:
Muggshus eyði-
lagðist í eldi
Frá Jóni Kr. Olafssyni, fréttaritara
DV á Bíldudal:
Umbúöageymsla fiskvinnslunnar á
Bíldudal brann til grunna aðfaranótt
laugardags. Eldsupptök eru ókunn.
Mikið lán var að logn skyldi vera er
eldurinn kom upp því nærri húsinu
standa þrír stórir olíutankar og hefði
getað farið mjög illa hefði eldurinn
komist í þá því í seUingarfjarlægð frá
olíutönkunum eru mörg hús.
Það hús sem hér um ræðir er svo-
kallað Muggshús sem nefnt er eftir
Guðmundi Thorsteinssyni listmálara.
Húsiö var reist fyrir aldamót af Pétri
Thorsteinssyni útgeröarmanni.
Eldsins varð vart um klukkan eitt
aöfaranótt laugardags og komu heima-
menn þegar á vettvang auk þess sem
slökkviliðinu á Patreksfirði var gert
viðvart. Ekki tókst að bjarga Muggs-
húsi en olíutankana og nærliggjandi
hús tókst að verja og má þakka það
veðrinu.
-GAJ.
Húsið og Hrafninn
f lýgur í New York
Frá Erling Aspelund, fréttamanni hátíöinni eru sýndar tíu myndir,
DVíBandarikjunum: tvær frá hverju Norðurlandanna og
Tvær íslenskar kvikmyndir, Húsiö fara sýningar fram í listahverfinu
og Hrafninn flýgur, verða sýndar í Soho á Manhattan. American
New York á næstunni. Eru þær á Scandinavian Foundation hyggst
dagskrá hátíðar American-Scandi- kynna Bandaríkjamönnum nor-
navian Foundation sem hófst síðast- rænar kvikmyndir á tveggja ára
liðinn föstudag og lýkur 14. apríl. A fresti í framtíðinni. -GAJ.
Fyrir námsfólk jafnt og aðra sem
við vinnu sína sitja er mikilvæg
undirstaða árangurs að sitja
rétt og þægilega. Stóll frá
Stáliðjunni er því góð gjöf
handa fermingarbarninu,
* góður stuðningur áður
en lengra er haldið
STALIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGi, SÍMI 43211
□
F
A Tt
EGILL
/
VILHJÁLMSSON HF.
1929
1984
UNO ER
FALLEGUR,
FISLÉTTUR,
FÍLSTERKUR,
FRAMTÍÐARBÍLL
>
Smiðjuveg/ 4, Kópavogi. Simar 77200 77202
FIAT TEKUR FORYSTUNA
Á árunum 1965 til 1975 var FIAT í forystu í framleiöslu á litlum
bílum til almenningsnota. Nú er FIAT aftur kominn
íforystusœtiö meö framleiöslu FIAT UNO, Óhemjufé, tímaog
fyrirhöfn var eytt í undirbúning og hönnun áöur en
framleiösla hófst á þessum frábœra bíl'. FIAT verksmiöjurnar
lögöu 700 milljónir dollara í þetta verkefni og hafa
augljóslega variö því fé skynsamlega því útkoman, sjálfur
UNO bíllinn, er einstaklega vel hannaöur og er af
sérfrœöingum talinn vera e.t.v. besti smábíll sem
nokkru sinni hefur veriö smíöaöur (' 'possibly the best small car
ever made").