Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1984, Blaðsíða 6
6
DV. MÁNUDAGUR19. MARS1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
■ ■
Þessi neytandi hefur liklega virt boðorðin átta að vettugi. Hann keypti fyrst og hugsaði svo. Við látum ósagt hvernig fór fyrir honum þegar kom að því
að borga.
3. Peningarnir þínir kost-
uðu tíma og fyrirhöfn —
hugaðu að þvl hvað verður
um þá.
Haltu heimilisbókhald.
Gerðu fjárhagsáætlun.
4« Blekktu þig ekki —
það er nóg að aðrir reyni
það.
Að kaupa strax og borga seinna — það
er þægilegt — en það þarf að borga
seinna og oftast dálítiö meira. Auðvit-
að getur þú tekið lán — en, þú þarft að
borga vexti. Það sem kostar 399.90 kr.
kostar tæpar 400 kr. — ekki rúmar 300
kr.
w» Pað er Ijótt að
skrökva að öðrum og dýrt
að skrökva að sjálfum sér.
Annarra sakir eru þeim að kenna —
þínar eru þér að kenna. I viðskiptum
áttu að gæta réttar þíns og skyldum.
Verði þér á mistök þá þarftu að kann-
ast við þau og bæta úr þeim.
Skrökvaðu ekki að sjálfum þér að þú
sleppir við eitthvað sem er óumflýjan-
legt.
Svíki Jón þig réttlætir það ekki að þú
svíkir Stebba. Ef þú getur ekki staðiö
við skuldbindingu gerðu þá grein fyrir
því fyrirfram.
BOÐORDIN ÁTTA
—fyrir þá sem vilja vera hagsýnir neytendur
Eftir því sem næst verður komist
bendir margt til þess að verðskyn
okkar hafi aukist nú í seinni tíö. Líklegt
er að stöðugra verðlag sé ein af
ástæðunum fyrir auknu verðskyni.
Einnig er ekki ósennilegt að margir
þurfi nú að velta sömu krónunni tvisv-
ar áður en ráðist er í einhver kaup. Þá
hefur aukist til muna að gerðar séu
verðkannanir og birtar opinberlega.
Það er vonandi að verðskyn okkar sé
ekki eitthvert tímabundið fyrirbrigði
því að nú er mjög mikilvægt að neyt-
endur séu vakandi gagnvart verölag-
rnu. Þetta er orðið mjög mikilvægt
núna sérstaklega eftir að nýjar reglur
um frjálsa álagningu gengu í gildi. Þó
svo að verðlagsráð haldi áfram að
fylgjast með verðlagi í verslunum er
þáttur neytenda mikilvægur. Þörfin
hefur aldrei verið meiri en nú að
neytendur fylgist vel með og veiti
kaupmönnum aðhald við verðlagning-
una.
Það er einnig mikilvægt að
neytendur geri verðsamanburð á vöru-
flokkum innan sömu verslunarmnar.
Verðkannanir hafa leitt í ljós að hægt
er aö gera hagstæð innkaup innan
sömu verslunarinnar, þegar neytendur
bera saman verö á einstökum vörum í
sama vöruflokki. En nú er það svo að
gæði og verö fara ekki alltaf saman. Þó
svo að í ljós komi að ódýrasta varan sé
ekki sú besta er ekki þar með sagt að
viðkomandi verði aö ráöast í það að
kaupa þá dýrustu. Agætis ráð í þessu
sambandi er að reyna næst þá næst-
ódýrustu og fikra sig síðan upp eftir
þar til viðkomandi er ánægður með
gæðin. Þetta á að sjálfsögðu sér í lagi
við þær vörur þar sem boöið er upp á
margar tegundir. En það er orðið
flestum ljóst að þaö er hægt að gera
hagstæð innkaup. En til þess að þaö
geti orðið þurfa neytendur að vera vak-
andi og beita fyrirhyggju í innkaupun-
um.
Námskeið í
heimilishagfræði
Fyrir skömmu var haldiö námskeið
á Akureyri og var sérstaklega fjallað
um spamað í heimilisrekstri. Að þessu
námskeiöi stóð Neytendafélag Akur-
eyrar og nágrennis og Félagsmála-
stofnun Akureyrar. Fyrirhugaö er aö
slíkt námskeið verði haldið hér í
Reykjavík og annast Neytendafélag
Reykjavíkur og nágrennis undirbún-
ing þess. A námskeiðinu á Akureyri
voru „Boöorðin átta um ráödeildar-
semi” kynnt í fyrsta skipti. Þessi boð-
orð fundust á litlum steinflísum á fjall-
inu Súlum við Akureyri í febrúar 1984,
og þá höfðu þau verið týnd síðan fyrir
stríð. En hvað um það, boðorö þessi
eru ágætis veganesti fyrir neytendur
er vilja vera hagsýnir.
Boðorðin átta
Og nú ætlum við að birta þessi
boðorð sem bárust frá Akureyri.
1
* ■ Hugsaðu fyrst —
kauptu svo.
Hugleiddu hvort innkaupin séu í
raun og veru nauðsynleg. Gefðu þér
tíma — góöur undirbúningur: betri
kaup. Safnaðu upplýsingum um gæði
og kannaöu verð á heimilistækjum,
húsgögnum o.þ.h. áður en þú afræður
kaupin. Gerðu innkaupalista áður en
þú ferð í dagvörubúðina — og farðu
eftir honum.
Augnabliksákvarðanir: óhagstæð
kaup.
2« Ef þú kaupir —
fáðu þá sem mest fyrir
peningana þína.
Það er oftast ódýrara að kaupa í
stórum einingum — en ekkert er án
undantekninga.
Gefðu þér tíma til að bera saman verð,
magn og merki — þú ert á góðu kaupi á
meðan.
Það getur verið hagkvæmt að hamstra
vöru, sem þig í raun og veru vantar, ef
hún býðst á góðum kjörum.
En — mundu, að þegar þú safnar
birgðum, festir þú fé. Kauptu þar sem
ódýrast er, hugaðu að möguleikunum á
innkaupum hjá heildsölum, framleið-
endum eða gegnum innkaupafélög.
Vöruverð:
ÞAÐ GAGNAR AÐ
HAFA AUGUN OPIN
Það gagnar að gera verðsaman-
burð og hafa augun opin. Kona ein
hringdi til okkar og sagöist hafa
keypt ákveöna kryddtegund í Slátur-
félagsversluninni viö Hlemm. Þar
kostaði þetta krydd 59 krónur.
Seinna rakst hún á sömu kryddteg-
und í öörum verslunum. Þar var
verðið mun lægra. I versluninni
Straumnesi kostaði það 27,90ogíJL-
húsinu kostaöi það 25,20. Hún kvaðst
hafa haft samband við SS búöina og
beðið um að verðið á þessu ákveðna
kryddi yröi kannað. Þá má einnig
fylgja með aö Sláturfélagiö flytur
sjálft þessa kryddtegund inn.
Skömmu seinna kom hún í verslun-
ina og kannaöi hvort verðinu hefði
verið breytt, en svo var ekki.
DV hafði samband við SS búðina
og bað um aö fá uppgefið heildsölu-
verð á þessu kryddi. Þá kom í ljós að
heildsöluverðiö var ekki nema 20,65
kr. Þessu veröi hefur nú snarlega
verið breytt og kostar þar með smá-
söluálagningu 28,50 kr. Viö fengum þá
skýringu að ástæöan fyrir hinu háa
verði heföi verið sú að við
verðákvörðun hefðu átt sér stað mis-
tök. Heildsöluverð á öðru kryddi frá
sama fyrirtæki hafði af einhverjum
misgáningi verið notað þegar verðið
var ákveöið í smásölu. Nú hafa þessi
mistök verið leiörétt. Þetta var bara
eitt lítið dæmi um það aö það gagnar
að haf a augun opin. -APH
Láttu ekki aðra
ákveða, hvað þig vantar —
enginn veit betur en þú.
Auglýsingar eru áróður — láttu þær
ekki segja þér fyrir verkmn.
Láttu heldur ekki tískuna teyma þig.
,,Eg hlýt að geta þetta úr því að NN
getur það,” — kannski alveg rétt, en
kemur það málinu við?
Skammastu þín ekki fyrir að spara.
Þorðu aösegjanei.
Ef allt um þrýtur, hvemig væri að
reyna „timabundiðkaupbindindi”?
7■ Heimilið hefur einn
fjárhag — hann kemur öllu
heimilisfólkinu við.
Hugsaðu ekki um heimilistekjur sem
,,mína peninga” og „þínar skuldir”.
Hugsaðu heldur ekki um skuldir sem
„mínar skuldir” og „þínar skuldir”.
Allt heimilisfólk, einnig böm, ætti að
ræða og þekkja fjármál heimilisins og
bera saman ábyrgð á þeim.
Böm ættu að fá reglulega vasapeninga
samkvæmt reglu eða samningi sem
staöið er við.
Wi Tíminn er virði jafn-
þyngdar sinnar í gulli.
Vinni maöur mikiö, minnkar frítíminn,
tekjurnar hækka og útgjöldin.
Vinni maður minna, eykst fritíminn,
tekjumar lækka og útg jöldin.
Frítíma er hægt að breyta í bæði
ánægju og peninga. Neyslan i
þjóöfélaginu okkar er kapphlaup í átt
að einhverju marki... hvaða mark er
það annars...? og hvað er það langt
undan...?
Ætli tilgangur lífsins sé fólginn í því að
ná þessu marki.... hver er hann ann-
ars, þessi tilgangur?
Þetta vom boðorðin átta. Vonandi
geta þau komið neytendum að notum.
En það er enginn neyddur til að vera
sammála þeim og hugsanlegt að sum
þeirra höfði ekki til allra. En það eru
mörg gullkorn, sem leynast í boöorðun-
um og hverjum neytanda hollt að fara
eftirþeim.
-APH